Katrín.is
26.
jún

( 2007 )
ég er farin til hollands... ég er búin að hlæja svo oft af þessu vídjói af frænda mínum, hann er reyndar orðinn töluvert stærri núna og myndi sennilega vera klæddur í einhvern íþróttabúning ef þetta væri tekið í dag


kl. 00:03 | holla ( 6 )
24.
jún

( 2007 )
ég fór í fyrsta skipti út í gær eftir að reykingabannið tók gildi
ég er að elska það, mér finnast reykingar svooooo ógeðslegar!
og hvert er líka málið með sóðaskapinn! reykingafólk er alltaf að henda stubbunum bara á götuna og líka margir hverjir hrækja krónískt meðan þeir reykja.. oj hrákur.. og enn meira oj eru hor hrákur ojjjjjjjjj

öss hvað það gekk vel hjá mér og fífu í gær að fara á esjuna, bara helvítis strekkingur á toppnum! betra líka að þegar við mættum var hoppikastali, þyrlur og einhver esjudagur he he..

hans benti mér á í dag að ég þarf að vera með verulega sterka sólarvörn í thailandi þar sem ég er brunnin á leggjunum eftir gærdaginn.. svalirnar mínar eru bara svo mikill pottur mang!

annars eru bara 2 dagar í holland.. það verður erfitt en alveg pottþétt skemmtilegt

kl. 22:37 | holla ( 10 )
23.
jún

( 2007 )
nææææææs!
ég er búnað eyða svona klukkutíma í að worka tanið á svölunum.. hans kemur nebla heim frá ítalíu á eftir.. hann er búnað vera þar.. u... í hvað er virðist að eilífu! hlakka svo til að fá hann aftur

núna er ég að fara á esjuna með fífu (ég er ekki að púlla netkærastann og láta alla lúmskt vita hvar ég er he he) en svo verður grillað í kvöld og kannski kíkt út..

ég fór líka í klippingu í gær, ég elska klipparann minn, hann nær alltaf að gera eitthvað nýtt twist í hárið á mér!

njótið helgarinnar!

kl. 12:29 | holla ( 2 )
22.
jún

( 2007 )
hvernig kom alltíeinu helgi???
sjii hvað tíminn líður hratt.. ég á 2 vinnudaga eftir þar til 25. júlí

ég er svo massabissí að ég hef ekki einu sinni tíma til að horfa á þættina sem ég horfi venjulega á.. dúndraði öllu sem ég átti eftir að horfa á í lappann minn sem ég ætla að taka með mér til hollands.. niiiiice

kl. 14:55 | holla ( 0 )
21.
jún

( 2007 )
ég sé að ég þarf að ferðast eitthvert langt næsta sumar líka til að nýta allar þessar bólusetningar.. ekkert smá dýrt sji!!

annars erum við komin með smá outline á ferðina.. ætlum að byrja í koh tao

mér finnst skemmtilegra að skoða myndir á flickr en í google myndum..
myndir frá koh tao

kl. 16:15 | holla ( 9 )
20.
jún

( 2007 )
rétt upp hönd sem heldur að sami hafi búið til vefinn fyrir körfuboltadeild kr og fyrir málningu hf

(ps. pant ekki fá ec web til að gera vef fyrir mig)

kl. 15:50 | holla ( 13 )
ég á 6 ára bloggafmæli í dag

gjafir engan veginn afþakkaðar

kl. 08:38 | holla ( 19 )
19.
jún

( 2007 )
hey ég fór í blóðbankann með gunnari steini.. við erum nefnilega bæði í svo kúl blóðflokkum, hann í AB og ég í O-

ég reyndar var ekki að gefa, bara í svona fyrstu heimsókn, og má ekki gefa í hálft ár eftir að ég kem frá thailandi.. ég á samt eftir að mæta þá og gefa, aumingja litlu börnin sem þurfa blóð..

og til hamingju með daginn!

kl. 09:38 | holla ( 14 )
18.
jún

( 2007 )
ég hef ótrúlega gaman af því að fylgjast með úllíngatísku.. hún er svo ýkt skrítin oft og allt öðruvísi en fullorðinstíska..

í gær reyndar var þetta frekar óþægilegt og ég er búnað ákveða að mín börn (muni ég eignast einhver) mega ekki fara ein í bæinn á 17. júní fyrr en þau eru orðin 18..

ég sá í gær að náttbuxur eru út en feik tan, aflitun eða svart hár, pils rétt niður fyrir rass og eitthvað sem sýnir klíviddsj er inn hjá stelpum

feik tan, aflitun eða svart hár og einhver mad skrítin klipping þar sem toppurinn er sleiktur niður og svo hnakkinn ýfður svo það líti út fyrir að vera hreiður á kollinum er inn hjá strákum..

kl. 16:47 | holla ( 14 )
rosalega er erfitt að byrja daginn ekki á starbucks!
kl. 11:19 | holla ( 6 )
14.
jún

( 2007 )
ég nenni ekki að segja hvernig er búið að ganga en ég get sagt ykkur hvernig hóteli við lentum fyrst á.. nei það var hostel.. sko herbergið okkar rex var eins og teppalagður fangaklefi.. þannig við færðum okkur á fínt hótel og núna deilum við ragna rúmi með eina tvöfalda sæng sem er mjög kósí og maður fær þá minni heimþrá

fyrst var líka ógila heitt og maður var krónískt sveittur.. enginn samt sveittari en þjálfarinn okkar.. núna er samt dáldið kalt og rok..

ég hefði samt ekki trúað því hvað fólkið hérna er feitt.. ég held svona 90% kvenna hérna séu með vömb.. það eru líka búnir að vera krakkar að glápa á leikina og þeir eru næstum allir of feitir.. áhugavert..

á morgun er samt síðasti leikurinn okkar, við tyrki.. en það eru einhverjir rúmors um að þeir ætli ekki að mæta.. á laugardaginn fer ég svo að hitta söru mína fínu!!

kl. 19:11 | holla ( 5 )
9.
jún

( 2007 )
það sem stóð uppúr í gær var
* þegar konan í eymundson spurði gsm hvort hann væri að vinna þar
* þegar lygamælirinn sagði ég væri strákur, með typpi og léleg í badminton
* þegar bjarki steig á reimarnar sínar á æfingu og hrundi í gólfið
* þegar halldóra rössaði í fésið á mér og ég fékk kúlu inní vörina og leit út eins og fááááááviti!

annars er þetta næst:


þeas ferð með landsliðinu.. læt það vera að við vinnum núna þar sem við erum að farað keppa á HM (heitir sudirman cup).. og ef einhver er í glasgow þá er velkomið að koma og horfa á okkur!

kem aftur 17. júní og minni alla á að sjá tóta trúð þá.. í alvöru, það er mad sniðugt!

kl. 22:12 | holla ( 4 )
8.
jún

( 2007 )
ég fór og horfði á úllínga keppa í fótbolta í gær sem var ekki nógu gott því mitt lið vann ekki (kann ekki að meta jafntefli).. en einn pabbinn átti gott múv á hinn þjálfarann (sem var að hegða sér alveg eins og mongó) þegar hann sagði við hann "farðu bara uppí grafarvog ef þú getur ekki sýnt fordæmi".. aahh mér fannst það alla vega fyndið..

for the record þá var téður þjálfari ekki ingvi

svo fór ég áðan með sæta fína góða sigurjóni í hádegismat áðan og við plönuðum heimsyfirráð.. bíðið bara og sjáið



kl. 14:11 | holla ( 3 )
7.
jún

( 2007 )
bibbi: er ekki til ráðstefna fyrir viðskiptafræðinga sem enduðu í forritunarvinnu?
ég: jú hún heitir visual basic ráðstefna
gsm: já eða ég held að excel sé gagnagrunnur ráðstefna

3 dagar í súdda.. 4 dagar í ylfu heim!

kl. 13:34 | holla ( 3 )
4.
jún

( 2007 )
nú hef ég gaman að fínni götulist.. fínt graffiti og stöff eins og husk mit navn er að gera í köben er hot sjitt..

ekkert fer samt meira í taugarnar á mér en forheimskir slefandi ógeðis úllíngar sem tagga á allt og ekkert.. fokk það að gera það á opinbert stöff en þegar þeir eru farnir að klína sínu taggi á húsið mitt og annarra, þá verð ég massa pirruð..

ég meika ekki að birta mynd af þessu þar sem ég nenni ekki að eiga á hættu að fá skrilljón sinnum meira sprey og úllíngahrákur með, en þegar ég kemst að því hverjir omen og rase eru, þá hringi ég í mömmur þeirra og læt þær koma og mála yfir þetta

kl. 16:16 | holla ( 4 )
bissí helgi að baki mang!!

á föstudaginn eftir vinnu, fór ég í óvissuferð.. við enduðum á þingvöllum í ratleik og mitt lið vann.. (auðvitað).. þaðan fórum við svo á úlfljótsvatn og fengum grillmat.. ég hef töluvert ofnæmi fyrir hávaða og fékk sting í magann við tilhugsunina um að fara í rútunni til baka með tilheyrandi gítarpartý og mega látum þannig ég plataði sissa í að koma og pikka mig upp.. mjehe.. heppin.. það var samt mjög gaman sko..

á laugardaginn varð ég alltíeinu massagömul því mér var boðið bæði í brúðkaup og þrítugsafmæli.. reyndar er þetta tvennt eitthvað sem ég hlakka mikið til að upplifa sjálf.. brúðkaupið var ó svo fínt og afmælið hennar slaugu var geggjað!nýja húsið hennar er svo flott, ég hef aldrei komið þangað áður, og pallurinn er ýkt kósí.. svo kom líka leynigestur sem var snilld!

ég gat reyndar ekki verið neitt mega lengi þar af því ég átti rástíma kl 10 í gærmorgun í oddi.. ókei.. golf var klárlega ekki fundið upp í láréttri rigningu.. brrrr við gáfumst upp eftir 13 holur.. hvert er málið með veðrið þessa dagana??
í gærkvöldi buðum við svo góðum vinum í mat.. erum eða reyna okkur áfram í matchmaking skiluru.. veit ekki hvort það hafi kviknað neisti milli hansa og gsm en maturinn var tótallí osomm! ég er eiginlega ennþá södd.. samt slepptum við eftirmatnum!

6 dagar í súddann!!

kl. 10:11 | holla ( 20 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox