besta við að fara úr bænum yfir áramótin er að hér hefur ekki verið kveikt á sjónvarpi.. ég er ótrúlega fegin að losna við að horfa á annála og kreppufréttir..
veðrið á akureyri er búið að vera ótrúlegt í dag, það var magnað í fjallinu og ég er orðin svoldið góð á brettinu...
langar með þessum orðum að óska ykkur öllum gæfuríks komandi árs og þakka fyrir gamla
kl. 15:13 | holla ( 5 )
þessi með björn bjarna að hlera símann hennar (sem hún er ekki að nota) er í uppáhaldi ásamt þessari með að jón ásgeir hafi verið að bjóða uppá ódýran mat en á meðan verið að plotta hvernig hann ætti að gera sem flesta íslendinga gjaldþrota..
kl. 17:50 | holla ( 4 )
29. des ( 2008 )
ég var svona að velta því fyrir mér hvort ég ætti að skrifa áramótaannál.. ég var damn sein með minn í fyrra.. minnir mig...
spurning hvort ég láti það nægja bara að segja hápunkt ársins hafa verið að náð að kaupa flatskjá fyrir hrun? keypti minn í ágúst eða sept.. annars er ég ekki alveg að skilja af hverju flatskjáir eru eitthvað tákn fyrir góðærið.. kannski af því ég lét mér ekki detta í hug að kaupa þannig fyrr en ég seldi íbúð... eða kannski af því það er ekki hægt að kaupa öðruvísi sjónvörp í búðum... eða kannski af því ég vissi ekki fyrr en um daginn að fólk var að kaupa sér svoleiðis á raðgreiðslum...
ég skil alla vega mjög vel að fólk fái sér flatskjá.. minn gerir amk ekkert smá mikið fyrir stofuna okkar
annars erum við sissi á akureyri.. renndum okkur í gær og líka í dag.. sissi er reyndar enn í fjallinu en ég fór fyrr heim af því ég er að drepast rassinum eftir að hafa dottið í gær... ekki á brettinu sko, það gengur vel að standa á því, heldur á bílastæðinu.. það er eitthvað við klaka með þunnu lagi af vatni oná sem er ekki að gera sig heh
kl. 18:22 | holla ( 10 )
27. des ( 2008 )
ég fór í leikhús í gær og þorgerður katrín var þar
hún hlýtur að vera ósmekklegasta kona á íslandi!
hún var í appelsínugula og brúna hroðbjóðnum (ótrúlegt að hún hafi klæðst þessu aftur eftir útreiðina síðast) og toppaði það svo með að vera í skósíðum brúnum mokkafrakka yfir og wait for it... með appelsínugula pleather handtösku
jeminn, konan er ráðherra (og loaded) og er svona til fara þar sem er annað fólk.. ég gat varla einbeitt mér að leikritinu af því ég gat ekki hætt að horfa á hana (ég var efst uppi á svölunum, hún var fremst)
ég var bara ótrúlega fegin að sjá ekki hvernig skóm hún var í
kl. 16:09 | holla ( 0 )
24. des ( 2008 )
mér finnst jólatréð í ár rosa fínt
mér finnst þið líka frábær! sérstaklega þeir sem eru duglegir að kommenta
við erum að tala um stórkostlegt samspil bold og caps með hæfilegum skammti af "gæsalöppum" á viðeigandi "stöðum"
kl. 17:23 | holla ( 8 )
21. des ( 2008 )
ég var að skreyta tréið, það er svo fínt! það var líka sérvalið fyrir mig af sölumanninum..
sko ég er líka búin að vera smá að bæta við í jólaskrautssafnið.. til viðbótar við jólahegrann, jólafiskinn, jólagosann og jólaeskimóann sem ég talaði um í fyrra eru meðal annars komnir jólaapi á hjólaskautum, jólahundur í fangabúning, jólasvanur og jólaúlfaldi
ahh hvað eru jólin án jólaskrauts
ég er líka búin að stássa mig upp.. nú verður bara fólk að koma í kaffi að skoða!
kl. 23:59 | holla ( 0 )
en hvað var logi að pæla að setja hana í þátt með emilíu?
ég hefði frekar sett hana með sturlu trukkara... eða emil tölvutrylli... eða ara jóseps kl. 18:53 | holla ( 8 )
17. des ( 2008 )
við sissi erum búin að fá eina jólagjöf
hver ætlar að koma í kaffi? kl. 22:42 | holla ( 11 )
"Það þarf að sameina alla bankana og setja biskupinn yfir þeim !"
-jónína ben (sjálfskipaður talsmaður framsóknarflokksins)
rmér finnst þetta góð hugmynd sem skapar mörg tækifæri.. það væri td hægt að opna útibú í kirkjum og svona
kl. 17:59 | holla ( 3 )
16. des ( 2008 )
ég var búin að vera að velta því fyrir mér hvernig björgvini líður með störf sín.. hvort hann væri alveg "ég er með þetta allt á hreinu, er búinn að standa mig rosa vel" eða hvort hann væri "óneiiiiiiii það er allt í fokki og ég veit ekki neeiiiiiitt"
fékk svarið við þessu áðan
sindri sindrason spurði hann hvort honum fyndist hann eiga að segja af sér, m.a. útaf öllu sem hann ekki vissi ekki
björgvin svaraði "hvaða mál eru það?"
kl. 18:44 | holla ( 2 )
ég var að fá nýjan spaða sem er svo flottur að ég veeeerð að monta mig
hann er eins og búinn til fyrir mig, ég ætla að kallann bleiku hættuna
prufaði hann í fyrsta skipti áðan og náði held ég mínum besta árangri í öllaratíma frá upphafi heh
kl. 00:35 | holla ( 7 )
ég er búin að vera með þetta á heilanum í allan dag
auglýsingin að virka?
eflaust.. ég verð samt að viðurkenna að ég tengdi þetta ekki við vodafone, fyrr en ég sá þetta núna
kl. 00:00 | holla ( 2 )
15. des ( 2008 )
ég hef doldið gaman af því að fylgjast með kommentum nafnlausa hersins. þetta kvót er í uppáhaldi í dag og kemur frá Valgeiri (ég sé alveg fyrir mér hvernig hann hefur fengið þessa FRÁBÆRU hugmynd og básúnað henni á kaffistofunni í vinnunni og í fjölskylduboðum, bíðandi eftir nóbel)
"Það má heldur ekki gleyma því að hækkun vegna verðtryggingar er ekki raunverulegur peningur. Um er að ræða tölustafi í tölvu. Það hefur ekki orðið til neinn peningur og því er enginn að tapa neinum pening þó að þessi tala sé strikuð út. Það eina sem hefur gerst er að Bankinn setur þessa tölu á lánið mitt. Hann hefur ekki tapað peningum ekki raunverulegum."
ég bíð bara eftir að seiðkarlinn birti þessa snilld í sér færslu eins og annað rugl sem hann hefur haft eftir fólki
kl. 18:15 | holla ( 9 )
alveg viss um að bandaríkjamenn hafi húmor fyrir þessari samlíkingu
hann gæti td gaukað þessum brandara sínum að einhverjum sem missti ástvin í attackinu
af hverju veit hann ekki neitt? af hverju er hann svona vitlaus? af hverju er jónína ben komin í framsóknarflokkinn? var þessi mynd af fanganum í dánartilkynningunni alvörunni mynd af honum?
ég var í skötuveislu.. af hverju var skötuveislan núna en ekki nær jólum?
þetta þarf að rannsaka..
skatan var þokkalega vel kæst, alveg þannig að manni sveið í augun ef maður fór með andlitið of nálægt disknum
þetta þarf líka að rannsaka, það voru reyndar nokkrir endurskoðendur á staðnum en þeir eru allir óhæfir til að rannsaka þetta vegna tengsla við kokkinn
---
frændi minn var búinn að baka 8 sortir af smákökum, namminamm, ég er nefnilega ekki enn búin að baka fyrir þessi jól.. ég er ekki einu sinni búin að klára að skreyta.. af hverju er ég svona löt?? ég er búin að vera löt í allt haust, hræðilegt.. þarf að setja mér áramótaheit
kl. 23:28 | holla ( 10 )
ef egill helga flytur úr landi, nennir hann þá plíííís að taka nafnlausa herinn með sér
kl. 22:54 | holla ( 11 )
einu sinni fyrir langa löngu bjó gunnare til bloggarapróf þar sem var meðal annars hægt að fá niðurstöðuna "þú ert katrin.is"
good times
nú er einhver búinn að gera svona próf á facebook og ég er ármann jakobsson
veit ekki hverjir aðrir eru í boði en ég var helsátt við að vera ármann (en ekki td einhver moggabloggari eða egill helga copy/paste bloggari), verst hann er búinn að læsa blogginu sínu
kl. 18:28 | holla ( 16 )
6. des ( 2008 )
djös stuð í köben
ég labbaði niðrí bæ frá geir og lenti í nærridauðareynslu
heima hjá geir
með jömmí jömmí durum frá kösk kebab
á roberts coffee
í 7/11
á eftir förum við jólatívolí!!
kl. 18:05 | holla ( 2 )
5. des ( 2008 )
veit ekki hvort ég er að rugla
en gæinn sem var í kastljósi og ætlar að hætta að borga af íbúðinni sinni, er þetta ekki gæinn sem var veislustjóri í mega brúðkaupinu sem var í brúðkaupsþættinum já, þar sem brúðhjónin komu fljúgandi á þyrlu útí viðey og fleira klikk?
(ég gúglaði það og ekki spyrja af hverju ég man eftir einhverju úr þessum þætti síðan 2002...)
kl. 10:21 | holla ( 19 )
4. des ( 2008 )
ég gleymdi að segja að ég var í fréttablaðinu kl. 01:11 | holla ( 16 )
3. des ( 2008 )
fer til köben á morgun með maju
ég man ekki einu sinni hvenær ég fór síðast til köben, hlýtur að vera langt síðan... bíddu það var þegar ylfa var ólétt af paprikunni... ekki núna í vor heldur síðasta vor
krónan er ekki beint að gera góða hluti þessa dagana þannig það verður bara pinku spennó að fara út og lifa aftur eins og maður gerði á námsárunum (ég er svoldið búin að gera andstæðuna við það í þessi skipti sem ég hef farið þarna eftir námslok he he..)
en það er ekkert á planinu nema smá ferð til espergærde, jólatívolí, heimsækja lenu frænku og hanga með geir og sýna maju nörrebrona mína og staðina sem ég borðaði á þegar ég bjó þarna.. bara samt að benda á að þó að krónan sé svona, þá er durum úti ódýrara heldur en í kebabhúsinu
það ætti ekki að hafa farið framhjá neinum hérna að ég ellllllska jólaskraut
ég er meirað segja að fara í helgarferð til köben bara til að skoða jólatívolí (og hitta geir og hanga með maju og heimsækja lenu frænku)
ég ellllska líka (fína) íslenska hönnun en er ekki eins svag fyrir hönnun sem er búin til fyrir útlendinga (hraunmola hálsmen... álfabollar... o.s.frv.)
þessgna langar mig svo að benda á stáss, mér finnst það fínt og ætla mér að eignast eitthvað af jólaskrautinu þeirra kl. 13:42 | holla ( 0 )