Katrín.is
30.
sep

( 2005 )
þessi gella er greinilega að taka sólbaðið í vinnuna
kl. 22:14 | holla ( 3 )
maðurinn minn, lúkkin hott eins og alltaf..
lovimm

kl. 11:29 | holla ( 2 )
ji ég hef svo margt að hlakka til næstu 2 vikurnar!

í kvöld: fá bestu samloku í heimi sem ylfa býr til
um helgina: október byrjar og ylfa ætlar að baka horn
mánudagur: æfing
þriðjudagur: viðtal
miðvikudagur: æfing
fimmtudagur: begga kemur
föstudagur: skila mastersverkefninu
laugardagur: leikur á heimavelli
mánudagur: æfing
miðvikudagur: æfing
föstudagur: ragna kemur og ég fer með henni til aarhus að æfa og keppa

vá maður! næstum treat á hverjum degi!

kl. 11:09 | holla ( 0 )
29.
sep

( 2005 )
ég hlakka svo til að fara á æfingu á mánudaginn að ég er að deyja..
helduraða sé eðlilegt?

kl. 15:01 | holla ( 6 )
ég ellllllllskamike hennar phoebe
kl. 10:42 | holla ( 0 )
27.
sep

( 2005 )
skiliggi akkuru fólk segir alltaf þeim finnist rottur svo ógeðslgar því skottin séu svo ógeðsleg.. hérna eru þrjú í klessu (rattís eru alltaf að kúra saman.. snúllar)
sætilíusar

svo af því ég ellllllllska glimmer og pallíettur og allt sem glansar og af því ég er búin að vera svo dugleg í verkefninu og er svo rík og er að farað klára og er ekki komin með vinnu og af því mig vantar svo geðveikt skó (ókei hver má velja fyrir sig hvað er satt í þessari setningu) þá keypti ég mér nýja skó, þeir eru allir útí pallíettum!!!!
jeee

kl. 18:58 | holla ( 4 )
við gsm hittum supervisorinn okkar áðan.. en við erum ekki búin að hitta hann síðan við byrjuðum á meistaraverkefninu okkar og hann sagði þegar við komum inn "þið eruð án efa sjálfstæðustu nemendur sem ég hef haft"

svo sá hann að verkefnið okkar var náááánast tilbúið og virkar og varð svoooo glaður já og mjöööög hissa! og sagði við fengjum aukapunkta fyrir að vera svona sjálfstæð!

svo sagðann okkur hvað við þyrftum að gera og setja í skýrsluna og þannig oooog að við ættum að skila á föstudaginn í næstu viku.. (en við áttum að skila núna á föstudaginn þannig við erum viku á eftir sem ég myndi telja nokkuð gott bara hjá okkur!)

sem þýðir að 19 ára samfleyttri skólagöngu minni líkur þannig séð eftir 10 daga.. eþs þá verður bara vörnin eftir, voooonandi í lok október en hann ætlaði að reyna að finna prófdómara sem getur gert þetta þá (því okkur vantar bæði að komast heim til íslands í byrjun nóv..)

húrra fyrir okkur!!!!!!

kl. 15:53 | holla ( 9 )
26.
sep

( 2005 )
hver eressi fröken fix?
kl. 18:54 | holla ( 6 )
minn yndislegi vinur þráinn eða betur þekktur sem mr. T er að flytja heim á morgun.. mér finnst það svoldið leiðinlegt því lets feis it.. ég hef aldrei búið í danmörku án þess að þráinn hafi búið hérna!! þó við hittumst ekki oft uppá síðkastið þá mun ég sakna snúllans míns, það sem hann reddaði mér fyrsta haustið sem ég bjó hérna (áður en ylbs kom sko) og var að deyja úr einmanaleika.. hékk memmér og spilaði tony! hehe

þráinn er yndi

kl. 15:55 | holla ( 3 )
25.
sep

( 2005 )
katrín: gleymdiru nokkuð að deila með 4?
gsm: *horfir á mig eins og ég sé vangefin*
katrín: nei sorrí leit bara út eins og hefði bara verið deilt með 2...
...
...
...
...
...
gsm: "ókei kannski gleymdi ég barað deila með 4..."


gerðist svosum það sama í dag þegar ég lokaði óvart itunes en hélt ég hefði ekki gertða.. mar verður heiladauður á að hugsa of mikið..

kl. 20:49 | holla ( 5 )
mm
kúffa

kl. 19:55 | holla ( 2 )
vissuði að myspace.com er 8. mest skoðaða síðan á netinu?
kl. 13:43 | holla ( 7 )
oj ég fékk ógeð á heiminum í gær þegar við ylfa droppuðum við á istedgade.. fyrst sá ég gaur sprauta sig og svo sá ég gazilljón svartar konur að selja sig.. en eins og flestir vita eru þær trafficking fórnarlömb.. (þúst eins og lilja 4ever..) oj greyið konurnar! hægt að lesa um það hérna.. svo eru líka danskir kallar að skrifa dóma um hórur hérna.. god djí oj!
kl. 09:21 | holla ( 2 )
24.
sep

( 2005 )
god djí! þetta er vangefið!! fáránlega há prósenta fólks maður! þetta myndi ég aaaaldrei gera.. og sama á við um að lesa tölvupóst eða msn samtöl.. og yrði líka mjöööög ósátt ef þetta yrði gert við mig..

málið er bara að leyndarmál vina minna koma ekki endilega maka mínum við og það sem vinir mínir gætu verið að segja mér í trúnaði í sms/email/msn/vorever gæti verið eitthvað sem þeir hefðu bara engan áhuga á að maki minn vissi.. vangefið

kl. 14:22 | holla ( 8 )
stundum hef ég pælt í því af hverju ég á miklu fleiri vini en vinkonur... ætli það sé vegna þess að í menntó var ég á eðlisfræðibraut og svo í háskóla var ég í tölvunarfræði, hef ss mest verið innan um stráka á þessum árum... eða ætli það sé vegna þess að ég á bara bræður, engar systur?

hef alla vega komist að því að almennt finnast mér strákar skemmtilegri en stelpur, tala um skemmtilegri hluti og eru oftar svona sponteinjöss fyndnir.. hef reyndar oft fengið á tilfinninguna (og vitað með vissu) að stelpur fíla mig ekki.. (á sérstaklega við um kærustur stráka sem ég þekki) þrátt fyrir að ég sé ekkert að pleija þá eða sýna þeim neinn áhuga (annan en vinskap).. eða eins og rachel sagði "girls tend not to like me"

hey ég var líka komin með þá kenningu að flestar stelpur sem mér finnast skemmtilegar eiga stóran bróður! (þúst ég, mamma, ylfa, ragna, fífa, sara, slauga slím osfrv.).. já og undantekningin sem sannar þessa reglu er sóley mágkona mín

td í nýja liðinu mínu eru stelpurnar allar heví næs og fínar.. eeeeen þær tala um brúðkaup og leðurstígvél og hversu æðislega vel þessi eða hin lítur út þrátt fyrir að vera nýbúin að eignast barn.. zzzzzzzzz... mér finnst miklu skemmtilegra að sitja hjá strákunum þar sem þjálfarinn var td að tala um að hann kúkaði 3x í vinnunni þann daginn af því hann borðaði svo margar pönnukökur daginn áður..

kl. 14:06 | holla ( 5 )
mig langar í allt í nýju nikita línunni..

held að heiða sé mesti töffari í heimi!

kl. 10:34 | holla ( 4 )
23.
sep

( 2005 )
ég fór útí búð og sá á leiðinni gaur í roooosalegum tískufötum og hugsaði "guð minn góður hvað þessi gaur hlýtur að eyða miklu í föt.." svo hugsaði ég "hmm ég á meiren hálft terabæti af diskaplássi.. hver er eiginlega ruglaður?"

ég myndi halda að þessi síða væri í eigu 15 ára stelpu en neiiiii hún er í eigu tvítugs stráks! , hann er með slúðurhorn og notar smælís óhóflega.. yndisleg týpa vildi hann væri vinur minn

kl. 17:20 | holla ( 2 )
hahahaha var að horfa á bachelorinn á s1.. vá langdregnasti þáttur í heiiiiiiiimiiiiii.. mar gæti spólað yfir helminginn.. en alla vega.. þrennt sló mig
* stjórnandinn talar eins og hann sé að tala inná kennslumyndband og lítur út alveg eins og villi vill (þróttari/frammari/lögfræðingur..)..
* stelpurnar eru allar annað hvort afgreiðsludömur eða snyrtifræðingar
* strákarnir eru allir annað hvort iðnaðarmenn eða tölvunördar

og hvað eru allar stelpurnar að tala um að það sé engin deitmenning á íslandi.. kjeeeeftæði.. þetteru bara ekki nógu sætar gellur he he heee

kl. 16:36 | holla ( 2 )
sjiiii ég var að setja hringinguna hjá CTU sem hringinguna mína.. núna er ég alltaf fáránlega kúl með síma næstum eins og jack er með í 3. seríu og get sagt "it's jack" þegar ég svara
it's jack

kl. 15:38 | holla ( 0 )
við apamamma erum búnar að verað horfá 3. seríu í 24..
tvennt er alltaf fyndið:
1. þegar jack segir "it's jack"
2. þegar einhver opnar socket (sem er mjöööög oft)

annars er ég fegin að við erum bara 2 að horfa á þetta því við erum fáránlega fyndnar en held enginn annar myndi skiljaða "peeeefffsíííí díííehhht peeeefffsí" "voðalega erann tekinn, það er helvítis álag á honum" osv

kl. 14:29 | holla ( 4 )
22.
sep

( 2005 )
æj æj þegar ég var að reyna hughreysta sigurjón þegar hann grét yfir að enginn hefði klukkað sig og var segja honum að ég hefði nú bara verið klukkuð tvisvar þá laug ég.. það er nefnilega búið að klukka mig þrisvar, ragga klukkaði mig líka..

ég hefði svosum ekki átt að klukka sigurjón þar sem hann launar mér því bara með því að ræna frá mér bloggi og minnast ekkert á mig isssss

kl. 18:17 | holla ( 2 )
einhvern tíman fyrir löööngu klukkaði geimveira mig og svo gerði maja það núna, ég nennti samt ekki að svara þessu fyrr en ég sá að sigurjón væri svekktur yfir að vera ekki klukkaður
1. ég er með heimþrá
2. ég hlakka til að klára skólann
3. ég elska badminton
4. ég elska stráka
5. ég borða ekki rauðkál

jæja sigurjón minn klukk

kl. 15:41 | holla ( 1 )
ég var að skoða síðuna hjá gym80 og hélt ég hefði ruglast og farið óvart inná síðuna hans árna..
kl. 15:18 | holla ( 0 )
ég kann vel að meta vin minn darra, hann minnir mig stundum á otee þegar ég kynntist honum fyrst (enda ábyggilega svipað gamall og óli var þá).. þegar ég sagði darra þetta sagði hann svo fyndið, sem minnti mig bara líka á óla (fyndin tilsvör og þannig), en ég get ekki bloggað það.. he he...

en það sem ég ætlaði að segja var að darri sendi mér lag með stríðsmönnum ft. dóri dna.. ég veit ekki hverjir stríðsmenn eru en þetta er heví skemmtielegt lag og dóri dna er minn languppáhalds íslenski mc (svo kemur baddi..).. bara langt síðan ég hef heyrt svona skemmtilegt íslenskt lag.. mig langar miiiiiiikið nýja BB plötu en tónlist til að slást við er ekki bara mín uppáhalds íslenska plata heldur bara ein af mínum all time uppáhalds plötum!

kl. 12:16 | holla ( 0 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox