Katrín.is
30.
nóv

( 2006 )
ég var fáránlega heppin áðan og fékk plötuna hans bents


ég er ekki byrjuð að hlusta.. var barað skoða hulstrið.. það er fínt! gaman að hann skrifar um hvert lag, söguna á bakvið það.. og svo fæ ég þakkir, það gladdi mig mega!!:)

hlusta á lög af plötunni hér

kl. 16:57 | holla ( 3 )
ef þið vilduð vita hvað er best við að búa í 101 þá er það að það séu 300m í vinnuna mína.. og þar með þarf ég ekki að setjast inn í kaldan bíl á morgnanna.. og skafa.. og vera í umferð..

verst samt við íbúðina mína er að það getur safnast ótrúlega mikið ryk saman á litlum 84,4 fermetrum.. ég skiiiiiiil ekki hvaðan þetta kemur..

kl. 14:55 | holla ( 0 )
það versta við að búa í 101 er hvað það eru óóógeeeeeeðslega ljótar búðir á laugaveginum.. það er eins og fólk sem er orðið nógu gamalt til að selja stóru húsin sín og kaupa sér nýja minni íbúð, geri það og noti aukapeninginn í að uppfylla gamlan draum um að opna búðir á laugaveginum.. með sama dótið til sölu og það langaði að selja fyrir 50 árum..

og svona eksótískar búðir.. suður-ameríkubúð.. asíubúð með kínakjólum og kínaskrauti oooooooog

nýjasta skrautfjöðrin í hatt ljótu búðanna er afróbúðin..

ég á það sameiginlegt með vinum mínum hansa og ylfu að vera ekki par hrifin af öllu afrótengdu.. sá búðina og fór að hlæja að hvað það væri fyndið ef ég myndi kaupa mér afróskraut í íbúðina, afróföt handa okkur og svo myndum við fara í danstíma í kramhúsinu (það er eitthvað pínlegt við hvítt fólk í afrófötum með tusku á hausnum til að feika ekkva fró) og leigja okkur bongótrommara og halda afrókvöld einu sinni í viku.. he he mér finnst það alveg aftur fyndið núna.. mér finnst ylfa og hans fyndin

svona gæti hans verið hress


kl. 13:40 | holla ( 7 )
ég fór með sissa á myndasýningu í gær þar sem sýnt var gore-tex, flíspeysur og ljót sólgleraugu.. í alvöru talað, hver pantar sólgleraugun fyrir skátabúðinni? það var samt alveg gaman, sérstaklega af því að í lobbýinu á hotel nordica var allt rockstar krúið.. ég var ýkt starströkk, þúst húsbandið, josh og magni..

ég vildi að toby hefði verið..

kl. 10:40 | holla ( 0 )
29.
nóv

( 2006 )
dd-unit er með eina bestu bloggsíðu á íslandi.. hún nær að summera upp allt merkilegasta slúðrið á einni síðu.. (þegar maður skoðar útlensku síðurnar er nefnilega ýkt oft fullt af slúðri um fólk sem maður þekkir ekki neitt.. svo er líka einhver fasistasía í vinnunni minni sem blokkar á dlisted, uppáhalds slúðursíðuna mína)

alla vega... áfram dd-unit!!

kl. 08:40 | holla ( 3 )
28.
nóv

( 2006 )
ókei það er ýmislegt sem ég skil ekki..

ég skil til dæmis ekki af hverju stelpur langar að spóka sig á sviði í bikini og háum hælum með fleiri stelpum og láta dómnefnd sem samanstendur af miðaldra sjónvarpsstjóranum á skjá einum, miðaldra framkvæmdastjóra fyrirtækisins sem flytur inn orablu sokkabuxur, miðaldra konu sem er frkvst. miss iceland og svo mögulega einhverri fyrrverandi ungfrú ísland, velja hver er sætust

annað sem ég skil ekki er af hverju stelpur vilja láta taka einhverjar semi sóðalegar myndir af sér og birtast svo í séð og heyrt sem séð og heyrt stelpan..

ég skil það jafnvel minna eftir að hafa séð mynd af birni blöndal, slísí gaurnum sem tekur myndirnar.. afsakið meðan ég æli

kl. 17:30 | holla ( 4 )
forgotten lores vídjóið er mad!


platan þeirra kemur út á föstudaginn, ég hlakka ekkert smá til!

kl. 10:48 | holla ( 5 )
ég er flutt.. eþs síðan.. ég bý enn á ránargötu..
kl. 09:19 | holla ( 0 )
27.
nóv

( 2006 )
sumó var svooooo næs!
ég og hans hengum fáránlega mikið í pottinum.. sáum gazilljón stjörnuhröp.. fórum svo í bíltúr á kerið, gullfoss og geysi.. svo kom fífa og tjillaði meira með okkur í pottinum og svo bjuggum við til mega fínan mat og tjilluðum meira í pottinum.. ahh þetta var of næs..

við vorum samt líka með smá kveikt á sjónvarpinu og mér finnst til skammar að ég skuli vera neydd til að borga fyrir sjónvarpsstöð sem býður upp á efni á borð við þáttinn hans jóns ólafssonar og spaugstofuna.. er verið að gera grín??

kl. 11:26 | holla ( 6 )
24.
nóv

( 2006 )
ég og hans erum farin í ástarferð uppí sumó.. æ þarna vinstra megin við selfoss.. ef einhver vill koma með okkur eða heimsækja þá eruði velkomin! bara hringið í okkur, verðum fram á sunnudag

kl. 17:36 | holla ( 2 )
ég hló samt nennti ég ekki einu sinni að lesa þetta

greinilega frábært að taka þátt í fegurðarsamkeppnum, maður eignast svo marga nýja vini og þetta hefur greinilega verið æðislegur hópur af strákum sem deilir áhuga á brúnkukremi, tannhvítingaefni og hárlitun. virkilega flottir strákar sem mikið er spunnið í

ég hélt samt með þessum, hann er svo mikið krútt, 18 ára, trúlofaður og vinnur í jack and jones.. (vildi ég myndi þekkja hann svo hansi gæti fengið afslátt í uppáhalds búðinni sinni)

kl. 13:55 | holla ( 8 )
hey þorvaldur davíð var að eignast litla systur!

nei bara.. búnað lesa þetta í 3 blöðum og fannst ég ekki vera maður með mönnum nema að segja frá þessum stórfréttum líka

kl. 11:28 | holla ( 2 )
eins og sést á þessari grein þá eru nylon alveg jafn vinsælar í bretlandi og einar bárðar segir..
kl. 09:47 | holla ( 4 )
ég ætla einhvern tíman á þetta hótel
kl. 09:46 | holla ( 2 )
23.
nóv

( 2006 )
æææ herra ísland í ár er hommi, ýkt frábært :)
kl. 23:37 | holla ( 5 )
sko þessi keppni hefur nottla verið bara djók síðan stálið tók þátt og vann ekki..
kl. 23:22 | holla ( 2 )
hehe herra ísland.. í alvöru.. dansandi í undirfatnaði frá oroblu..
einn gaur er í jakkafötum sem mike tyson keypti fyrir hann í blúmingdeils

vá ég ætlaði að nafngreina stráka og gera grín að þeim en svo hafði ég það ekki í mér.. mér er greinilega farið að förlast..

kl. 23:00 | holla ( 2 )


ég elska the game, ég hef oft sagt ykkur það

kl. 16:34 | holla ( 3 )
það er verið að taka upp skemmtiatriði fyrir jólahlaðborðið.. mér persónulega finnst skemmtiatriði starfsmanna tímaskekkja.. kannski af því að
a) mér finnst óheyrilega lítið gaman að taka þátt í svona (ég er tölvunarfræðingur, ekki skemmtikraftur)
b) mér finnst ekki gaman að horfa á þannig.. ekki nema þetta sé fólkið sem þú ert að vinna mest með..
c) ég fer hvort eð er ekki á jólahlaðborðið

ég reyni bara að láta lítið fyrir mér fara og forrita eitthvað óóóótrúlegt á meðan...

ef ég mætti ráða samt myndi ég halda bankamannagrindakapphlaup með vinnu


en þar sem ég er að láta lítið fyrir mér fara þá viðra ég ekki mínar hugmyndir um skemmtiatriði..

kl. 16:14 | holla ( 2 )
22.
nóv

( 2006 )
hans er kominn! me love me some hansel


maður verður hooked á að búa með fólki, ég gæti ekki hugsað mér að búa án hansa og koma alltaf heim í tóma íbúð brrrr hansi kjútípæslinn minn:*

kl. 22:44 | holla ( 8 )
ég vann í 12 tíma
labbaði heim
horfði smá á fínu jólasveinaseríuna
ég settist svo fyrir framan tölvuna

ooooov hvað allt er boring þegar strákarnir mínir eru ekki heima

kl. 22:12 | holla ( 0 )
ég og hans vorum fáránlega ánægð þegar gamli skólinn okkar, langholtsskóli, vann skrekk í gær.. þetta var stórfenglegt atriði.. virkilega áhrifarík ádeila á virkjanagleði yfirvalda

mér fannst líka mjög áhrifaríkt atriðið með manninum sem fékk sér eitt rauðvínsglas og ákvað samt að keyra og klessti nottla á og konan hans dó..

og líka börnin sem áttu uppteknu foreldrana og fóru í eiturlyfjapartý og 7 ára litli bróðirinn dó..

eða stelpan sem varð geðveik af því pabbi hennar fór á sjóinn og dó.. og dó svo sjálf..

voða dark í dag þessir unglingar..

kl. 09:31 | holla ( 4 )
21.
nóv

( 2006 )
hans elskan, ég er lifandi og í vinnunni, ferskari en nokkru sinni fyrr

eins og sést he he..

kl. 10:36 | holla ( 5 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox