Katrín.is
30.
apr

( 2008 )
ég elska þessa mynd
bæði af því við rex erum svo fínar og sætar í þessum bolum
og líka af því ég er floating, ekki furða að ég sé svona djöfull snögg
:)

kl. 21:22 | holla ( 6 )
29.
apr

( 2008 )
vissir þú að..
...ég tók mig til og rúllaði upp stjörnumótaröðinni
...eurobandið skipti frómari út fyrir lesbíu
...poetrix er sonur leoncie!

kl. 17:41 | holla ( 16 )
28.
apr

( 2008 )
heh mér fannst þetta eitthvað kunnuglegt þegar ég fattaði að það er mynd af húsinu mínu þarna:)

ógila montin

kl. 21:57 | holla ( 0 )
27.
apr

( 2008 )
i love it!


ég elska rottweiler og ég elska tónlist sem fjallar um current stuff og svo elska ég auðvitað gas gaurinn..

kl. 23:59 | holla ( 10 )
þetta er eitt það vandræðalegasta sem ég hef rekist á

sá sturlu með þessa síðustu áhangendur sína í eftirdragi á laugaveginum, gargandi á fólk að koma með og sýna samstöðu

einhver kona bendir honum réttilega á að það er sunnudagur og þar með enginn á alþingi..

"ÞETTA SNÝST EKKERT UM ÞAÐ!"

nú bíddu hvað þá...?

"NÚ ÞETTA SNÝST UM AÐ ÞIÐ SÝNIÐ SAMSTÖÐU OG KOMIÐ MEÐ MÉR, EKKI BARA Á HEIMASÍÐUNNI"

haaa...??

kl. 19:04 | holla ( 0 )
24.
apr

( 2008 )
haha sækó gas man er kominn á jútjúb.. ég hló jafnmikið í annað skiptið og þegar ég sá hann fyrst (40 sek er best heh)


djöfull er hann geðveikur

og djöfull hélt ég með snæfelli

sko það er ekki til þetta "hata KR" syndróm í mér.. það fór allt í að hata keflavík.. og allt slæma sem kemur frá keflavík eykur á hatrið (td óli geir og ÍFÍ)

ég ætla nú ekkert að fara í svívirðingaranar því ég er svo dönnuð en ég væri til í að vita hvort maggi sé í alvörunni að drekka majones... ég myndi halda það væri líffræðilega ómögulegt að vera svona feitur meðan hann spilar heví mikið í hverjum leik og hlýtur að æfa mega líka.. eða ég skil eiginlega ekki bara hvernig hann meikar að spila svona mikið í leik...


GAAAAAAAS

kl. 21:50 | holla ( 19 )
í dag er einn af mínum uppáhalds frídögum.. sumarið er nefnilega svo frábært! síðasta sumar veiddi ég td lax í fyrsta skipti...

í tilefni dagsins ætla ég að kíkja á litla bróður minn keppa í fótbolta, hann er svo rosalega duglegur að mæta að horfa á mig og svo ætla ég að dusta rykið af golfsettinu mínu mínu (literally, það er rosalega rykfallið) í básum með g-stone og slá pinku

hvað er sumarlegra en það???


GLEÐILEGT SUMAR!

kl. 10:29 | holla ( 4 )
23.
apr

( 2008 )
ég hef aldrei séð geðveikari gæja en lögguna sem öskraði GAAAAS GAAAAAS GAAAAAAS í mótmælunum í dag

það eru aaaakkúrat svona gæjar sem sanna það að löggan eigi ekki að fá stuðbyssur

sjiii eins trylltur og þessi gæi var með úðabrúsann, hversu kureisí hefði hann verið með stuðbyssu?

en varðandi grjótkastið þá þekki ég nú strák í danmörku sem er búinn að sitja inni einn mánuð og á tvo eftir (fyrir utan allan tímann sem hann var í gæsluvarðhaldi fyrst) fyrir að kasta grjóti í löggur í ungdomshus óeirðunum... það er bara meira en nauðgarar sitja inni fyrir hér!

kl. 21:59 | holla ( 9 )
22.
apr

( 2008 )
trommað með meira frelsi er ýkt fyndinn leikur

því miður var hann pinku tilgangslaus því eftir að hafa trommað í gegnum allt lagið þá var ekki einu sinni best of stig..

en samt gaman

kl. 23:40 | holla ( 4 )
21.
apr

( 2008 )
það er pólskur strákur búinn að vera að dytta að hinu og þessu fyrir okkur sissa og þegar sissi sendonum sms biðjandi hann um að mixa eitthvað þá svaraði hann
"ekki vantar mál"

ótrúlega krúttlegt mis

kl. 17:25 | holla ( 2 )
það var svo gaman í brúðkaupinu hjá fínustu brúðhjónum ever

það var líka svo gaman að hitta öll frændsystkini mín og frænkurnar sem búa í svíþjóð..

...það var meirað segja svo gaman að ég gekk heim berfætt með fínu salvador sapena skóna mína í hendinni

kl. 00:22 | holla ( 5 )
20.
apr

( 2008 )
tveggja ára gamall draumur rættist á föstudaginn, nema bara í bandinum hans bubba, ekki idol
kl. 17:02 | holla ( 0 )
við ragna horfðum á 6. seríu af sex and the city úti og svo er ég búin að vera að horfa á 2. seríu

sem er greinilega of mikið af sex and the city því í allan dag er carrie búin að lýsa því í hausnum á mér hvað er að gerast... þúst.. svona eins og maður heyrir alltaf hvað hún er að hugsa og hvernig hún setur allt fram í spurningaformi

ég fíla samt carrie ekkert mega.. hún er svo tilgerðarleg og er alltaf í einhverjum semi búningum... samantha er uppáhalds



og miranda næst uppáhalds

kl. 02:17 | holla ( 3 )
19.
apr

( 2008 )
jesssss ég er komin heim
við héldum okkur uppi sem A þjóð sem er besti árangur íslenska landsliðsins til þessa.. rosa flott hjá okkur jeij!

og í gær verslaði ég mér alklæðnað hjá cintamani fyrir sumarfríið okkar sissa.. sem verður bara eitthvað tjill innanlands.. ég ellllska cintamani dótið.. það er komið á listann minn yfir merki sem ég safna (hin á listanum verandi nikita, tiger of sweden, apple, mac cosmetics og camper).. það er bara svo flott í sniðinu auk þess að vera mega þægjó og fínt

ég var að horfa á júróvídjóið okkar og það er það vandræðalegasta sem ég hef séð! og af hverju er gæinn alveg eins og friðrik ómar? ég er viss um að friðrik ómar hefur viljað hafa hann með til að hann myndi sjálfur líta grennri út.. sjiii ég las einhverstaðar að frómar hefði verið 30kg þyngri og hefði farið á námskeið hjá gauja litla.. hann hefur klárlega litið nákvæmlega eins út og feiti gæinn í vídjóinu

í dag fer ég svo í brúðkaup hjá obbu frænku minni og gísla hennar. ég er búin að hlakka til síðan ég heyrði af þessu!

kl. 08:55 | holla ( 5 )
10.
apr

( 2008 )
kúdos á megalár og kefcityTV
kl. 00:27 | holla ( 3 )
9.
apr

( 2008 )
ÍR ER Í HÚSINU!


(finnið mig og maju)
ég ætla ekki einu sinni að fara útí það hvað það er gaman að halda með ÍR í dag! rúllandi upp liðum hægri vinstri.. vona þeir klári þetta á föstudaginn
FOKK að ég komist ekki með!

er að fara til herning á morgun, EM A-landsliða baby! unnum B keppnina í fyrra eftirminnilega og fáum því aaaaðeins harðari keppni þetta árið



svo verður þetta langt og strangt því fyrst er liðakeppni og svo einstaklingskeppni..

gaman að því samt

eitt fyndið með landsliðið heh! í febrúar vorum við að keppa í öðruvísi evrópumóti þar sem stelpu og strákaliðin keppa sér og á því móti er keppni milli strákanna og stelpnanna hver nær að redda sér flottari peysum eða úlpum..

í hvert skipti sem ég sé sturlu og hina vörubílstjórana í fréttum man ég eftir strákunum í jökkunum sem þeir redduðu sér síðast


sjii þetta var svo fyndið.. þjálfarinn byrjaði alltaf að syngja YMCA þegar þeir nálguðust

við píurnar unnum þessa keppni þetta árið með meeeega flottum cintamani peysum, cintamani er svo fínt, ég ætla að sjoppa átfitt þar fyrir sumarferðirnar okkar sissa,. ég er því miður ekki með liðsmynd en það er alltaf gaman að pósta bara mynd af mér í staðinn... í peysunni heh!


jæja.. best að fara að pakka!

kl. 23:12 | holla ( 2 )
8.
apr

( 2008 )
ég hlakka svo til að sjá ÍR-Kef á morgun að ég get ekki setið kjurr! ég á örugglega ekki eftir að geta sofnað!

það verður svo ROSALEG stemning í seljaskólanum, það hlýtur hver einasti breiðhyltingur að mæta... já hver einasti reykvíkingur! (af því það er svo mikilvægt)

dúndra með mynd af bróður mínum bæði af því geimfeisið er svo gott og líka til að sýna hvað kef þarf að reyna til að stoppann (smá hómóerótík í gangi hjá kef)

(og það sést líka í mig á myndinni, en bara af því ég veit hvar ég var heh)

áfram ÍR!

kl. 22:25 | holla ( 3 )
ég á tvo vini sem eru svooooo flinkir ljósmyndarar að ég get skoðað myndirnar þeirra aftur og aftur

þetta eru pétur geir, svarthvíta hetjan mín og svo hinn eini sanni sigurjón, þegar ég eignast stærri íbúð (sem verður með þvottaherbergi í íbúðinni, tölvuherbergi og hita í gólfinu og helst í 107 eða 170 og með bílskúr og geymslu) þá ætla ég að eignast myndir eftir þá báða til að setja á veggi

en alla vega, ég er heppin að eiga þá fyrir vini af því þeir eru líka svo skemmtilegir og góðir...

þess vegna ætla ég líka að plögga íbúðinni hans sigurjóns, svona fyrir þá sem langar til NY í sumar og langar EKKI að borga skvilljons fyrir gistingu með $$$ í 90kr (maður veit ekkert hvert gvt stefnir)

hérna eru allar upplýsingar um íbúðina

kl. 19:11 | holla ( 9 )
7.
apr

( 2008 )
úff dagurinn í dag var erfiður! ég var svooooo dreiiiind!

í gær nefnilega vaknaði ég í fáránlega góðri stemningu sem hélt allan daginn átti hápunkt þegar við rex unnum og endaði svo í mega high þegar ÍR vann Kef í framlengingu eftir buzzer frá Nate, SÆLL! ég hoppaði og öskraði og dansaði og söng þar til ég bara veit ekki meir.. þvílík hamingja!

ég var samt svo hrædd þegar við keyrðum í gegnum kef, passað mig að hafa allar hurðir læstar og svona

þess vegna er ég búin að eyða deginum í dag í að geyspa og borða.. namminamm! fór á nýja fína mexíkóskastaðinn á laugavegi sem er með alla réttina svo girnilega að mig langar að mæta þangað daglega þar til ég er búin að smakka allt... já hann heitir santa maria og er rétt hjá Barnum

og allt alveg hræbillegt og ótrúlega fín þjónusta! skiliggi akkuru svona ódýrt, allir að vera duglegir að borða hjá þeim!

núna ætla ég að borða örlítið af ben and jerrys ísnum sem ég kuffti á föstudaginn og týmdiggja borða fyrir mótið (borða hollt) og spara svo restina þar til eftir EM heh!

já og TAKK ALLIR FYRIR KVEÐJURNAR!
þykir ýkt vænt um þær:)

kl. 22:49 | holla ( 0 )
6.
apr

( 2008 )
JEIJ! ég og ragna erum íslandsmeistarar 3. árið í röð svo við megum eiga bikarinn


ég lofaði sko stóra bróður mínum að mæta með gullmedalíu á ÍR-Kef í kvöld þannig ég ákvað bara að eiga dúndurleik.. jéah hvað við erum fokking góðar! (hann hefði líka haft gaman af því að sjá okkur í bláu heh)

nú er það bara næsta verkefni, ÁFRAM ÍR!

kl. 18:11 | holla ( 25 )
5.
apr

( 2008 )
ég held ég hljóti að vera heppnasta stelpa í heimi!
þegar ég kom heim í dag beið mín fínasta snjóbretti í heimi sem er ekki bara með bleiku heldur líka gulli!






við ætlum að prufa það um leið og badmintontímabilið klárast (2 vikur eftir) og þá verð ég pottþétt fínasta pían á svæðinu!

kl. 21:31 | holla ( 4 )
4.
apr

( 2008 )
leiðinlegt að ásdís rán finni fyrir fordómum í garð sexí keppna..
..spurning um að tala við mannréttindanefnd?

mér finnst ásdís rán hörkudugleg og búin að láta ótrúlega margt gott af sér leiða.. þar má til dæmis nefna þáttinn bikini módel íslands (sem veitti mér endalausa ánægju og hefur fleytt td stelpunni sem mátti ekki klippa mjög langt, því ég hef séð hana ca 3x sem séð og heyrt stúlkuna síðan þátturinn var sýndur) og svo ég tali nú ekki um módel tækifæri fyrir börn, það er eitthvað sem hefur sárlega vantað á íslandi. Vona hún taki næst að sér svona fegurðarsamkeppnir fyrir börn, þeas taki ungfrú menntaskóli keppnina sína bara alla leið og bjóði uppá slíka keppni á öllum skólastigum

áfram ásdís!

kl. 18:19 | holla ( 9 )
3.
apr

( 2008 )
bróðir minn grínast ekki þegar hann gefur loforð, hann stendur alltaf við þau

djöfull var ÓGEÐSLEGA FOKKING GAMAN að RASSSKELLA KRingana áðan shii þetta var svo mikið rúst að ég hef aldrei séð annað eins

ég og litli bróðir okkar ræddum það eftir leik nr 2 að það væri hvort eð er miklu skemmtilegra að henda KR úr úrslitakeppninni á þeirra heimavelli.. vá það var svo rétt, þetta var einum svo svít! og sæll eigum við að ræða það hvað uppaldi vesturbæingurinn hann sissi minn er heppinn að hafa verið neyddur til að skipta um uppáhalds lið?? heh



hreggi er líka heldur betur maður orða sinna ertu að grínast hvað hann var góður í þessum leik, það á pottþétt ekkert eftir að heyrast í fannari næstu dagana, hann verður mega bissí við að éta oní sig allt kjaftæðið sem hann er búinn að æla útúr rassgatinu á sér síðustu daga

ég og mínir menn förum nú að einbeita okkar að undanúrslitunum meðan KRingarnir fara bara að selja herbalife (seriously, það er herbalife sölubás í kr húsinu heh) nema kannski brynjar og skarphéðinn, þeir ættu að færa sig yfir í mma

ÁFRAM ÍR! djöööö er gaman að vera ÍRingur í dag!

(uppfært: má til með að bæta við hérna link á umfjöllun um leikinn því fyrirsögnin er svo fín - KR niðurlægðir í Vesturbænum)

kl. 22:43 | holla ( 12 )
2.
apr

( 2008 )
helga þórey benti mér á svo fína pistla hjá jónasi um hvernig á að vera klár að skrifa
hann talar m.a. um
klisjur sem er svo fyndið af því það er eins og meistari stebbi freyr hafi lesið þetta og ákveðið að gera AKKÚRAT öfugt!

en eitt sem mér leiðist geðveikt í blaðamennsku í dag er þegar blaðamaður er að taka viðtal og er alltaf að lýsa því sem gerist "það er sólríkur dagur þegar ég rekst á glaðlega konu í tómri setustofunni á hótel holti" blablabl "hún pantar sér grænt te sem þjónninn kemur með innan skamms"
(ekki raunverulegt dæmi en byggt á viðtali við konuna hans bjögga thors)

held fólk sé klárlega að kaupa blaðið til að vita hvað viðmælandinn hefur að segja, ekki til að vita hvernig veðrið var á viðtalsdaginn eða hversu mikið þjónninn hellti í bollann

kl. 22:17 | holla ( 9 )
1.
apr

( 2008 )
plísplísplís láttu ásdísi rán hafa unnið þennan mánuð
1, 2
4 barna milf að keppa við aðrar stelpur um eitthvað.. hvað? ég veit ekki einu sinni útá hvað þessi þáttur gengur.. hver er kynþokkafyllst?
hún var frábær í icelands next bikini model (byggt á hennar eigin hugmynd og allt) þannig ég get ekki ímyndað mér hversu mikil snilld þetta verður þegar hún verður komin í keppnigírinn sjálf

vona að coco verði gestadómari og gefi verðlaun fyrir bestu kameltána

en ein pæling.. ætlar hún að taka fótósjopparann sinn með sér í þáttinn eða..?


kl. 23:44 | holla ( 12 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox