
29.
sep
( 2007 )
ég borða ekki mikið af hamborgurum af því ég er ekkert voðalega hrifin af þeim, en þegar það gerist þá er það annað hvort eitthvað heimagrillað eða búlluborgari
heimagrillaðir af því maður getur stíliserað þá sjálfur og búllan af því mér finnst það einu góðu hamborgararnir, og þeir eru líka alveg rosalega góðir.
í gærkvöldi fékk ég brjálað kreivíng í búlluborgara eftir æfingu en var 10mín of sein svo það var búið að loka þegar ég kom.. ég var svo fáránlega svekkt að ég fór næstum að gráta og borðaði ekkert í kvöldmat, sem var vond hugmynd og varð til þess að ég drakk 1,5L af powerade í dag en það er önnur saga
til að bæta mér þetta upp droppaði ég við á búllunni áðan til að pikka með mér lítinn ostborgara og litlar franskar.. ég var í yonex galla sem ég ætla að vera líka í á morgun og nýbúin í sturtu þannig ég meikaði ekki að bíða inni og stinka eins og hamborgari svo ég spurði bara hversu langan tíma þetta tæki og settist svo útí bíl
eftir 5 mín kom strákurinn sem vinnur þarna út með hammarann og fröllurnar handa mér! veit ekki einu sinni hvernig hann vissi að ég væri að ég sat útí bíl að bíða
besta þjónusta sem ég hef vitað á ævinni, ég elllllska búlluna!
kl. 20:45 | holla ( 13 )
26.
sep
( 2007 )
ókey ég er enginn fan af evrópuhippum sem mótmæla, en þeir trufla mig heldur ekki mikið
frekar hefði ég viljað sjá portúgalska ógeðisnauðgarann vera vísað úr landi
en gott að forgangsröðunin er á hreinu hjá yfirvöldum hvort sé alvarlegra....nauðga konu eða mótmæla stóriðju.
ps hans orri er bestur
kl. 13:15 | holla ( 0 )
21.
sep
( 2007 )
Ójá ég verð á kollabúðum alla helgina að sofa og lesa og borða gott og kannski veiða ef það verður ekki rok og kalt. Góða helgi!
kl. 19:40 | holla ( 0 )
20.
sep
( 2007 )
fólk er oft eitthvað að pirra sig á því þegar sagt er að mikið klámgláp hafi vond áhrif á fólk og ýti undir ofbeldi á konum..
það kemur fram í dómnum um manninn sem var dæmdur fyrir hrottalega og grófa líkamsárás/nauðgun um daginn (hún var það illa farin að ekki var hægt að skoða hana með eðlilegum hætti og hún gat ekki gengið og fleira), að hann horfði mikið á klám, var með klámmyndir á borðinu og sagðist ekki eiga neitt annað að horfa á..
alla vega, hann lýsir atburðinum svona:
Kærandi hafi farið að afklæða sig, en ákærði hafi ekki afklætt hana. Hún hafi slökkt ljósin, en ákærði enn verið klæddur. Hafi þá ákærði afklætt sig. Þau hafi lagst í rúmið og hún hafi hafið munnmök.
Hún hafi verið kynferðislega æst og hafi tennur hennar meitt hann og hafi hann beðið hana að vera rólega. Hún hafi svo viljað leggjast ofan á hann en hann hafi beðið hana að vera rólega, því að ákærði hafi viljað ná í smokk. Hafi hún ekki verið hrifin af þeirri hugmynd. Ákærði hafi opnað smokkinn og sett hann á sig.
Hún hafi verið ofan á ákærða og hafi þau hafið samfarir. Hún hafi verið með fingur sína í kynfærum sínum og viljað að ákærði setti fingur sína þar. Hún hafi viljað gera þetta allt mjög hratt.
Hafi hún beðið ákærða að taka fast um þjóhnappa hennar og slá í rass hennar. Hafi hann gert það. Hafi þau svo skipt um stellingu, hún hafi lagst á fjóra fætur og þannig hafi samförunum lokið.
Ákærði kvaðst ekki hafa beitt hana neinu ofbeldi meðan á þessu stóð. Það sé ein af þeim lygum sem hún hafi haldið fram. Ef um eitthvert ofbeldi hafi verið að ræða, hafi það verið af hennar hálfu.
Ákærði var beðinn um að skýra hvað hann ætti við með því, og kvaðst hann þá helst meina það að hún hafi verið svo kynferðislega æst og hennar vilji til kynmaka hafi verið meiri en hans.
Hann hafi svo farið á salernið og þar hafi hann tekið af sér smokkinn og þrifið sig. Þegar hann kom til baka, hafi kærandi verið að reykja. Þar sem hann leyfi það ekki í sínu herbergi, hafi hann bannað henni það. Hún hafi ekki verið sátt við það og hafi hann farið á klósettið og slökkt í sígarettunni. Hún hafi sett upp svip þegar hann bað hana um að hætta að reykja, ,,svona svip eins og sá setur upp sem ætlar að berja mann“.
finnst engum öðrum þetta líta út eins og eitthvað fantasíuklámatriði í hausnum á honum?
kl. 18:54 | holla ( 4 )
19.
sep
( 2007 )
óvissudagurinn minn var bestur
ætla svosum ekkert að fara í hann í details en við fórum í sólheimajökul.
þegar sissi var að leita að þjóðverjunum spurði ég hann hvenær hann ætlaði að fara með mig á jökul og á sunnudaginn uppfyllti hann þá ósk mína
að fara á jökul er eiginlega ólýsanlegt.. þetta er eins og að fara í einhvern annan heim.. landslagið er svo skrítið og svo öll hljóðin, lækir og dropahljóð og allskonar.. alveg geðveik upplifun
hann byrjaði á því að reima á mig svona brodda og kenna mér að labba á þeim.. það er nó djók að reka broddana í buxurnar eða detta á jökli því þú rennur bara þar til þú ferð niður ef þú kannt ekki að redda þér.

veðrið var geggjað, sól og logn, en það er samt drullu kalt þarna uppi ef maður er eitthvað að stoppa þannig jakkinn og flíspeysan sem ég fékk í afmælisgjöf frá mömmu og pabba kom að góðum notum (ég er orðin svo mikill útivistarnölli!)
útsýnið er líka svo geggjað, grænt fjall bara rétt hinu megin við eldgamlan klaka og ís


hann kenndi mér svo líka hvenrnig ég ætti að stoppa mig með ísexi ef ég skyldi detta, sem betur fer kom ekki til þess

við röltum svo eitthvað áleiðis uppeftir og sáum allskonar sprungur og göt og svelgi, ekkert smá ógeðslega ógnvekjandi og línan "í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur" kom í huga minn

enda hætti ég mér ekkert sérstaklega nálægt svoleiðis þó hann sissi minn sé aðeins brattari (enda töluvert vanari)

hann fann svo fyrir okkur einhvern stað þar sem hann gat leyft mér að prufa aðeins að ísklifra
svo hann sólóaði þarna upp til að koma fyrir tryggingu handa mér (he he ógeðslega pró í lingóinu)


það var rosalega gaman að prufa og mig langar að prufa meira og erfiðara seinna, þó mér finnist voða lítið gaman að síga.. eitthvað sem maður þarf barað æfa sig í og læra að treysta:)


eftir þetta fórum við að drangey dyrhólaey (ekki í eyna sjálfa samt) þar sem við ætluðum að reyna að finna lunda, en fundum engan.. en í staðinn var sissi með sörpræs pikknikk, heitt kakó og bakaði fyrir mig amerískar pönnukökur á prímus, óóótrúlega frábært eftir 4klst hangs á jökli
útsýnið þarna er líka alveg geðveikt í allar áttir, frábær staður að vera á í pikknikk






við enduðum svo kvöldið á sjávarkjallaranum í exotic menu
besti dagur ever
uppfært: besta við sjávarkjallarann var samt að ég gat farið í ó svo fínu nýju kápunni minni sem hann gaf mér í afmælisjgöf
og gaui þarna sérðu loksins myndir eftir mig, eftir að ég fór á námskeiðið
kl. 18:34 | holla ( 13 )
17.
sep
( 2007 )
óvissudagurinn var óóótrúlegur
fer betur út í hann við tækifæri, er of södd núna
en hérna er tvær

kl. 00:35 | holla ( 5 )
15.
sep
( 2007 )
hér er ég í lok dags, aðeins ferskari en í morgun, búin að fá gesti og fullt af ó svo fínum gjöfum

(ég varð bara að sjá hvort ég væri búin að eldast mikið yfir daginn)
þetta er búinn að vera besti afmælisdagur EVER og svo er sissi að fara með mig í óvissuferð á morgun..spennóóóó!
takk allir fyrir kveðjuna, mér finnst ekkert smá frábært að vita af því hversu marga vini ég á sem hugsa til mín á afmælisdaginn minn
og sara, ónefndi fiskurinn heitir núna sleggjan
kl. 20:50 | holla ( 4 )
hér má sjá apamömmu, nývaknaða á 27 ára afmælisdaginn, með eitt besta móment 26 ársins í bakgrunni, þeas landsliðsæfingu í höllinni, áður en við urðum evrópumeistarar

(óskar, er pósane kki betri en hjá nas? he he)
eigið góðan dag, ég veit minn verður góður
kl. 10:53 | holla ( 18 )
14.
sep
( 2007 )
í dag á nas afmæli.. sem er alltaf góðs viti
því það þýðir að á morgun á ÉG afmæli!
kl. 12:02 | holla ( 9 )
ljósmyndanámskeiðið var miklu skemmtilegra í kvöld
bara samt af því ég fékk að vera módelið í stúdíótímanum.. geðveikt að láta 10 amatöraljósmyndara taka af sér nokkrar myndir hver og fá svo að horfa á þær allar á tjaldi á morgun
djók,
mér finnst betra að taka myndir af mér sjálf
aftur djók
ég tók samt mjög fínar myndir af gsm finnst mér.. ég fer að hlæja í hvert skipti sem ég kíki á eina þeirra.. set hana kannski hérna inn við tækifæri hehe
kl. 00:00 | holla ( 3 )
11.
sep
( 2007 )
ég og gsm byrjuðum á ljósmyndanámskeiðinu í gær
það er reyndar langt síðan ég hef verið í tíma þar sem yfirferðin er höfð á þeim hraða að greindarskertir geti pottþétt meðtekið allt sem fer fram, og þá er ég að tala um mjög mikið greindarskerta.. þá er ég eiginlega bara að tala um að þessir tímar gætu verið helmingi styttri
eða sko ég er ekki að tala um að hinir á námskeiðinu séu greindarskertir heldur erum við bara vön hraðari yfirferð.. eða þú veist..það væri sem sagt hægt að vera töluvert greindarskertur þarna og samt ná öllu sem fram fer
en mjög fróðlegir engu að síður!
gullna setningin var samt "ó nei ímyndaðu þér klukkutímann sem fer í að kenna á tölvur"
ég hlakka ógila til að farað æfa mig
kl. 16:59 | holla ( 3 )
jésús ég fór í svo vont skap áðan
ég rölti að finna sorphirðu reykjavíkur til að láta þá hafa lykil svo þeir geti látið mig fá bláa tunnu.. nema hvað að ég labbaði fullt á skúlagötu og FANN Það ekki! og svo fór að rigna á mig og ég átti svo bágt, mér fannst ég vera umkomulausasti einstaklingur í öllum heiminum þannig ég datt inní kisuna og keypti mér ó svo fallega húfu þannig lundin léttist smá
svo gaf ég agli fimmuna, við 101ararnir þekkjumst allir, þið vitið hvernig þetta er.. svona eins og í litlum þorpum..
svo núna er ég orðin mega hress, ný húfa og fimma, skotheld lundarlétta
kl. 12:57 | holla ( 3 )
8.
sep
( 2007 )
í gær sá ég veðramót
hún er frábær! mér finnst vandræðastelpurnar standa sig fáránlega vel í myndinni, i dig them!
við keyptum okkur 5 fiska í búrið í dag og veggfóður á bakið, ætlum að kaupa okkur svona 2 í viðbót og þá er allt orðið fullkomið! fer samt að setja inn mynd af því, það er ó svo fínt og það er ótrúlega gaman að horfa á þá
kl. 17:38 | holla ( 4 )
6.
sep
( 2007 )
oj ég er orðin jafn skipulögð og dani
ég er búin að kaupa afmælisgjöf handa paprikunni og hún á ekki afmæli fyrr en í desember!
annars mætti einhver fara að klippa niður þessar kirkjuklukkur sem bögga mig allan daginn.. í vinnutíma er það dómkirkjan og á kvöldin hallgrímur eða landakot, fer eftir hvort ég rúlla á heimili 1 eða 2
ój ógeðslegur tuðari.. ég fór dáldið vitlaust frammúr í morgun nefnilega, það er verið að gera upp íbúð í húsinu mínu og þrollarnir voru byrjaðir að negla og bora klukkan korter yfir átta! ég sem ætlaði að leyfa mér að sofa til hálf 9 svona einu sinni
kl. 13:02 | holla ( 4 )
4.
sep
( 2007 )
jájájájá nú eru breyttir tímar
september byrjaður og badmintonið hætt að vera eitthvað sumardútl og ég er með harðsperrur allstaðar..
svo hef ég líka ákveðið að auðga andann í vetur og lesa meira og er þess vegna að lesa sálminn um blómið, hún er frábær!
svo á mánudagnn byrjar ljósmyndanámskeiðið sem við g-stone erum að fara á
og á þriðudaginn byrjar jógað sem við hans erum að fara í
ég geeeet ekki beðið eftir að þessi ööömurlega vika endi! (hún er samt bara ömurleg útaf veðrinu)
kl. 23:16 | holla ( 5 )
2.
sep
( 2007 )
ég fór í gær á sprengjuhallartónleikana sem var ó svo gaman og ég hef ekki hlegið jafnmikið síðan á ítalódiskókvöldinu af því hans sagði "he´s got the moves"
ó guð þetta er nýja "hver er silfurrefurinn"
kl. 23:35 | holla ( 7 )
1.
sep
( 2007 )
oh við sissi erum svo mikil brangelina
við eigum núna indverska stelpu og íslenska hommsu sem komu með mér inní sambandið en sissi hefur tekið eins og sínum eigin, pakistanskan strák og 2 gullfiska.. það er samt pláss fyrir 8 þannig við eigum eftir að fá okkur fleiri
set mynd af þeim þegar búrið er tilbúið!
kl. 19:20 | holla ( 5 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní