
31.
júl
( 2006 )
vill einhver MRingur segja mér hvað hringurinn í kringum tjörnina er stór?? þeas í kringum þessa 2 stærstu hluta hennar..?
kl. 21:16 | holla ( 8 )
matti á afmæli í dag! ég óska honum innilega til hammara, hann lengi lifi því hann er svo frábær húrraaaaaaa
kl. 10:22 | holla ( 0 )
30.
júl
( 2006 )
vá það var svo næs veður í dag.. ég spilaði golf með mömmu og náði þeim fína árangri að þruma þremur upphafshöggum beint í glompu.. og ég á ekki sandjárn haha þannig á leiðinni heim kuffti mamma svoleiðis handa mér.. og nýjan bleikan hanska með K á sér því minn var orðinn svoldið blautur og skítugur...
lagði mig svo yfir golfinu í sjónvarpinu ohh það er of næs að sofa í mömmu og pabba sófa.. þangað til ég heyrði það var verið að tala um ófeig í sjónvarpinu þá varð ég mega hress "hey ég þekkjann!!" ég hélt með honum.. því miður vann hann ekki.. ég hélt líka með sætu stelpunni sem var í þriðja því hún var svo sæt
ég er líka mega ánægð með litla bró, þeir unnu val í dag 3-2 og litli snillinn minn skoraði öll mörkin, tvö beint úr aukaspyrnu, næsti beckham i tell ya!!
kíkti á klambratúnið með þeim öllum, svo komu ylfa og davíð jeij, annars var ég líka umkringd skemmtilegu fólki sem er gaman.. og smá fyndið
ég hlakka til að fara í vinnuna á morgun, þetter búin að vera svo skemmtileg helgi!
kl. 23:53 | holla ( 0 )
veitiggi af hverju mér fannst það góð hugmynd kl 11 að fara út að skokka... og svo var veðrið svo næs að ég skokkaði í klukkutíma.. núna get ég ekki sofnað og þarf að vakna kl 7...
zzzzz
kl. 01:20 | holla ( 1 )
29.
júl
( 2006 )
dem hvað það er næs í golfi, það voru samt svo margir að spila að við fórum bara á bása að æfa okkur, njöddi og valli voru þar mættir til að dást að okkur og reyna að læra eitthvað ha ha ha..
og dem hvað hundarnir og hvolparnir hennar rögnu eru það sætasta sem ég hef séð á ævinni
kl. 15:48 | holla ( 0 )
það var svo gaman í vinnupartýinu, ég var samt ekki mjög lengi því ég beilaði í eitthvað sundstrákapartý með ylfu og davíð.. það var trampolín þar. það er fáránlega gaman að hoppa á trampolíni.. og erfitt..?
kíkti svo í bæinn og hitti bent og össa og fór með þeim á prik, þeir eru alltaf svo mega næs á því,
einhver lítill strákur var brjálaður við mig af því ég hló að því hvað hann var trylltur yfir að hafa ekki komist inn á prik.. fólk ætti að slaka aðeins á neyslunni, ójbara
bent sýndi mér líka tjokkó-artí-böbbar networkið sem er eitt það áhugaverðasta sem ég hef séð í mörg ár og útskírði fyrir mér ágæti hipsteranna
í dag ætlum við ragna í golf, þegar við erum orðnar gamlar og hættar að vera íslandsmeistarar í badminton, þá verðum við íslandsmeistarar í golfi
kl. 11:09 | holla ( 4 )
28.
júl
( 2006 )
ég kuffti mér svo ógeðslega fínt úr á ebay og get ekki beðið eftir að það komi.. 8-25 dagar!! svoldið mikill munur þar á sko.. ég bara nenni ekki að segja ykkur hvernig það er því þá kaupa sér allir þannig því það er svo tZöff, það er úr GULLI!
kl. 14:30 | holla ( 2 )
ég var að skoða eitthvað svona heitir piparsveinar í séð og heyrt og þar af voru þrír þróttarar... lifi þróttur
kl. 13:32 | holla ( 5 )
(ég veit ég á eftir að vera hengd fyrir þetta og ég er ekki að segja að lágtekjufólk eigi að borga mikinn skatt jarí jarí)
einn mánuð þurfti ég að borga hundraðþúsundkalla í skatt og grét næstum því mér fannst það svo fúlt (ég fæ enn sting í magann við tilhugsunina)..
aumingja þetta fólk, mér finnst ekki skrýtið að fólk sem á mikið deig vilji frekar borga skatta þar sem hægt er að semja um það
og hananú
kl. 11:33 | holla ( 30 )
asnalegasta við sambönd er að maður eyðir hverjum degi í hálftár eða hversu lengi sem þau endast, með einhverri manneskju og deilir öllu með henni.. svo endar sambandið og þú hættir að geta umgengist þessa manneskju bara búmm, hún er horfin úr lífi þínu.. kannski ekki forever en það er ekki lengur hægt að hang out daglega..
skil núna hvað nylon var að tala um þegar þær tala um að maður sé losing a friend..
held maður sakni þess mest hvernig þessi manneskja lét manni líða.. vá sérstaklega eins og fyrst, ég get alveg sagt ég hafi aldrei verið jafnskotin í strák áður.. en tilfinningarnar breytast eins og árstíðirnar..
mér finnst leiðinlegast að fara ein að sofa og að geta ekki hjúfrað mig upp að neinum þegar ég snooza á morgnanna.. ástæðan til að snooza er eiginlega ekki til staðar lengur, núna fer ég bara á fætur (djók).. mig vantar gistiböddí sem er góð lykt af, sætur, menntaður (eða amk að stefna eitthvert), góður í golfi eða á hesta, fyndinn og með mjúka húð.. vill einhver? (nei aftur djók)
maður verður samt bara að fylgja hjartanu og standa með þeim ákvörðunum sem maður tekur þó þær séu kannski stundum snúnar eða í ringli..? maður græðir ekkert á því að efast því hjartað er eiginlega alltaf hreinskilið
en yfir í léttara efni ha ha ha.. þá er heldur betur föstudagur og vinnupartý í kvöld, ég er að vinna með svo skemmtilegu liði þannig ég hlakka ekkert smá til að mæta! hvað eru þið annars að farað gera um helgina??
kl. 10:33 | holla ( 10 )
26.
júl
( 2006 )
hans og fíni bíllinn hans

ég og fíni hansinn minn
kl. 18:45 | holla ( 3 )
hans (vinna) says (11:30):
þú bankakona í dragt
hahahaha
pff komandi frá embættismanninum í þriggjalaga jakkafötunum!
kl. 11:32 | holla ( 7 )
25.
júl
( 2006 )
gaur frá útlöndum les þessa síðu mína.. ég þori ekki að nefna nafnið á landinu hans svo hann fatti ekki ég sé að tala um, en við skulum segja að það búi fleiri landar hans á vestfjörðum heldur en íslendingar..
eníveis.. þessi gaur er búnað taka hirða myndir úr albúmunum mínum, af mér, og búnað búa til vídjó með tónlist undir.. allt saman ægilega fallegt segir hann, nú vill hann fá heimilisfangið mitt svo hann geti sent mér vídjóið því það er of stórt til að senda í meili..
dúbíus?
kl. 11:25 | holla ( 6 )
24.
júl
( 2006 )
við hans sitjum núna sveitt öll kvöld við að gera gaypride atriðið hans til.. sem betur fer er ylfa líka komin og getur hjálpað okkur við að búa til búningana og skipulegja hvernig allt heila klabbið verður... bíllinn hans hansa míns verður nottla langflottasti bíllinn í allri göngunni (ómars ragnarssonar mun samt kannski fylgja fast á hæla hans..)
hugmyndin er samt að gera tribute til peter berlin.. sem sagt, endurgera búningana hans og hafa huggulega stráka í búningunum sem hann hefur klæðst í myndatökunum sínum gegnum tíðina..
fyrir þá sem ekki vita er peter berlin gay icon sem tók erótískar ljósmyndir af sjálfum sér um miðjan áttunda áratuginn
hans ætlar að vera í þessu átfitti

og erum við komin með 2 aðra stráka sem ætla að vera með..
hluta af myndunum hans má sjá hér
okkur vantar samt fleiri og hafi einhver áhuga á að vera með í þessu fína atriði má sá hinn sami endilega hafa samband við okkur
kl. 13:13 | holla ( 9 )
23.
júl
( 2006 )
ég keypti eitthvað í ríkinu í fyrsta skipti á ævinni á föstudaginn.. ss afmælisgjöf handa gsm.. settist svo á austurvöll með bokkuna mína og tjillaði í sólinni þegar ég varð fyrir aðkasti alveg óðrar konu sem sagði ég ætti að láta góðan jésú frelsa mig frá áfengisbölinu, hann hefði nefnilega hjálpað henni við það allt saman og hún hefði aldrei ánetjast neinum vímuefnum..

talandi um jesú.. þá eru þessir kaþolikkar hérna í hverfinu ekkert sérstaklega slakir á klingja kirkjuklukkunum sínum úff.. má ég þá heldur biðja um skipaflauturnar
kl. 18:01 | holla ( 14 )
vóh myspace hipstera landslið íslands var mætt í bæinn í gær.. allir í pastellituðum fötum og helst naked ape peysu.. naked ape er næsta dead.. ég veðja mörgum peningum uppá að naked ape peysur verði vinsælasta jólagjöfin hjá gaggó kids næstu jól..
það var gaman hjá mér í gær.. kíkti út með ylfu og jóni.. það er gaman.. við áttum samt stefnumót við flippgeir á tröppunum en það voru einhverjar meyglur búnað stela tröppunum (vita þær ekki hver við erum?? katrin.is, elli í jeff who og ylfa lind, partýhans var heima að hvíla sig)
kl. 15:22 | holla ( 2 )
sjit ég vaknaði í svo góðu skapi að ég valhoppaði hálfa leið í vinnuna, þeas bara þangað til ég kom niður úr fischersundinu, vildi ekki fólk héldi ég væri föstudagsflippari..
ylfa er líka komin!! og davíð sendi mér ó svo fína sokka og glimmer legghlífar
kl. 08:40 | holla ( 4 )
20.
júl
( 2006 )
í dag á einn af mínum allllra bestu vinum afmæli veiiii

hérna erum við einmitt á leiðinni í mastersvörnina okkar, óheyrilega sæt og fín.. við erum mun glæsilegri í dag enda einni gráðunni ríkari
innilega til hamingju elsku gunnar steinn minn
kl. 10:46 | holla ( 3 )
ég og sigurjón spiluðum golf í grindavík í gær..
við hefðum nú geta sagt okkur strax að þetta myndi vera vesen þar sem þessi völlur er staðsettur á suðurnesjum og eins og allir vita kemur ekkert gott þaðan..
við vorum svoooo óheyrilega léleg.. sem betur fer vorum við það bæði þar sem hvorugu okkar finnst neitt spes að tapa.. ég reyndar var ekki farin að kasta kylfum eða lemja þeim í jörð eins og sumir en það er kannski bara af því ég er vön að eiga badmintonspaða og veit hvaða afleiðingar það hefur að þrykkja þeim í eitthvað..
en alla vega.. ég vann með 2 höggum.. en ég héld það geti verið af því ég á svo fína skó og fínni hanska en sigurjón..
kl. 08:42 | holla ( 6 )
19.
júl
( 2006 )
þetta veður léttir lundina!
helvíti getur veður haft mikil áhrif á skapið
kl. 13:18 | holla ( 11 )
18.
júl
( 2006 )
jeeeiiii á morgun ætlum við sigurjón í ródtripp í golf..
mér finnst sigurjón mjöööög skemmtilegur og mér finnst líka mjööög gaman í ródtrippi og mjööööög gaman í golfi þannig þetta getur ekki verið annað en gaman..
mér finnst sko miklu skemmtilegra í golfi eftir að ég fór í 5 kennslutíma og lærði allskonar.. ég er líka að verða miklu betri eftir það.. þá verður maður barað æfa sig enn meira jeij.. svo á ég líka svo fína nýja golfskó og hanska sem er bleikur og með K á sér..
mér finnst erfiðast að pútta.. ég spilaði á hellu um daginn og setti mér markmið eftir fyrstu 9 að pútta aldrei oftar en 2x á seinni 9.. heppnaðist svosum þar sem ég púttaði 2x að meðaltali he he..
ekki gaman að lesa svona rookie golf fréttir?
kl. 23:11 | holla ( 10 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní