
30.
apr
( 2006 )
ég fór í afmæli til loga og borðaði kökur og aspasrétt og brauð HAH feis á þig ljóti háls! (boy á ég eftir að sjá eftir þessu þegar verkjalyfin hætta að kikka inn..)
kl. 17:14 | holla ( 5 )
ohh það er liðin vika og mér er ennþá illt í hálsinum.. þetta er mega þreytandi og ég er orðin svooo leið á að borða bara jógúrt og ís, ógeð líka á morgnanna þegar verkirnir eru verstir ooog parkódín bragðið flæðir úr maganum uppí kok.. ég er mjög óhamingjusöm með þetta (ég er búnað vera mjög þolinmóð hingað til og ekki kvartað mikið!!)
kl. 14:45 | holla ( 0 )
28.
apr
( 2006 )
ohh man ég er búnað verað hlustá blautt malbik.. þessi þáttur er án efa hápunktur vikunnar so far, voru að spila næstum allt sem ég elska.. ég var samt of viðða að grenja.. voru að spila gamalt sjit og það bara brings back memories.. mm sérstaklega sumarið 2003 var meeega good sjit.. takk óli og óli:*
kl. 23:57 | holla ( 0 )
held það hafi verið græddur í mig segull í staðinn fyrir hálskirtlana... fyrs eyðilagðist routerinn, svo lappinn minn og núna er mömmu og pabba skjár í fokki.. tilviljun að allt sem er í sama herbergi og ég skemmist á 3 dögum? held ekki.. (eins gott ég er ekki að mæta í vinnuna he he.. væri verra að rústa öllum tölvum þar)
ég sé sem sagt ekkert hvað ég er að gera..
kl. 13:35 | holla ( 3 )
27.
apr
( 2006 )
ókei.. harði diskurinn í lappanum mínum byrjaði að hljóma eins og biluð vifta (ég hélt þetta væri viftan..) þannig ég slökkti á honum og hvíldann svo í 2 tíma meðan mamma fór út að viðra mig (ég var að verða þunglynd á þessu hangsi hérna heima)..
ég kveikti aftur á lappanum þegar ég kom heim og fattaði þá að þetta var læti í disknum ekki viftunni og window segir ekkva "no disk blablabla"..
veit einhver hvað er að??
kl. 18:47 | holla ( 3 )
26.
apr
( 2006 )
ég horfði á mörgæsagönguna í nótt.. þó þessi mynd sameini tvær helstu fóbíur mínar (vatn og fugla..) þá hafði ég mega gaman af henni.. það er eilega alveg ótrúlegt að horfa á þetta.. þær eru svo vangefið mannlegar!! ohh þegar ein týndist og þegar eggið brotnaði og þegar mamman var étin af skrýmslinu og þegar unginn fraus og þegar unginn var borðaður af risafuglinum og þegar margar deyja úr hungri:( mjög sorglegt..
kl. 13:09 | holla ( 7 )
25.
apr
( 2006 )
þetta var nú aldeilis góður sjeik.. ég horfði líka á boltann og allt.. hann var nú meiri þessi sem tók ömurlega vítið.. ég hélt samt með arsenal því það eru gullstafir á búningnum þeirra..
gummijóh gaf mér svo verkefni fyrir morgundaginn og einn góður vinur, sko mjög góður vinur, var að lofa að koma í heimsókn.. á morgun kemur líka litli bró snemma heim úr skólanum, það er drepleiðinlegt að hanga einn allan daginn
svo er aldrei að vita nema ég horfi á nokkra boston legal þætti í viðbót.. svo var pabbi að rétta mér þessa mörgæsamynd þarna.. kannski ég fái mér líka frostpinna eða jarðaberjagraut og sofi svoldið.. mm morgundagurinn verður frábær!
gosh hvað mér leiðist:|
kl. 23:51 | holla ( 8 )
ég held bara ég drepist úr leiðindum.. mig langar í vinnuna.. og í mat sem er hægt að tyggja.. mér leiðist svo mikið að ég köstomæsaði mæspeisið mitt, svoldið sem ég ætlaði aldrei að gera.. ég nenni ekki að horfa á meira vídjó.. ég nenni ekki að liggja meira eða borða fleiri frostpinna eða jógúrt eða sofa meira..
mamma kemur með sjeik á eftir.. hápunktur dagsins
kl. 15:58 | holla ( 2 )
alóha! þetta var hreint ekki eins skerí og ég bjóst við.. ég var reyndar óendanlega stressuð og fékk kæruleysistöflu sem var samt ekkert byrjuð að virka áður en ég sofnaði..
einhver gaur, vignir, mætt í hnéaðgerð á sama tíma og ég og var fáránlega kúl á því.. hann talaði endalaust og var ekkert stressaður þannig ég varð alveg minna stressuð fyrir vikið.. meirað segja á vöknum vaknaði ég við blaðrið í honum (híhí hressi gæinn)
það er fyndið að fá vökva í æð.. lá á skurðarborðinu og fór að hlæja en sofnaði nú bara stuttu eftir það.. það er skrítið að sofna svona.. hausinn verður gazilljón kíló..
vaknaði svo ótrúlega hress.. var eiginlega bara eins og ég hefði verið vakin um miðja nótt og komin með mikla hálsbólgu, svona þegar maður er í fastasta svefninum.. enda er ég frekar klár í að sofa..
mér fannst td verra að kyngja þegar ég var með skarlatssóttina en núna.. nema núna er eins og helmingurinn af því sem ég kyngi fari uppí nef (??)..
mér fannst reyndar ógeðslegast þegar vökvinn í æð kláraðist og blóðið á mér fyllti snúruna í staðinn.. og hún varð heit... jakk
er annars bara búnað sooooofa.. sjit hvað ég er búnað sofa mikið.. og borða twister.. og glápa á vídjó.. það var búið að vara mig við að dagurinn í dag yrði verri en í gær fyrst ég var svona mega hress í gær.. en so far bara fínn, engir verkir eða neitt.. vonandi verður þetta bara svona lalalala...
kl. 12:44 | holla ( 6 )
23.
apr
( 2006 )
ég er búnað verað drepast úr kvíða yfir þessari aðgerð minni í fyrramálið.. ég á að vera mætt kl hálf 8, er fyrst sko.. mamma kemur með mér og ég fæ jafnvel frostpinna þegar ég fer á dagdeild (hjúkkan sem hringdi í mig er mega næs..)
ég er sko ekkert kvíðin lengur því ég datt óvart inná heimildamynd um kvennakór reykjavíkur og hugsaði með mér "úff það verður nú ekkert í heiminum óþægilegra en að horfa á þetta...ekki einu sinni hálskirtlatakan.."
boy was i wrong!! elskuleg vinkona mín inam sendi mér link á það óþægilegasta sem ég hef heyrt aaaa.. ef þér fannst taktu mig með snooze vont.. þá ættiru að tjekka á james blunt koverinu hans brynjars más.. nota bene MEÐ íslenskum texta... (það þarf einhver að stöðva þennan mann..)
njótið vel :*
kl. 21:48 | holla ( 8 )
ég bauð honum svenna mínum með mér á grillið í gær..
það var ekkert smá frábært, maturinn var frábær og útsýnið geggjað.. hef heyrt að chef magoo sé einhver snillingur þarna!
kl. 12:40 | holla ( 4 )
22.
apr
( 2006 )
í gær gerðist ég ótrúlega rausnarleg (hahummhaha) og bauð hansa og fífu í leikhús.. við fórum að sjá 8 konur..
þessi leiksýning var aðallega gleðiefni fyrir það eitt að sýna mér hversu fyndin ég er og hversu fyndna vini ég á því grínstaðallinn minn er alltof hár fyrir svona crap, ódýrt og augljóst grín..
ókei nú finnst mér sjónvarpsþátturinn stelpurnar mjög fyndinn og það hefur greinilega ekki bara að gera með leikkonurnar (ókei kannski skara skrípó og sigurjón kjartans frekar!) því þrátt fyrir að helmingurinn af konunum í þessu leikriti séu leikarar úr stelpunum þá var þetta svooooo vont!!
ókei í fyrsta lagi byrjaði þetta á því að maður sá þýsku þjónustu konuna sem talaði bjagaða íslensku sem bauð uppá ódýrasta grín sögunnar, svona orðarugli.. þegar hún byrjaði á því að tala um að þegar maður hafi verið svona lengi í vinnu hjá fjölskyldu þá sé maður orðinn "limur" í henni
HA HA HA..
og í staðinn fyrir að segja sönnunargagn talaði hún um sönnunarnæturgagn..
AHA HA HA.. og fleiri dæmi eins og þessi en ég hef náð að blokka þau úr minningunni...
söngatriðin voru þýdd þannig að þau rímuðu.. ekki til að þau meikuðu sens.. og maðurinn var látbragðsleikari.. ekki eins og það sé nógu leiðinlegt eitt og sér heldur var farið spaugstofuleiðina og hann settur í konuföt (HA HA HA.. menn í konufötum, klassískt grín)
skrítið líka að ganga aldrei og tala venjulega, bara hlaupa og öskra.. það er líka svo fyndið HA HA HA HA AHA HAHA..
guðlaug mætti líka aðeins slaka á með að reyna að vera helga braga..
fólk sem er ekki nógu fyndið til að finnast ég fyndin til dæmis (haha mér finnst ég sko mjög fyndin) en finnst aftur á móti spaugstofan fyndin og þjóðhátíð skemmtilegt fyrirbæri gæti samt mögulega séð þessa sýningu og hlegið að henni.. það var alveg fólk þarna sem hló.. en fólk með húmor á æðra plani ætti að sleppa því að mæta..
kl. 19:47 | holla ( 4 )
21.
apr
( 2006 )
ég hata økologiskt!!!
það byrjaði allt með því að ég keypti ökologisk egg sem var ekki hægt að baka úr..
ég ákvað samt að kaupa mér poka af økologiskum döðlum í fyrradag og það voru mistök.. ýkt þurrar og vondar.. fór þess vegna í hagkaup áðan (þar sem katrínu finnst skemmtilegast að versla) og keypti splunkunýjar djúsí og yndislegar döðlur
niður með økologiskt!
þetta var nöldur dagsins
kl. 15:45 | holla ( 8 )
ég er að blogga þetta baaaara því ég get það
kl. 13:09 | holla ( 0 )
20.
apr
( 2006 )
oh plís ekki þjóðernisflokk hingað! mér finnst þetta viðbjóðslegt
konsept.. það er svona í danmörku og ég fékk ógeð um leið og þessi pia,
sem leiðir þennan flokk þar, opnaði sitt sauruga munn
"Flokkurinn myndi samkvæmt könnun Gallup aðallega sækja fylgi sitt til
ungs fólks og fólks sem einungis hefur grunnskólamenntun. Þá sækir hann
mest fylgi sitt í nágrannabyggðir Reykjavíkur." -mbl
sem sagt keflavík o.s.frv...
held þetta segi allt sem segja þarf um þjóðernissinna
en gleðilegt sumar annars! sumar er gott
kl. 15:20 | holla ( 4 )
19.
apr
( 2006 )
ég byrjaði að færa úr tilvonandi herberginu hans hans orra yfir í mitt svefnherbergi.. hann er nefnilega að flytja til mín um mánaðamótin.. ég er alveg að vera búin að færa allt.. er búnað færa skrifborðið og á bókahilluna eftir (haha ég á engin húsgögn)
í morgun var virðulega bankakonan ég á mjög alvarlegu námskeiði.. ég var ein.. það var samt alveg fínt..
á mánudaginn fer ég í hálskirtlatöku.. uggh hvað ég kvíði fyrir því.. ég hef bara einu sinni farið í aðgerð áður og það var í fyrra þegar einn af endajöxlunum mínum var tekinn.. og ég fór að gráta og allt.. sko fólk hefur dáið í svona aðgerð!! mamma þekkir samt lækninn þannig ég vona að hann vandi sig.. ég sá hann líka setja rör í eyrun á barni í barnaþættinum á s1.. hann virtist mjög fær (hjúkk).. kannski getur hann lagað magasárið sem ég fæ af kvíða í leiðinni..
þegar ég var 14 spilaði ég fullorðinslandsleik í tennis.. þegar ég var 15 hætti ég af því ég fílaði ekki nýja þjálfarann og valdi badminton.. ég snerti ekki tennisspaða fyrr en síðasta sumar.. það er mjög gaman í tennis en ég er glöð að ég valdi badminton.. þessi síða er eitt það hrikalegasta heimasíðuslys sem ég hef séð, mér leið bara eins og ég væri komin aftur til ársins '95
kl. 13:36 | holla ( 27 )
18.
apr
( 2006 )
þeir sem vilja hafa þennan árans flugvöll ennþá í vatnsmýrinni hafa
a) ekki búið/unnið í 101 og áttað sig á hverskyns hávaðamengun er af flugumferðinni (ég heyri ekki í sjónvarpinu þegar flugvél flýgur yfir)
b) ekki fattað að það er bara gott að búa í reykjavík, ekki útá landi
kl. 18:02 | holla ( 7 )
16.
apr
( 2006 )
oj makkinn minn vill ekki bútta at all og lappinn minn vill ekki bútta á ubuntu disk og mér finnst leiðinlegt að nota þessa lappadruslu í windows því allt er miklu fínna á apple skjánum mínum og ég vil komast inní makkann minn eða amk get sett upp ubuntu svo ég geti leikið mér að því búúfokkinghú! tölvur eru ömurlegar
kl. 13:55 | holla ( 2 )
12.
apr
( 2006 )
ahhhh yndislegur dagur!!
ég vaknaði hressari í dag en ég hef verið síðustu daga.. ég held ég hafi gubbað frá mér andanum og gleðinni á föstudaginn.. ég hef svo orðið hressari eftir sem líður á daginn.. ég var meirað segja að valhoppa í fischersundinu eins og ég geri oft þegar ég er hress (kannisti ekki viðða? vera að labba og taka óvart svona smá valhopp inná milli bara af því maður er svo glaður)
það er betra að vera glaður og veðrið er svo gott og ylfa kemur í kvöld!
kl. 12:38 | holla ( 4 )
11.
apr
( 2006 )
ojj oasis til íslands.. vonandi verður þeim ekki hleypt inní landið fyrir að vera uhm.. tónlistarhryðjuverkamenn.. ógeðslegir gaurar með ógeðslega músík.. hva viljiði ekki bara líka fá james blunt og damien rice aftur? og svo kannski líka low til að toppa þetta allt saman?
kl. 10:46 | holla ( 19 )
10.
apr
( 2006 )
það er fátt sem fer meira í taugarnar á mér en einhverjir tuðandi týpur og wannabe greenpeace hasshausa sem þola ekki efnishyggju og lífsgæðakapphlaup.. í alvöru talað, ef þú þolir þetta ekki, bara ekki taka þátt og hættu bara að pæla í því að þessi eða hinn eigi nýjan jeppa mkay?
(og afsakið að sum áhugamál borgi betur en önnur, afsakið að sumir hafi áhuga á að eyða mörgum árum í að mennta sig í háskóla, afsakið fólk sem hefur unnið sig upp í sínu starfi með því að standa sig vel, afsakið fólk sem er klárt að fjárfesta og hefur grætt mikinn pening þannig.. hverjum er ekki sama þó einhver bankaforstjóri í london haldi 10 milljóna veislu með tom jones ef hann á peninga fyrir því??)
ég er með bíl foreldra minna í láni, hann er frekar nýr og er fínn.. greinilega of fínn til að eiga niðrí miðbæ því eftir að ég flutt í 101 hefur einhver nuddað sinni skítugu druslu í afturbrettið á mínum bíl oooog það er búið að lykla aðra hliðina á honum..
það er fátt ömurlegra en að vera með eitthvað í láni og geta ekki skilað því eins fínu til baka.. ég amk snara ekkert sprautun á heila hlið á bíl uppúr veskinu svona á núlleinni...
kl. 17:42 | holla ( 5 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní