eg er ad upplifa vonbrigdi arsins.. norski kongurinn er med raedu i sjonvarpinu og er ekki med koronu, ekki med rauda flauelisskykkju med svona hvitu lodi og svortum doppum og ekki med sprota!
hann var bara i svortum jakkafotum og med svarta slafu.. foj!
kl. 18:55 | holla ( 4 )
mig langar ad skrifa rosa finan aramotapistil med myndum og svoleidis en thad verdur ad bida thar til eg kem heim... thad gerdist nefnilega svo rosalegt margt a arinu!
thannig i bili tha oska eg ykkur bara gledilegs ars og takk kaerlega fyrir gamla
kyssikyssi
kl. 15:20 | holla ( 6 )
30. des ( 2007 )
sigurjón bloggaði um technoviking einhvern tíman og ég var að rifja upp þetta vídjó áðan
hann er amaaaaaazing!
kl. 00:42 | holla ( 4 )
28. des ( 2007 )
það er bara eitthvað of fyndið við að vera svo gráðugur á jólunum að maður hámi í sig borðskrautið líka
kl. 22:17 | holla ( 2 )
eftirmiðdeginum eyddi ég í norefjall..
sissi setti mig í pössun hjá einhverjum ljóshærðum úllíng meðan hann renndi sér í stóru brekkunum.. ef þessi úllíngur hefði verið svona 5 árum eldri hefði hann ábyggilega ekki týmt að skilja mig eftir hjá honum
grín
en 45mín seinna kom sissi til baka og þá var ég búin að læra að taka diskalyftu og beygja í báðar áttir og úllíngurinn var alveg amazed yfir hvað ég væri klár og dugleg.. æfði mig svo bara aðeins meira í því það sem eftir lifði dags... sem var reyndar ekkert rosalega lengi því skíðasvæðin hérna loka kl hálf 4..
en sko bara til að hafa það á hreinu, að þó ég sé kannski ekki með flottasta stílinn á svæðinu (ennþá) þá lúkkaði ég best allra, ég á sko svo flottan nikitagalla að mig langar að nota hann í vinnunni
eigum við samt að ræða það hvað ég er mikið nörd? rankaði við mér þar sem ég sat efst í brekkunni, með snjóbretti á fótunum að lesa morgunkorn glitnis í símanum mínum..
til að ég gæti verið pinku duglegri að æfa mig og sissi hitað upp fyrir heliskiingið sem hann er að fara í eftir áramót, þá ákváðum við að næla okkur í gistingu hérna fyrir neðan fjallið í stað þess að keyra heim og svo aftur í fjallið á morgun..
þetta er dáldið fyndið hótel.. voða gamalt og hjónarúmið er ekki hjónarúm heldur tvö rúm sett saman.. oj ógeðslega glatað.. og núna í setustofunni eru maður og kona sem eru sennilegast frá rúmeníu eða einhverju svoleiðis að spila skemmtaramúsík og syngja.. ég fattaði ekki fyrr en í hálfu lagi að þau voru að syngja á ensku og konan er í fötum af leoncie.. ótrúlega krúttleg!
hápunktur jólanna er samt við apamömmur erum ekki lengur bara tvær.. heldur erum við orðnar þrjár! oooooo hvað ég get ekki beðið eftir að sjá litlu apamömmu.. mig er líka búið að dreyma ylfu og davíð fullmikið síðustu daga, við erum búin að ganga í gegnum ýmislegt saman síðustu nætur, sérstaklega við davíð þar sem við lentum í rosalegri svaðilför í thailandi þar sem við þurftum að vaða einhvern ógeðslegan skítalæk sem varð svo alltíeinu voða djúpur og ég þurfta synda og var næstum drukknuð og allsonar.. spurning hvort þessir draumar minnki aðeins núna (ég var svo spennt sko)
næsti hápunktur var samt að rexið mitt var nr 3 í íþróttamanni ársins! hún er búin að gera svo ótrúlega hluti á árinu að hún hefði alveg mátt vera nr 1.. já hún er amk nr 1 hjá mér.. hún td átti stærsta hlut í að ísland varð evrópumeistari b þjóða.. varð 3faldur íslandsmeistari.. vann nokkur alþjóðleg mót og komst í úrslit í öðrum ooog er búin að vinna allskyns píur sem eru fyrir ofan hana á heimslistanum
og það með slitið krossband!
svona þegar ég skoða þennan afrekslista þá grunar mig að hún hefði verið nr 1 ef hún léki sér með bolta en ekki spaða og fjaðrabolta;)
fyrir utan að vera fáránlega detikeraður íþróttamaður sem leggur allt í að ná sínum markmiðum, þá er hún líka ótrúlega góð fyrirmynd utan vallar sem innan og ein besta (og auðvitað skemmtilegasta) manneskja sem ég hef kynnst
ég er ótrúlega montin af henni og heppin að eiga hana fyrir bestu vinkonu, þar hafiði það
kl. 21:43 | holla ( 8 )
26. des ( 2007 )
úff búin að fá aaaalltof mikið af fallegjum gjöfum, ég hef ekki fengið svona margar gjafir síðan áður en ég fermdist og borða aaaallt allt of mikið..
við erum að tala um (fyrir utan smákökurnar og konfektið og mönsjið) í gær var humar, hreindýralundir og krem brúlei (ég elska krem brúlei, það er uppáhalds eftirmaturinn minn) og í dag var hangikjöt í hádeginu og í kvöld smjörgrautur (uppáhalds grauturinn minn), rjúpur og ís.. og svo vann sissi nýtt trivial handa okkur í möndlu(smjör)grautnum sem við svo sigruðum restina af fjölskyldunni minni í með glans
á morgun er það osló og þar verður bara salat í öll mál framyfir áramót
kl. 02:46 | holla ( 6 )
24. des ( 2007 )
gleðileg jól allir vinir mínir og lesendur
vona þið hafið það ótrúlega gott yfir hátíðarnar
ég ætla núna að belgja mig út af hreindýri og meððí
kl. 17:33 | holla ( 7 )
fór aðeins að fylgjast með bilasolur.is þegar ég tók eftir því að allur pöpullinn var kominn á range og svo audi q7.. það er búið að vera pinku fróðlegt að fylgjast með þessu, sérstaklega eftir að markaðirnir fóru í fokk núna síðustu mánuði..
það eru td um 25 q7 sem eru 2007 módel eða nýrri á bílasölu
sko bílar keyrðir um 15þús km.. og ef þú ert að taka yfir lánin á þessu ertu að borga yfir 100þús kr á mánuði.. hver vill borga 100kr á mánuði af bíl??
ég myndi ekki kaupa mér 10milljóna bíl nema ég gæti staðgreitt hann (og átt samt ennþá fyrir 10 svoleiðis bílum í viðbót)
skil alveg að taka sér kannski 2mills í lán fyrir 4 mills bíl.. en að taka hvað.. 8milljónir í lán fyrir 10milljóna bíl finnst mér frekar kreisí
þannig það er algjörlega tíminn til að kaupa sér lúxusbíl núna eftir áramót ef þið eruð að spá í því mhemhehe
kl. 01:49 | holla ( 8 )
22. des ( 2007 )
2 dagar!!!
ég var samt helv öflug í dag. náði að flytja næstum alla restina af dótinu mínu úr ránargötunni minni sem er að fara í útleigu 1. jan.. úff hvað ég er búin að fresta því lengi að flytja þetta.. er nottla að fara til osló 26. þannig það var orðinn frekar lítill tími eftir
nú er draslið bara í pokum og kössum útí bílskúr og ég ætla að fara í gegnum þetta strax eftir áramót.. EINMITT
skemmtilegasta sem gerðist í dag var þegar ég var að keyra með mömmu og litla bró í garðabæ og við mættum jólasvein á rauðum bíl... hann var með rúðuna skrúfaða niður og vinkaði okkur útúm gluggann, ógeð gaman að hitta alvöru jólasvein!!
kl. 23:59 | holla ( 5 )
ég og sissi keyptum okkur svooooooo fínt ljós í dag, við viljum ekki að njálsgatan fari í jólaköttinm... það er svo fínt að mig langar bara að sitja við borðstofuborðið og borða.. eða hanga.. alltaf... ýkt ánægð að við vorum búin að plana matarboð í janúar!
skugginn af þessu ljósi er alveg insein, sést því miður ekki nógu vel á myndinni samt.... já ókei.. ég er MJÖG hrifin af nýja ljósinu mínu
svo er ég líka búin að gera eitt... spottiði það?
jeeeebb ég er búin að pakka inn öllum pökkunum!
ég er líka búin að fá eina gjöf.. eitthvað rosalega fínt rauðvín.. gaf sissa aðra flöskuna og pabba hina í von um að þeir gefi mér eitthvað fallegt í staðinn.. reyndar má geyma það í 25 ár þannig ég gæti kannski geymt það og séð til hvort ég verði byrjuð að drekka þá..
kl. 00:20 | holla ( 7 )
hegrinn minn er þá bara jóla eftir allt saman kl. 19:03 | holla ( 4 )
19. des ( 2007 )
ég er að svindla pinku.. er að skreyta tréð!
við verðum nefnilega ekki heima í viku strax eftir jól þannig maður þarf að geta notið trésins smá
ég elska jólatréskrautið mitt.. alveg sama þó vinum mínum finnist jólahegrinn, jólafiskurinn, jólagosi og jólaeskimóinn minn ekkert svo jólalegir he he
fínasta jólaskrautið er samt sem patience brewster gerir.. ótrúlega leiðinlegt að geta ekki keypt neitt eftir hana í jólatívolí þetta árið..
ég á svona kisu sem er pakki
kisu sem er jólatré og er með loðið skegg
og svo gaf hans mér núna krókódíl í hælaskóm:)
svo var ég alltaf að kaupa eitthvað svona fínt handa mömmu þegar ég bjó í köben og kom heim í jólafríinu.. djö hefði ég frekar átt að kaupa það handa mér.. grín
serían komin á, áfram með smjörið!
kl. 22:46 | holla ( 11 )
ohhh þessi rigning er farin að fara all verulega í taugarnar á mér
ég sá þetta allt öðruvísi fyrir mér.. ég gæti verið að rúlla í bænum í snjókomu í fínu kápunni minni og einhverjum fínum skóm, með sissa í annarri.. og einhverja búðarpoka í hinni..
í staðinn fer maður bara í eitthvað sem má blotna í gegn og skó sem maður týmir að fara í út í þetta ógeð og hleypur í mesta lagi útí bíl.. og fyllir enga búðarpoka..
en hangir annars inni og horfir á nip/tuck og brennir dagatalakerti og aðventukrans og drekkur jólate og ímyndar sér að það snjói úti..
kl. 21:56 | holla ( 5 )
ég er ekki alveg viss um að fólk geri sér grein fyrir því að laaaaang stærsta tekjulind björgunarsveitanna er flugeldasala.. restin er svo í formi einhverra smástyrkja
svona björgunarsveitafólk er lið sem tekur sér frí í vinnu til að hjálpa fólki, algjörlega ókeypis.. hvað voru ekki amk 300 manns að binda niður þök og stillassa og ruslatunnur og kisur og allskonar fyrir fólk í veseni?
svo fer það á fjöll og stofnar eigin lífi í hættu við að hjálpa fólki sem hefur komið sér í klandur.. og leitar í snjóflóðum þó það sé alltaf hætta á öðru flóði á sama stað og þannig.. og allt ókeypis..
svo kemur einhver jón jónsson og örn árnason og ætlar að selja flugelda, ódýrara en björgunarsveitirnar og hirða þar með af þeim hluta af þessari helstu tekjulind þeirra
vona það hafi rifnað af þak hjá þeim í síðustu viku og 10 björgunarsveitarmenn (sem nýttu sumarfríið sitt í að vesenast þetta) hafi komið og lagað það fyrir þá.. ókeypis
kl. 22:17 | holla ( 12 )
17. des ( 2007 )
táin hefur það ágætt takk fyrir að spyrja..
ég hélt hún hefði rifnað af.. án gríns, ég settist niður til að tjekka hvort það væri nokkuð lífvana litla tá, dinglandi inní sokknum.. sá hana fyrir mér lausa eins og súkkulaðirúsínu inní sokknum.. hún er samt sem betur fer enn föst á.. bara pinku rauð
í morgun gat ég svo ekki farið í skóna sem ég ætlaði að fara í og var hálf hölt fram eftir degi.. sat í vinnunni með svona verkjahjartslátt í tánni..
síðast þegar ég rak hana svona fast í að ég hélt hún hefði rifnað af.. var þegar ég rak hana í trjádrumb á strönd í thailandi.. hvaða fáviti skellir trjádrumb á miðja strönd.. og ígulkeri? og svo misjöfnum hellum á gangstéttum.. og þröskuldum hjá hurðum.. og of stömum marmaraflísum á flugvöllum.. og... og...sjit hvað ég rek mig oft í
kl. 21:50 | holla ( 6 )
af hverju er alltaf jafn ógeðslega vont að reka litlu tána í?? og af hverju gerir maður þetta alveg svona 1x í mánuði??
kl. 00:12 | holla ( 13 )
15. des ( 2007 )
þessi gæi er pottþétt skápahommi, annars hefði þetta ekki verið svona mikið vandamál
GAY??? ÉG GET EKKI VERIÐ MEÐ GAY
ÉG ELSKA SKO KONUR!!!!!
HEYRIÐI ÞAÐ?? ÉG ER FYRIR KONUR, EKKKIIII GAYYYYYY
ég var að koma úr roooosalegri skötuveislu
kæst skata, stöppuð við kartöflur með hamsatólg yfir
það var reyndar sagt við mig í vinnunni í dag að ég væri ekki týpan sem borðar skötu, það væru svona grófari týpur.. en ég er búin að borða þetta síðan ég var lítil og skatan í kvöld sú besta sem ég hef nokkru sinni fengið
fýlan samt! ég þrumaði öllum fötunum beina leið í þvottavélina og sjálfri mér í sturtu um leið og ég kom heim.. kvíði fyrir að fara í bílinn minn í fyrramálið
kl. 22:58 | holla ( 10 )
ég varð fyrir miklum vonbrigðum að sjá hvergi helga bjöss bregða fyrir á þessum myndum..
ég er montin systir þessa dagana..
litli bróðir minn var valinn í u16 úrtakshópinn
ég sé fyrir mér að hann verði frægur fótboltagaur einhverstaðar.. frekar í barcelona heldur en englandi samt af því þá verður skemmtilegra að heimsækja hann;)
kl. 09:02 | holla ( 4 )
12. des ( 2007 )
ég var samt eiginlega að rugla.. þetta hérna er klárlega uppáhalds jólalagið mitt
sérstaklega í þessari útgáfu!
kl. 21:29 | holla ( 7 )
ég var að ræða uppáhalds jólalög áðan og komst að því að það er ekkert sjálfsagt að fólk eigi sitt uppáhalds jólalag..
ég á tvö..
eitt kemur nú frá honum hansa mínum (BFF) og er þetta
ekki hugmynd um hvort þetta er upprunalega vídjóið en ég kann amk vel að meta þetta.. hamanahamana
og hitt er jól alla daga.. en það er samt aðallega af því pabbennar ylfu syngur það! ég fann vídjóið ekki á jútjúb (leim)
hver annar á uppáhalds jólalag??
kl. 18:56 | holla ( 10 )
11. des ( 2007 )
ef það væri til katrin.is merkt dót þá fengju matti og gaui derhúfur og handklæði fyrir að vera duglegastir að kommenta..
mary jane, óskar pétur og maja fengju öll katrin.is golfkúlur fyrir að vera næst duglegust
en fyrst það er ekki til þá fá þau öll bara rafrænt klapp á bakið
kl. 23:34 | holla ( 10 )
þar sem ég er svo mikið jólanörd þá hlusta ég oft á jólabylgjuna í bílnum.. þar á milli slæðist lag sem er leiðinlegasta lag sem ég hef á ævi minni heyrt..
það er svo leiðinlegt að ég er búin að ákveða að það hljóti að vera með luxor.. jésús þeir ættu þá heldur að reyna að gera út á "kynþokkann"
"ég er að tzala um þiiiiig"
hver segir tzala???
jésús þeir eru svo leiðinlegir að ég setti á mute þegar ég skoðaði mæspeisið þeirra til að forvitnast um þennan kynþokka sem þeir ætla ekki að gera útá... (kannski af því það er ekki í boði? ha ha ha)
kl. 18:33 | holla ( 14 )