
ég var að horfa á einhverja atvinnulausa konu tala í fréttunum á rúv.. hún var að tala um hversu hræðilegt það er að missa vinnuna og hversu mikil höfnun það er og hvað manni líður illa með þetta og hefur ekkert að gera
vá.. tala fyrir sjálfa sig kannski? ég upplifði mína uppsögn ekki sem neina höfnun (veit alveg að uppsögnin hafði ekkert með mig að gera) og hef bara aldrei verið uppteknari.. kannski líka af því ég er voða dugleg að finna mér bara eitthvað að gera..
ég hefði eiginlega átt að halda námskeið í hvernig á að njóta þess að vera atvinnulaus.. of seint.. byrja að vinna eftir viku
kl. 20:43 | holla ( 7 )
26.
júl
( 2009 )
nafnlausi herinn ræðir gjöld á ferðamannastaði af því þeir eru orðnir svo fjölfarnir..
..það hefur gefið sig rosa vel td í bláa lóninu þar sem enginn íslendingur getur farið í lengur af því það kostar 4 þús á kjaft..
..væri ekki bara nær að redda bara þessum gjaldeyrismálum og þá færi bolurinn (sem í ár er kastandi sígarettustubbum útum víðan völl, sem og keyrandi ölvaður um tjaldstæði) bara til benidorm.. eins og síðustu 10 ár..
kl. 02:09 | holla ( 8 )
22.
júl
( 2009 )
bara svona í tengslum við færsluna hér á undan.. reyndar er dr gunni held ég í vesturbænum.. en kannski alinn upp í breiðholti eða suðurnesjum...

myndinni brútallí stolið frá honum sjálfum
kl. 17:23 | holla ( 6 )
21.
júl
( 2009 )
ég var ekki búin að átta mig á hversu lævísir þeir eru hjá crocs.. það er ekki nóg með að annar hver breiðhyltingur og allir á suðurnesjunum séu að menga umhverfi sitt með því að ganga í þessu í bæjarferð, heldur eru þeir búnir að telja fólki trú um að þetta séu hinir einu sönnu vaðskór!
mér skilst að heitasta í göngutískunni í sumar sé að taka með sér crocs til að vaða og fólk þannig farið að menga umhverfi þar sem maður vill bara sjá gönguskó, tevur eða kínaskó.. ég er aaaaaalls ekki sátt
kl. 22:35 | holla ( 9 )
19.
júl
( 2009 )
ernir eyjólfsson er með ljómandi skemmtilega portrait á dag seríu
er búin að vera að fylgjast með þessu hjá honum, næs hvernig hann nær að taka myndir af fólki í þeirra umhverfi og svo pínu spennandi að geta lesið upplýsingar um fólkið
það gladdi mig þess vegna extra mikið að sjá arnþór lil bro á portraiti í gær
kl. 12:00 | holla ( 6 )
18.
júl
( 2009 )
í dag er tveggja ára afmæli góðærisins. þann 18. júlí 2007 endaði úrvalsvísitalan í 9.016,48 stigum... og þaðan lá leiðin bara niður á við
ég held upp á daginn og græt gamla góða tíma með humri, kampavíni og demöntum
kl. 18:46 | holla ( 11 )
16.
júl
( 2009 )
ég horfði á atkvæðagreiðsluna í dag..
sjálfstæðismenn eiga bæði verst klæddu konuna og verst klædda mannin.. þorgerður katrín er sér á báti í klæðaburði, ég þurfti að loka augunum í hvert skipti sem þessi peysa birtist á skjánum og sinnepsgula bindið við kóngabláu skyrtuna hans péturs blöndal var ekki að gera neitt fyrir mig.. fast á hæla hans fylgdi samt framsóknarmaðurinn (whatshisface) með þunna skeggið og ljóta bindið.. næst á eftir þorgerði (samt töluvert langt á eftir) var líka framsóknarmaður en það var siv sem ákvað að mæta í náttkjól
bjarni ben var í flottustu jakkafötunum.. ég fann ekki neina konu sem mér fannst í fínum fötum.
kl. 19:36 | holla ( 18 )
en fín mynd af mér og sissa í göngutjaldinu okkar
kl. 15:04 | holla ( 0 )
14.
júl
( 2009 )
það er svo mikil snilld að miðja alheimsins er bara þar sem maður setur hana
5 ára frændi minn kom í heimsókn til mín í gær.. þegar ég fór svo í heimsókn til hans áðan (hann býr í 203.. að mér finnst, eiginlega við hliðiná litlu kaffistofunni) þá spurði hann mig "af hverju áttu heima svona langt í burtu?"
svarið mitt var auðvitað "ÞÚ átt heima langt í burtu!"
kl. 14:41 | holla ( 3 )
8.
júl
( 2009 )
við sissi trúlofuðum okkur í síðasta mánuði og stefnum á að gifta okkur næsta sumar... nú er ég bara lögst í að finna kjól og blóm og skraut og sal og prest og mat og djók.. við erum frekar slök yfir þessu..
til að gera langa sögu stutta (en samt jafn sæta) þá fattaði sissi minn frekar stuttu eftir að ég fór til afríku að það er ekkert gaman án mín.. (ég reyndar fattaði það líka strax og vona ég þurfi aldrei aftur að vera svona lengi í burtu frá honum) og keypti hringa.. hann gaf mér hann samt ekki fyrr en uppá snæfellsjökli 6. júní
hringurinn er svoooo fínn, ég er svo heppin að eiga mann sem velur alltaf fínasta handa mér
eða ég er öllu heldur bara voðalega heppin að eiga hann sissa minn
kl. 14:09 | holla ( 35 )
6.
júl
( 2009 )
það er voða mikið í umræðunni að það sé hvorki hægt að selja bíla né hús
við sissi erum búin að vera að fylgjast svoldið vel með bæði fasteignum og bílum í amk eitt og hálft ár... það kemur vooooðalega lítið inná mbl.. og það eru sömu druslurnar búnar að vera á bílasölunum síðan við byrjuðum að skoða og það lækkar ekki neitt verðið á þeim..
..fólk myndi augljóslega selja þessa bíla ef það lækkaði verðið.. (sama á við um íbúðir) en ég skil ekki hvað það kemur lítið af íbúðum á sölu.. er fólk ekki einu sinni að reyna að selja þetta eða??
tek samt fram að við erum ekki að fylgjast með íbúðum í úthverfum og hvorki með bimmum né benzum...
kl. 19:33 | holla ( 2 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní