Katrín.is
25.
júl

( 2010 )
ég kíkti í skaftafell um helgina
það er svo ótrúlega fallegt þar, einn uppáhalds staðurinn minn!

laugardeginum eyddi ég í göngu að kristínartindum, ætlaði upp en það var massa þoka þannig ég sá ekki leiðina upp... endaði með að ganga bara einhverja 17km eftir stígum þarna.. sem var fínt því það er allt svo fallegt þarna!


já og svo las ég líka ÞÞ í fátæktarlandi, æðisleg bók, hlakka til að lesa framhaldið

í dag fór ég svo í jöklagöngu á svínafellsjökli
hérna er ógeðslega kúl time lapse vídjó af jöklinum síðustu 3 ár, mega flott að sjá hvernig hann skríður fram..

mæli með þessu! svo eru gædarnir hjá íslenskum fjallaleiðsögumönnum svo sætir;)


kl. 22:13 | holla ( 3 )
ég er að verða þrítug í september. ég er ekki með vott af aldurskomplexum og hlakka mikið til. mér finnst svo gaman að eiga afmæli! en fyrst ég var aldrei búin að gera svona "gera fyrir þrítugt"-lista þá er ég bara búin að búa hann til svona as we go

ganga á kilimanjaro - check
standa 100m frá eldgosi í fullu tungli - check
kaupa bíl - check
gifta mig - næstum því!

kl. 20:20 | holla ( 3 )
ég ætti kannski að gera eitthvað í þessu spammi?:)
kl. 20:19 | holla ( 0 )
15.
júl

( 2010 )
ég var að spjalla við vin minn sem er á ferðalagi í danmörku og hann sagðist vera að horfa á vídjó með einhverjum gæja að tala um semen recycling

ég hélt hann væri að horfa á þetta í danska ríkissjónvarpinu (sem hann var ekki að gera), og fannst það í rauninni ekkert skrítið og fór að rifja upp þegar ég sá heimildarþátt um bledrænge þegar ég bjó þarna.. á dr2.. ég er ennþá með pínu ör á sálinni

hérna er bloggið mitt um þetta (afsakið, það er úllínga katrín sem skrifaði þetta)

kl. 21:33 | holla ( 3 )
ég var svo ánægð að sjá okkar eigin icy spicy leoncie á uppáhalds síðunni minni!

hún er frábær, ég vildi hún flytti aftur til íslands

kl. 20:56 | holla ( 0 )
13.
júl

( 2010 )
mér sýnist ég ekki mega hafa skoðun á öðrum síðum á internetinu
kl. 20:10 | holla ( 5 )
11.
júl

( 2010 )
sorrí með mig en þetta er eitt það heimskulegasta sem ég hef lesið

ef þú hefur nógu mikinn áhuga á víkingum, þá efast ég stórlega um að þú sért að fara að setja það fyrir þig hvað helvítis túnið sem þeir ætla að vera á heitir

annars er hinn eini sanni Grand Park, Mikligarður, þar sem Hagkaup Holtagörðum er.. færa þetta þangað!

kl. 14:51 | holla ( 5 )
10.
júl

( 2010 )
ég er að horfa á bachelorette (af hverju? ég veit það ekki? ég hlýt að vera einhverja sjálfspíningarhvöt..). er reyndar bara komin í þátt 4 því þessir þættir eru ca einn og hálfur tími hver, fáránlega langir

en það fyndna er að ali, er mesta woo girl í heimi! meira að segja strákarnir eru byrjaðir að wooa

robin útskýrir why the woo girls woo

kl. 09:47 | holla ( 0 )
8.
júl

( 2010 )
hvað er málið með allar þessar yfirborðskenndu skinkur sem skrifa á pressuna? ég er í sjokki.. þessi pía, sem finnst mikilvægast í heimi að vera með fínar augabrúnir og vera ekki drusluleg í flugi.. þessi bjáni (félagsfræðingur? seriously?) með dúllutussurnar og svo glamúrmódel vonnabíið, sem afgreiddi í flash fm partýi á júllunum og talar um mikilvægi þess að fá sér sílikon og svo síðast en ekki síst drottning allra skinka

er verið að fífla mig??

kl. 22:59 | holla ( 44 )
ég er að halda framhjá katrin.is með facebook... fyrsta skrefið, viðurkenna það
kl. 22:53 | holla ( 7 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox