
ohh.. mér finnst pirrandi að þessi fellibylur skuli heita katrín..
nafnið mitt er fallegt og ég er mjög ánægð með það og vil ekki hafa að það sé verið að bendla það við morðóðan fellibyl..
svo finnst mér líka pirrandi að þróttur hafi fallið..
þar með er upptalið what grinds my gears
kl. 11:03 | holla ( 6 )
28.
ágú
( 2005 )
apamamma kom í gær vúhú! nú þurfum við bara að losna við ægi þá get ég aftur farið að ganga um nakin og gera allskyns hluti inná klósetti með opna hurð..
áðan sátum við í rúminu hennar ylfu og ég prumpaði og hún eyðilagði sokkabuxurnar sínar... classic times
kl. 23:26 | holla ( 4 )
26.
ágú
( 2005 )
annars er ekkert spes að frétta.. ekkert sem er hægt að blogga nema ægir er hérna í heimsókn.. ég eldaði svooo gott kjúklinga fajitas oní hann og gsm meðan þeir skrúfuðu sundur og saman lappann hans gsm...
svo er ég líka að farað gifta mig.. fat boy slim verður dj.. útvaldir fá boðskort.. damian rice verður ekki boðið.. partýið verður í síðasta lagi 2011.. vá hvað ég hlakka til
kl. 18:55 | holla ( 6 )
p-funk tæm beibí

þetta er mynd af upphafsmanni p-funksins george clinton.. hann er með töff hár.. fyrir aftan hann er bróðirinn bootsy collins.. hann er í töff fötum
viðar var í gær að segja mér frá p-funki og það er skömm að segja það en ég hafði ekkert kynnt mér þetta áður.. þess vegna er ég í dag búin að vera að lesa mér betur til um þetta og fræðast heilan helling, reyndar var ekki miklu að bæta við það sem viðar sagði mér því hann veit allt..
ég dánlódaði líka lögum.. nei djók keypti diska.. nei djók.. eða hvað? og það er vangefið gaman að hlusta á þetta því ég þekki langflest lögin því ég er nottla búin að hlusta svo djöfulli mikið á g-funk sem er einmitt byggt á p-funki..
þessi p-funk stefna er það svalasta sem ég veit, þvílíkt glam og þvílíkt bling!! ótrúlega skemmtilegt. partí partí partí!
bootsy collins, fáránlega svalur á því
kl. 18:53 | holla ( 1 )
25.
ágú
( 2005 )
andskotans rigning og djöfulgangur í einni borg
kl. 18:43 | holla ( 0 )
ohh það er svo gaman að vera ég, var í nettu webcam partýi í gær og benni mætti og ég fór næstum að gráta svo löngu seinna birtist alltí einu tinninn minn, þvílíkt sörpræs, það var svo gaman að ég fékk hláturskast
svo í dag er ég búin að vera að frjósa í hel, innpökkuð í rúmteppið mitt skjálfandi þegar ég fæ sendan pakka frá henni fífu minni!!! ótrúlega flottar lufsur (sem sumir vilja kalla tátiljur) sem eru bleikar og með blingi á (oh bleikt og bling er alveg my style) og ekkert smá geggjaða mynd sem hún teiknaði sjálf haha hún er æði.. sko myndin og líka fífa! það er skemmtilegast í heimi að fá sendan pakka já og sjá vini sína

kl. 12:28 | holla ( 0 )
24.
ágú
( 2005 )
nærridauðareynsla!!! var í góðum fíling á leiðinni uppí humlebæk þegar lestin stoppar in the middle of nowhere og sagt að við getum ekki farið í gegnum humlebæk því þar er stopp lest sem grunsamlegum kassa í...
humlebæk stöðinni var lokað í 4 tíma og okkur var hent út á stöðinni á undan en þá var ég svo heppin að annar gaur í klúbbnum var líka fastur og hann hringdi í þriðja gaurinn sem kom að sækja okkur..
við unnum svo 9-4 og ég vann báða leikina mína! þú veist.. ég hugsaði bara "helvítis danir, þetta er fyrir forfeður mína, þið hefðuð ekki átt að níðast á þeim helvítin ykkar"
en svo varetta sko engin sprengja en lestarstöðin var samt ennþá lokuð þegar ég var að fara heim!
kl. 19:58 | holla ( 0 )
23.
ágú
( 2005 )
þegar ég eignast mitt eigið heimili ætla ég svo sannarlega ekki að hafa pottaplöntur.. að vökva blóm er eitt það leiðinlegasta sem ég veit um.. þegar ylfa fór heim í sumar setti hún okkur fyrir það verkefni að vökva pálma (burknann hennar) og ég klíndi því nottla á gunnar stein því ég myndi alltaf gleyma því hvort eð er.. hann vökvaði kvikindið áðan og það klónaði vatnið eða eitthvað því 10mín seinna byrjaði að leka gulu vatni útum alla gluggakistuna, ógeð!
(þetter næstum jafnmikið vesen og að eiga barn, þarf að vökva og gefa áburð, og umpotta og passa að sé í réttu hitastigi og fái nægilega sól og þrífa upp eftir og tala við)
ylfa gaf mér svona lökkí bambus með ananas oná (lökkbí bambus er geðveikt einkagrín hjá okkur ylfu) sem hét plómi en hann dó.. god ég get ekki einu sinni passað uppá ódrepanleg blóm..
ég kann miklu betur að meta afskorin blóm sem eru falleg og deyja eftir nokkra daga og fara í ruslið bara, enginn pressa
kl. 13:56 | holla ( 4 )
ojjjjjjj allir eru búnir að verað dást að þessum damian rice gaur, ég heyrði fyrst í honum áðan og ojjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj hann er ógeð, eitt það leiðinlegasta sem ég hef heyrt í! hann er alveg leiðinlegri en bítlarnir!
kl. 13:06 | holla ( 17 )
22.
ágú
( 2005 )
ég er í svona skapi þar sem mig langar að skellihlæja ýkt hátt allan daginn.. ég kann ekki við það því gsm og jói eru inní eldhúsi að kela.. nei er að djóka.. or am i... mig vantar ylfu núna, hún er svo fyndin og skemmtilegt og það er svo gaman að taka hláturskastið alvarlega með henni...
ég lifi oft svona daga þar sem mig langar bara að hlæja allan daginn, er með svona kitl í maganum eins og þegar mar þarf að hlæja en má það ekki... eins og í jóga til dæmis, þá má ekki hlæja en er samt fyndið, ég fer líka oft að hlæja þegar ég er ein að labba.. það er svo fyndið þá hlæ ég ennþá meira (og allir halda að ég sé vangefin sem er bara meira fyndið).. er kannski að segja sjálfri mér brandara (ég á mjög auðvelt með að hafa ofan af fyrir sjálfri mér) aða hugsa eitthvað fyndið sem einhver annar hefur sagt.. það er svo margt sem er fyndið.. fólk er fyndið og atburðir eru fyndnir.. tónlist er oft fyndin og líka prump og föt (spurjiði bara nonna!).. pabbi minn er mjög fyndinn.. lífið er fyndið og ég elska að vera til!

kl. 16:36 | holla ( 4 )
ég á bráðum afmæli.. mig langar í:
* vinnu
* pöppí
* stripp
* ísland
annars á ég allt...
kl. 15:11 | holla ( 2 )
21.
ágú
( 2005 )
einhver random þýskur gaur á audioscrobbler var svo ánægður með tónlistarsmekkinn minn að hann spurði hvort hann mætti ekki senda mér biggie vs. frank sinatra plötuna því ég væri greinilega ekki búin að hlusta á hana..
ég veit ekki hvað mér á að finnast um hana.. ég er nottla búnað hlusta á þessi lög og öll biggie lög svona þúsund sinnum (hann er næst uppáhalds tónlistarmaðurinn minn.. sko ég man eftir augnablikinu þegar ég heyrði fyrst í honum.. var að keyra með eiríki bróður mínum á langholtsvegi, vorum rétt hjá þar sem álfheimar klessa inní hann og hann var að spila warning, það var vetur en samt sól.. tónlistarmaður sem hefur svona áhrif á mann að maður man þetta hvað.. 11 árum seinna? hlýtur að vera magnaður)
já þannig það er óþægilegt að hlusta á remix.. en samt alveg pínu gaman.. en samt óþægilegt..
kl. 20:24 | holla ( 6 )
ég kann ekki að meta svona hita, svona 23° og uppúr er ekki minn stíll.. mér er bara alltof heitt og þó glugginn sé opinn þá kemur bara heitt inn og það er svo rakt og glatað eitthvað.. það er líka svo heitt inní badmintonhöllinni að mar svitnar endalaust og þannig..
ég er farin að hlakka pínu til vetrarins.. ég hafði aldrei pælt í því hvort ég fíla betur vetur eða sumur.. ég er eiginlega á því að ég fíla vor og vetur.. vor eru svo falleg, þá eru blómin á trjánum að springa út og allt er að verða sumarlegt, þú veist, breytingin frá vetri yfir í sumar.. en á veturna er svo kósí að tjilla inni þegar er kalt úti og dimmt...
sennilega tengist eitthvað því hvað mér finnst gott að vakna á næturnar
kl. 19:42 | holla ( 0 )
ég vildi ég þyrfti ekki að borða.. ég er alltaf að feisa sama vandamálið: veit aldrei hvað mig langar í og svo þegar (EF!) ég kemst að því þá nenni ég ekki að útvega mér það...
ég fíla norska gaurinn í klúbbnum mínum, við bondum geðveikt yfir því hvað danmörk er glötuð að vera svona flöt og hvað danir eru ógeðslega lélegir að skilja dönsku!
kl. 11:48 | holla ( 0 )
ég er búnað vera hlæjandi í allan dag.. vaknaði kl hálf 8 (sem er nær því að vera háttatími en vaknitími í mínum bókum..) til að komast á æfingu.. á leiðinni þangað sá ég tvennt svo fyndið
* ca sjötuga konu í bol sem stóð á "my mom and dad went to london and all I got was this lousy t-shirt"
*ca sextugan kall í bol sem stóð á "U <3 ME" svona alveg eins og "I <3 NY" bolurin hans hansa og feita gaursins á flugvellinum (haha mannstu fífa það var svo fyndið)
það var æfingasessjon frá 9:30-4 en ég var eina stelpa og vá strákarnir þarna eru æði, ótrúlega skemmtilegir og almennilegir.. fyndnir
það var líka ótrúlega gaman á æfingu, erfitt og skemmtilegt, ég kann svo vel að meta nýja þjálfó, hann er rosa skemmtilegur.. svo kom gaur með skó handa mér og þeir eru flottir og 3 spaða til að prófa.. sko einn er gulur, einn er með dreka og einn er með eld á.. ég prufaði þá alla og fannst eldspaðinn langbestur.. sjit hvað það er töff að vera með spaða með eld á..
kl. 16:21 | holla ( 0 )
ég og ylfa, viðar, friðar og biðar tókum íþróttakeppnirnar alvarlega meðan ég var heima.. á laugardeginum spiluðum við bæði krokk og korkí.. korkí er góður leikur.. á sunnudeginum beiluðu sumir á golfkeppninnni en á mánudeginum spiluðum við badminton, billjard og singstar..
var að setja inn myndirnar úr badmintoninu.. við vorum sko ein í húsinu þannig ég var ekkert að banna strákunum að vera halfneikidd þarna en ég blörraði yfir allt sem sást óvart (djöfull hló ég)
badminton er vangefið skemmtilegt og TBR er besti klúbbur í heimi.. það er meirað segja 50% afsláttur fyrir skólafólk þannig allir ættu að skella sér í babbara! það er einmitt æfari hjá mér í fyrramálið kl hálf 10 uggh..
kl. 18:15 | holla ( 0 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní