Katrín.is
30.
jan

( 2008 )
ég er bara ekki búin að hafa neitt tilefni til að blogga fyrr en núna
ÉG FANN FYRSTU SERÍU AF FÓSTBRÆÐRUM!
jeij!

og svo næstmerkilegast
óli geir fékk hálfa milljón í skaðabætur fyrir ólöglega sviptingu á herra íslands titlinum

loksins er réttlætinu framfylgt


(hér er hann með stolltri móður sinni)

mikið er ég samt ánægð að sigurjón og óskar voru farnir að sakna mín.. málið er bara að moggabloggararnir eru pinku búnir að eyðileggja blogg fyrir mér.. blogg er farið að fara í taugarnar á mér

en svo er ég reyndar líka bara rosa upptekin.. var td að klára að borða núna og þá tekur æfing við

kl. 18:23 | holla ( 11 )
25.
jan

( 2008 )
ég veðja að amk 10 manns verða með þetta lag á heilanum í lok dags


búnað horfa ýkt oft á þetta vídjó og hlæja.. þekki steinda jr ekki neitt en vildi að hann væri vinur minn því mér finnst hann vangefið fyndinn

kl. 00:41 | holla ( 6 )
24.
jan

( 2008 )
matti sendi mér fínt

kl. 18:26 | holla ( 3 )
mig langar svooooooooo í!

kl. 00:03 | holla ( 6 )
22.
jan

( 2008 )
djö væri ég til í að læsa þessu bloggi svo enginn þrollaheftur gæti lesið þetta
bara skemmtilegir!

það þyrfti þá að vera alvöru læsing.. eins og td rafræn skilríki..

pæli í þessu þegar allir eru komnir með svoleiðis..

kl. 23:28 | holla ( 15 )
ohhhhh bömmer!

kl. 23:21 | holla ( 9 )
ohh ég er alltaf að rekast á einhverja þrumba á moggablogginu með markaðsráðgjöf "frááábær kauptækifæri þarna.."

held það væri sjor vinner að shorta bolinn

kl. 23:19 | holla ( 0 )
vinsamleg ábending til fólksins sem skrifar sig á undirskriftalistann

það er ý í lýðveldi


kommentin þarna eru sko gullnáma, i lovez it

kl. 19:04 | holla ( 5 )
ojjjj jordan catalano í sleik við paris hilton!!!!!!!

kl. 17:54 | holla ( 14 )
21.
jan

( 2008 )
elska palla!

ástarfíknina í textunum.. lúkkið.. allt!
(þessi var fyrir fífu)

kl. 23:19 | holla ( 4 )
20.
jan

( 2008 )
svo vandræðalegt að sigurjón væri búinn að vera hlandblautur í þrjár vikur þannig ég ákvað að henda inn ársannálinum!

ef eitthvað er skrítið eða virkar ekki má endilega benda mér á það því ég nenni ekki að fara yfir þetta he he he...


janúar
árið 2007 byrjaði rosalega vel því þann 3. sá ég herbalife vídjóið sem er ennþá algjör klassík.. töluvert fyndnara í alvörunni heldur en grínið í skaupinu

ég skilgreindi sjónvarpshandbolta og einn af hápunktum ársins var í janúar þegar evrópumót b-þjóða var haldið í höllinni. þessi mynd var tekin af okkur rex á æfingu fyrir mótið


íslenska badmintonlandsliðið gerði sér lítið fyrir og VANN evrópumót b-þjóða



að standa með gullmedalíu um hálsinn og íslenska þjóðsönginn hljómandi undir er eitt það frábærasta sem ég hef upplifað á ævinni..ég bjóst ekki við að þessi stund myndi nokkru sinni koma og þar sem við unnum þetta mót mjög óvænt, var þetta miiiiiklu sætara.. og það á heimavelli


það vantar reyndar ísland á medalíuna en hún er samt svöl


febrúar
í febrúar fór ég með sis og lil bró til akureyrar þar sem hann kenndi okkur pinku á snjóbretti

þarna er ég reyndar bara í gömlum galla af honum svo ég lúkka ekki jafnvel og ég gerði þegar ég fór næst á bretti mhe mhe mhe.. í febrúar uppgötvaði ég fyrst hversu leiðinlegir moggabloggarar eru og að jón valur jensson er fáviti og ætti ekki að fá að blogga...
hápunktur febrúar var samt þegar bróðir minn og félagar í ÍR urðu bikarmeistarar... úff að upplifa aftur svona rosalegan sigur í höllinni, mánuði eftir evrópumeistaratitilinn var ógeðslega gaman!


ég heimsótti líka pétur í stúdíó og hann tók svona fína mynd


við sissi keyptum okkur flug til bangkok og þar með var sumarfríið ákveðið, fífa útskrifaðist með ba og ég sagði felix bergssyni að mér þætti 6til7 besti þáttur í heimi og hann faðmaði mig

við hans vorum með brunch, amerískar pönnukökur og nýpressaður safi.. ekki í fyrsta og ekki í síðasta skipti..


mars
mars var frekar slakur mánuður eftir ótrúlega toppa í jan og feb..
arnþór lil bró kom laginu úr filippó beríó auglýsingunni í hausinn á öllum sem ég þekki og það hefur ekki farið út enn.... hans steig fyrsta skrefið í að bókmenntafræða mig og fór að lauma bókmenntum á klósettið okkar.. ég því orðin vel lesin í bónusljóðum og grillveðri í október (og butt)

ég gaf hansa ógeðslega kærastann með latex hanskann, hélt "þorra"blót fyrir frændfólk mitt og við hans áttuðum okkur á að við erum flamingos


apríl
apríl byrjaði á því að við rex urðum íslandsmeistarar í tvíliðaleik

en þar sem lífið er ekki alltaf bara sigrar, þá sá benni vinur minn ekki tilgang í að lifa lengur, á sama tíma og ég var faðmandi einhvern bikar á verðlaunapalli... það hræðilega sorglegasta sem ég hef upplifað á ævinni er að horfa á unga stráka bera í líkkistu vin sinn og bróður

benna tókst alltaf að láta manni líða eins og maður skipti hann öllu máli og ég mun alltaf sakna hans



ég fór með sissa, hansa og fífu til ísafjarðar á aldrei fór ég suður.. það var ótrúlega gaman, sérstaklega þegar dr. spock gaf okkur hansa gúmmíhanskapar og hans sagði svo ótrúlega fyndið sem var "hver er silfurrefurinn"


miðbærinn brann og ég var með puttann á púlsinum þar sem ég var að vinna í næstu götu.. þetta var ótrúlega merkilegt allt saman.. sérstaklega þegar villi borgarstjóri var að hjálpa slökkviliðinu að bera bíl í burtu sem var fyrir

sumarfílingurinn byrjaði í lok mánaðar, sissi sýndi mér fína bústaðinn á þingvöllum og fífa og aðalbjörg buðu í grillveislu! ó ég elska vorin

maí
ég skrifaði ógeð fyndna (að mínu mati) 1.maí færslu sem fáir föttuðu grínið í og uppskar í staðinn umræðu með "séð og heyrt fyrirsögn" um útlit mitt og hroka á ónefndum vef..
enginn sem ekki fattaði kommentaði þó á útskýringafærslurnar tvær 1 - 2 enda grunar mig að fólk hafi bara verið einum of æst til að vera eitthvað að vilja sjá að ég væri að gera grín um leið og ég var að vera með ádeilu..

chen æfði með okkur í maí og var ógeðslega skemmtilegur, ellert schram kom og gaf mér rós, pabbennar ylfu tók þátt í júróvissjon og ég fór í sjóstangveiði og veiddi þorsk karfa (takk óskar pétur:))


ég heimsótti apamömmu og davíð í apahreiðrið og apamamma tilkynnti mér hún væri með lítinn apa í maganum.. ógeð skemmtilegt!

ylfa og hans pósuðu í tiger of sweden og við hans skruppum til svíþjóðar

ylfa var með leiksigur í lokasýningunni í skólanum og útskrifaðist jeij!!

við rex fórum með chen í smá túristatúr og sýndum honum helli og humar


sissi bauð mér með sér til berlínar þar sem rigndi næstum allan tímann og við sáum ekki knút.. mjöööög gaman samt!

júní
mitt lið vann ratleik í vinnunni og sissi kom að sækja mig á úlfljótsvatn því iég meikaði ekki að fara heim í rútunni haha dekurbossi!
omen og rase tögguðu á húsið mitt og eru fokkíng dauðir ef ég næ í rassgatið á þeim.
fór í lunch með sigurjóni


bjarki steig á reimarnar sínar á æfingu og ég fór til glasgow að keppa á heimsmeistaramóti landsliða og það gekk ekki nógu vel og þá er heldur ekki gaman.. við vorum líka fyrst sett á eitthvað ógeðis fangahostel og mig langaði heim.. en við vorum svo send á betra.. við rex drukkum mikið starbucks og skoðuðum skota.. agalega eru feitar konur í glasgow


ég fór að gefa blóð í fyrsta skipti og átti 6 ára blogg afmæli
ég rölti á esjuna með fífu í rosa flottu veðri.. við fengum okkur líka frábæra pásu á leiðinni upp í sól og svita

fór til hollands að keppa á evrópukeppni félagsliða sem er hræðilegasta badmintonferð sem ég hef farið í á ævinni.. eina sem var jákvætt var að bjarki var með;) mhemhemhe..

júlí
fórum til london á JT tónleika og ég hitti hemma í fyrsta skipti
jt er ógeðslega osomm og ég elskann rosalega mikið

þaðan lá leiðin til bangkok í gegnum qatar
byrjuðum á koh tao þar sem ég gafst upp á köfun..

það er ekki fyrir fólk að anda neðansjávar.. ég snorklað bara pínu í staðinn meðan sissi kláraði köfunardótið

fórum svo til phuket þar sem ég dró sissa í alveg vonlaust safari.. samt ógeð fyndið.. að vera á fílsbaki er gaman í svona 30sek.. svo ekki lengur gaman.. en ég fékk að hitta alvöru apamömmu!!

þaðan fórum við til phiphi þar sem myndavélinni minni var stolið og ég var næstum drukknuð í sjávarháska.. strandaði á kóralrifi þegar ég var að snorkla af því það komu svo stórar öldur af skemmtiferðaskipi sem sigldi framhjá en sissi kom og bjargaði mér og var allur í blóði á löppunum í staðinn.. hvað gerir hann ekki fyrir músakisu?

skemmtilegasti staðurinn sem við fórum á var railey beach þar sem ég eltist við sissa og einhverja dudes í klifurveseni.. fórum í inní fjall með pinku litla ljóstýru af ónýtu vasaljósi og upp allskonar ónýta bambusstiga þar til við komum að opi á hinum endanum og ég varð bara að síga 30m niður eða labba ein til baka í gegnum biluðu bambusstigana í myrkrinu.. þannig ég seig í fyrsta skipti..

svo fékk ég ræpu og magakrampa sem endust í viku.. hressandi það en kom líka voða grönn heim he he

enduðum í bangkok þar sem ég fékk nýja myndavél sem er roooosalega fín



fór í roadtrip til þingvalla og í efra nes.. ég elska bæði þingvelli og efra nes og ætla mér að eyða meiri tíma á báðum stöðum í framtíðinni


hélt líka minningarkrokk fyrir beina þar sem við spiluðum kubb.. kubbur er skemmtilegur!


ágúst
fór með hansa á ítalókvöld hjá halla og sveinbirni og við hlógum og hlógum og hlógum og...

fór á hestbak með tengdó


fór á kollabúðir sem er á topp3 bestu staðir í heimi, veiddi þar lax í fimmta flugukasti.. ever.. og gat ekki haldið á honum.. hann er so sleipur!!!

beit svo uggann af helvítinu sem var ógeð

og æfði mig að skjóta af byssu

grííín, auðvitað skaut ég ekki af byssunni, ég er ekki með leyfi! og týndi heil hellingsósköp af bláberjum.. það er ekkert grínast með bláberjasprettuna í þorskafirðinum

var svo send í ótrúlega svaðilför frá efra nesi þar sem ég var næstum troðin niður af hestum og varð næstum úti í of löngum hlaupahring

fréttir um að fóstbræður kæmu á dvd birtust í fjölmiðlum, hans tók mig með á hestbak jei og ég fékk að þykjast stýra björgunarbát


september
hans byrjaði þennan mánuð á góðum brandara þegar hann sagði "hes got the moves"
good times
við keyptum okkur fiskabúr og ég gaf agli fimmuna
við gsm fórum á ljósmyndanámskeið sem var hræðilega langdregið en ég lærði á myndavél þannig það var ágætt og tók fyndnustu mynd sem ég hef tekið

ég varð 27 ára og sissi fór með mig í fínustu óvissuferð í heimi þar sem hann kenndi mér ma að labba á jökli og bakaði amerískar pönnukökur á prímus

og hann gaf mér líka fínustu kápu í heimi
við fórum aftur á kollabúðir því strákarnir ætluðu á gæs og við hans röltum inn dalinn og í gilið.. kollabúðir eru alveg amazing í haustlitunum og við sýndum sissa hvar hann ætti að veiða lax (sem hann svo gerði)


október
ég snorklaði í silfru með gömlu vinnunni minni

það er alveg geggjað og ég mæli með því fyrir hvern sem er að prufa.. það er alveg annar heimur þarna niðri
og svo fórum við á hestbak líka og hesturinn minn var með ýkt fínt hár

ég fékk að vita að ég er með ofurheyrn og við hans vorum dugleg að mæta í jóga!!
ég umpólaði, sagði upp í vinnunni og skrifaði undir í nýrri og fattaði að anna kristjáns er nýja katrin.is

nóvember
systur opnuðu búðina sína og af því tilefni birtust myndir af mér í 3 blöðum. ÞREMUR! hafðu þetta anna! i was totally back in the game
gullna setningin "það búa sko hooommar hérna fyrir ofan og neðan" heyrðist og ég dó úr hlátri
við rex unnum tvíliðaleikinn á iceland express international sem var osomm

jólaplatan okkar hansa kom út


desember
sissi bauð mér með sér á hótel búðir sem var frábært fyrir utan að það var dúfa og dúfnagljái í matinn he he..

hann gaf mér reyndar líka heilan dag í laugum spa sem ég notaði í des.. very nice..
ég heimtaði við myndum jólaskreyta njallann almennilega.. fyrstu jólin okkar saman sem sambúðarfólk hmm eins gott að skreyta vel! (þegar þessi mynd er tekin er ég rétt að byrja)

ég rak litlu tána svo fast í að ég hélt hún hefði rifnað af og er reyndar ennþá illt í henni..
við skreyttum tréið alltof snemma af því við vorum að fara út strax eftir jólin og keyptum okkur fínasta ljós sem ég veit um
flutti restina af draslinu mínu úr íbúðinni minni og því alflutt út frá eiginmanninum yfir til kærastans... (haha það er eins og ég sé ekki með hendur!! ég ER með hendur, þær eru bara í vasanum)

fann upp q7 hagfræðikenninguna og borðaði rosalega mikið af góðum mat
fór til noregs að æfa mig á bretti í fína nikita gallanum mínum

apamamma pungaði út iðunni (vel gert!!)

og rexið varð í 3. sæti í íþróttamanni ársins þannig desember varð helvíti viðburðarríkur sem og allt árið

gooooott ár!!

kl. 23:38 | holla ( 12 )
desembermyndir
búðir

heima

kvisthagi

kvisthagi

norefjell

noresund

bestumåsen

kl. 22:57 | holla ( 2 )
19.
jan

( 2008 )
vá komin sönnun á að það eru fávitar í tollgæslunni
það er alveg fáránlegt hvað maður lendir í miklum óþarfa dónaskap og leiðindum í tollgæslunni hérna heima.. hef hvergi annar staðar upplifað þetta og ég veit það er til ógeeeðslega mikið af fólki sem er sammála mér

kl. 23:17 | holla ( 8 )
ohhhh íslenskt sjónvarp er að ná nýjum lágpunkti
steve irvin með dýrastuntið úr jay leno er komið í íslenskt sjónvarp
einhver kona með geit er að láta hana gera stunt fyrir ragnhildi steinunni

kl. 21:18 | holla ( 3 )
ég kom einu sinni með þá hugmynd, tengda idol, að það væri miklu skemmtilegra að kjósa það út sem maður fílar ekki, frekar en að kjósa skemmtilegt áfram

það myndi virka rosa vel fyrir mig núna, ég myndi kjósa öll lögin út OJJJJ

kl. 21:00 | holla ( 1 )
ég er með einhverja sjálfseyðingarhvöt
ég er búin að horfa á handboltaleik (með öðru auganu), hálfa spaugstofu (mig langar að vita, eru þessir gæjar í alvöru alveg "hey ÞETTA er fyndið.." þegar þeir eru að búa til atriði?)

og svo núna er ég að horfa á laugardagslögin.. shiiii ekki góður þáttur
gæinn þarna whatshisface sem stýrir þessu er mad leiðinlegur og ragnhildur steinunn er miklu skemmtilegri í bíómyndum (þegar er búið að segja henni hvað hún á að segja..?) og þessi lög..?? OJ! og viðtöl við lítil börn..

eina skemmtilega við þetta er erpur.. mér finnst hann mega skemmtilegur í sjónvarpi, alveg steiktur en hefur endalaust mikið að segja, og þá er hann alveg að tala eitthvað sem meikar sens og setur það mjög skemmtilega fram
áfram erpur

af því tilefni ætla ég að pósta þessu vídjói sem inniheldur ma erp


djöfull er rúv LEIÐINLEGT!

kl. 20:45 | holla ( 3 )
og er enginn búinn að spyrja ÍFÍ hvað þeim finnst um þessa innflytjendur sem eru búnir að taka landsliðssæti af íslendingum???
kl. 18:45 | holla ( 8 )
fokk hver er dj á þessum handboltaleikjum?

handbolti er töluvert skárri á mute

kl. 18:29 | holla ( 1 )
18.
jan

( 2008 )
stebbi freyr kemur með mjög langdregna og leiðinlega (ólíkt öðru sem hann hefur skrifað, þar sem hann kemur sér beint að kjarna málsins ) grein um moggabloggvini

fyrir mér er það í sjálfu sér ágætis útlistun á því hvernig samfélag moggabloggara er að mínu mati

(þarna náði ég að setja tvo uppáhalds frasana hans í sömu setningu "í sjálfu sér" og "að mínu mati")


fullorðið fólk að safna "vinum" sem það hendir svo út þegar það er ekki nógu duglegt að kommenta.. jebus

kl. 17:51 | holla ( 12 )

ég var í bíó gaman með hansa gaman ég er heima núna á morgun alltaf að vinna núna já gaman

(shit meikaði ekki signaturið, bad karma)

persepolis er FRÁBÆR! ótrúlega vel gerð og skemmtileg mynd með allskonar sniðugum leynifídusum

kl. 00:13 | holla ( 4 )
17.
jan

( 2008 )
ég á ekki flatskjá en mig langar samt alveg í..
fyndnasta ástæða sem ég veit um til að kaupa sér flatskjá er "sparar svo mikið pláss"

ætlaru að búa til herbergi úr öllu plássinu sem sparast?


kl. 19:29 | holla ( 10 )
16.
jan

( 2008 )
fokk one tree hill
ég er að horfa á my so called life!

það eru vangefið góðir þættir.. ég man ekki neitt frá því ég horfði á þetta síðast nema hvað mér finnst jordan catalano ógeð sætur

hann missir samt aðeins sjarmann núna í seinni tíð þegar maður kemst að því að hann kann ekki að lesa...

eigum við samt að ræða hvað er orðið af honum í dag??

djók þetta voru óþarfa leiðindi.. þetta er úr myndaseríu sem terry richardson tók af honum eftir að hann þurfti að buffa sig upp fyrir eitthvað hlutverk..

svo fór hann i hljómsveit sem heitir 30 seconds to mars eða eitthvað þannig og fór að taka gotharann alvarlega


jamm hann var klárlega bestur sem jordan catalano

kl. 21:32 | holla ( 14 )
oh verkfall handritshöfundanna fer í taugarnar á mér
mikið!!!!

annað sem fer í taugarnar á mér að þó það sé 3 hæða bílastæðahús við nýju hreyfingu, þá leggja allir ólöglega og meðfram veggnum þannig það verður ýkt þröngt á hæðinni við innganginn svo það þurfi ekki að labba auka 50m í gymmið.. það væri nú aaaaalveg til að fara með fólkið

kl. 00:05 | holla ( 7 )
15.
jan

( 2008 )
ég var að gúgla sjálfa mig.. skemmtileg iðja sem ég hef ekki stundað nýlega og rakst á svo fína sögu sem atli fannar skrifaði árið 2003.. við atli erum fínir vinir í dag og myndum ekki lenda í þessu vandræðalega mómenti aftur.. líka af því ég stíg ekki fæti inná KFC lengur

fann líka komment frá þórdísi sem var á þessa leið:
"Þessi Katrín er leiðinlegasta bloggaragerpi á jörðunni og þótt víðar væri leitað. Hún hlýtur að fá martröð á hverri nóttu yfir að þurfa að vera í samvistum við sjálfa sig allan sólarhringinn."

mér finnst ágætt að vera ég en mér sýnist tilvera mín hafa eitthvað verri áhrif á þórdísi.. vona samt að hún fái ekki martraðir á nóttinni yfir að þurfa að anda að sér sama lofti og ég allan sólarhringinn

mhemhemhe

kl. 20:15 | holla ( 8 )
apple eru svo amazing
eigum við að ræða macbook air?

kl. 18:55 | holla ( 7 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox