
31.
júl
( 2005 )
fyrir þá sem eiga ekki prentara þá er þetta oppsjon!
en ég var líka að setja inn myndir frá nörrebro og bænum og heiman frá mér og af mér og líka sumar af öðru fólki (hehe)
kl. 18:25 | holla ( 0 )
auk þess að vera óstjórnleg svefnpurrka er ég líka letihaugur.. ég toppaði mig samt og fór útí 7/11 á náttbuxum.. þær eru reyndar það settlegar að ég myndi aldrei sofa í þeim.. þúst.. of heitt.. en svo vissi ég ekki hvað ég vildi (það kom fát á mig, þunnhærði var ekki að vinna) þannig ég keypti mér súkkulaði með loftbólum.. þúst.. mér finnst ekki hreint súkkulaði mjög gott þannig súkkulaði með loftbólum hljómaði betur og það minnti mig á hans...
annars eru margir strákar (og þónokkrar stelpur) búnar að verað biðja mig um mynd af grillinu á mér í hárri upplausn til að geta prentað út og lagt á koddann við hliðiná sínum.. ég hef ákveðið að verða við þessari bón og hér er myndin
verðykkur að góðu bara! ég væri líka til í að fá fleiri meil.. er búnað fá frá 4.. það var ógissla gaman.. en á meðan er ég búin að fá 2 rolex repliku meil og 2 love pills, 1 ódýr hugbúnaður og 1 eitthvað í viðbót.. þannig þið eruð ekki að standa ykkur.. það mætti halda að allir væru útúr bænum!
kl. 18:07 | holla ( 0 )
þessi rigning er farin að verða svoldið þreytandi... gsm tjaldaði útí garði með gítarinn til að ná alvöru eyjastemningu..
kl. 17:06 | holla ( 1 )
we can walk wherever we want we can walk wherever I want...
I gotta go to pari!
haha kanye west punk'd er of fyndið
kl. 15:01 | holla ( 0 )
há ken æ pút ðiss..
jú ken meik ðe grintsj lov krissmass
candi bar:*
kl. 13:12 | holla ( 0 )
ohhhhh ég sakna apamömmu og hans orra svooo mikið, ég vildi óska þess að þau væru hérna.. ohhh borða kjútlinga fajitas, djamm á turbine/stengade/heaven/ógeðisstaðnum, spjall, spil, hlustá músík, skoða stráka, knús og hlæja.. ég held ég fari barað grenja (sérstaklega eftir að itunes ákvað að spila de la soul lagið sem er ft. sean poul.. guð hvað ég hata manninn, verst það er á eftir rock co.kane flow sem er vangefið gott).. við skemmtum okkur alltaf svo vel eins og sést svo vel á þessari mynd (he he)

mar fær alltaf mesta heimþrá á sunnudögum.. mig langar í dómínós pizzu og grillaðan hamborgara
kl. 11:42 | holla ( 0 )
ohhhhh djöfull er ég orðin þreytt á að fá bara meil sem fjalla um pillur, kömmsjotts, megrunir, typpastærðir, rólex eftirlíkingar og fólk sem þarf að leggja pening á reikning hjá mér....
vill einhver senda mér meil? bara skemmtilega sögu af sjálfum sér eða öðrum.. eða mynd eða eitthvað skemmtilegt bara plísplísplís (lofa að svara öllum bréfum he he)
katrin@katrin.is
kl. 10:42 | holla ( 0 )
30.
júl
( 2005 )
merkilegt hvernig fólk litast af tónlistarsmekk þeirra sem það umgengst.. hans orri er orðinn die hard nas fan (æj ég held hann noti hann til að minna sig á mig) og núna heyri ég að gsm er að blasta nas frammi..
kl. 22:04 | holla ( 2 )
ég fór í gær að sjá nik & jay í tívolíinu.. mig langaði svo að sjá þá því þeir eru vangefið vinsælir hérna og það er meira hatað á þá í danskri hiphop senu en igor í íslenskri..
lúkkið á þeim er nottla rosalegt, þeir eru yfirleitt berir að ofan, alltaf með bling og oft í pelsum og þannig.. tónleikarnir voru vaaaangefið töff og tívolíið var stappað af fólki..
þeir byrjuðu á því að sýna vídjó þar sem þeir voru að sulla kampavíni yfir gellur sem voru hafneikidd en með NEXUS belti en nexus er krúið þeirra... svo eftir það komu þeir inn, í hvítum baggy buxum, hvítum hlýrabolum, hvítum jökkum og annar með hvítt dúrag en hinn með derhúfu.. þeir skiptu samt tvisvar um föt á meðan á sjóinu stóð..
hápunktur tónleikanna var án efa þega rþeir voru komnir í skyrtur en bara með 1 tölu hneppta.. (stelpurnar tryllast þegar sést í þá sko.. einn setti hendina oní buxurnar sínar og ég hélt ég myndi ærast) og það kom stopp í laginu og þegar takturinn byrjaði aftur og ljósin beindust að þeim þá kviknaði líka á svona reykvél og vindvél sem blés upp og þá voru skyrturnar losnaðar og flagsaðist svona til og hárið á þessum sem er með hár.. svo reyndar líka stundum þegar það kom flugeldar ohh geðveikt
það kunnu allir textana þarna nema ég og mínir.. ókei ég kann reyndar svoldið textann við lækker en ekkert annað.. en reyndar finnst mér ekki skrítið að fólk kunni textana þar sem það voru tvö lög þar sem viðlagið innihélt búmmbúmmbúmm og tvö sem innihéldu ekkva nanananna og eitt sem innihélt eitthvað svona svipað sem ég man ekki..
annars þekki ég strák sem þekkir strák sem þekkir strák sem hefur púttað í röffið á öðrum þeirra heh
kl. 13:25 | holla ( 11 )
29.
júl
( 2005 )
ég fór í dýragarðinn í dag.. vildi endilega fara með litlu systur hans gsm þangað, en það var bara yfirskin yfir hvað mig langaði að fara (hún er 17)
þegar ég er byrjuð að búa ætla ég að hafa svona apatré í garðinum með nokkrum öpum..
saló er að beila.. hún er yndi og það eru forréttindi að hafa hana í sama landi og maður býr í!
kl. 00:19 | holla ( 3 )
28.
júl
( 2005 )
tvisvar hef ég farið í klippingu á street cut.. tvisvar hef ég farið næstum grenjandi þaðan út...
hvað kennir það mér? ekki fara á ódýrar klippistofur.. af einhverjum undarlegum ástæðum eru líka massi af íslendingum að vinna á þessum stofum.. veitiggi útaf hverju..
ÖMURLEG KLIPPISTOFA!
mig langar bara að daði á kompaníinu klippi mig.. ALLTAF!
kl. 15:49 | holla ( 2 )
þetta
er
of
fyndið!!!!!
bömmer að vera búnað fá ammó frá m.o.p. annars hefði ég beðið um svona
kl. 02:31 | holla ( 2 )
díses ég er aðeins of aktív.. getiggi sofnað (sko klukkan á blogginu er á íslenskum þannig ég er að bloggetta kl næstum 4).. samt er ég búnað horfá allan 70mín 3 diskinn með commentary.. sjiiiiii mér finnst sveppi fyndinn, ég er örugglega búnað vekja gsm og co oft með hlátursköstunum mínum.. "hann er með svitaband til að sjást í myrkri" klassík
svo hringdi mesta hönk á íslandi í mig úff.. mar sofnar nú bara ekkert eftir þannig símtöl
kl. 01:48 | holla ( 0 )
27.
júl
( 2005 )
mig vantar líka dáltið alvarlega nýtt útlit á þessa síðu.. buuuhuuuu ég er búnað gera eitt en mér finnst það bara ááágætt.. ég kanniggja gera flott!
kl. 22:52 | holla ( 2 )
ég kíkti í heimsókn á leifsgötuna og labbaði svo heim.. ég er í ferðafíling í dag újjeeee
djók..

ég labba svo hratt að hárið flagsast í vindinum
en ég var að taka myndir á leiðinni heim og ég lenti án gríns í því ÞRISVAR að einhver gaur sagði "Hey ég skal taka mynd, þá getur þú verið inná líka og myndin flottari" greinilega pikköpp lína dagsins..
það er of næs að labba um í kaupmannahöfn um kvöld í svona fínu veðri, það er svo mikið mannlíf og mörg ljós og fallegt.. og nýja myndavélin mín er fín og líka allir sem búa á leifsgötu

þetter tekið af rådhuspladsen og ég þarfa farí klippingu.. helst á morgun
kl. 22:35 | holla ( 4 )
hey! ég á afmæli 15. sept en fékk samt afmælisgjöf frá mömmu og pabba í dag.. ég fékk canon ixus 50 sem er óóóóótrúlega flott vél, ég hlakka mikið til að notana, svo lítil og nett og fín.. er sko búin að eiga ixus 300 í 4 ár og myndi ekkert vilja eiga neitt annað en ixus..
á leiðinni heim kom ég við hjá arabavinum mínum til að kaupa mér ávexti, ég dýrka þessa gaura sko, þeir eru svo vinalegir og góðir þannig ég reyni að versla sem mest hjá þeim.. ég spjallaði aðeins við þá áðan og þeir spurðu hvaðan ég væri, ég sagði þeim það og spurði hvaðan þeir væru.. svarið var "írak.." og það hefur ábyggilega komið einhver svipur á mig um leið og ég fékk skerandi sting í magann yfir hversu mikill munur væri á lífi okkar.. ég með spánýja myndavél í kassa að kaupa mér kirsuber, þeir standandi bakvið búðarborð eða raðandi gosi í kæli frá 8 til 23 alla daga.. því hann spurði "hefuru heyrt um írak?" og ég svaraði "já.. hafa ekki allir heyrt um írak núna..", hann brosti bara og sagði "jú ætli það ekki.."
úff þetter svo hrikalegt, mig langaði svo að spyrjann allskonar en þorði það ekki.. en ég get samt ekkert verið að hafa samviskubit yfir því hversu gott ég hef það því ég valdi mér heldur ekkert stað til að fæðast á frekar en hann.. það væri best ef allir hefðu það bara svona gott
kl. 15:03 | holla ( 4 )
úje búnað hlaupa alla leið heim úr skólanum..
var 68 mínútur og þetteru 12-13 km... æj það er alveg ágætt held ég (ég veit ekkert hvað fólk hleypur á), sérstaklega miðað við að ég hleyp aldrei lengur en 40mín.. hey! hef líka aldrei hlaupið lengra en 10km áður, til hamingju ég!
haha og ég var á undan gsm heim sem fór í strætó og lest og strætó
kl. 12:37 | holla ( 3 )
26.
júl
( 2005 )
ég sat í einhverjum hægindastól í illum meðan gsm skoðaði og skoðaði og skoðaði (guð hvað maðurinn getur verslað, ég fæ mér alltaf sæti) þegar lítil stelpa (rúmlega 1 árs örugglega) strunsar í áttina til mín og stoppar beint við hliðiná mér og glápir á mig og glápir og glápir þangað til ég segi bara "HVAÐ?" og hún heldur bara áfram að glápa og segir ekkert (hva skilurún ekki íslensku?) þangað til pabbi hennar kallar á hana, þá fer hún svona 2m í burtu og heldur áfram að glápa ýkt lengi þangað til pabbennar tekur hana upp og fer með hana.. ég er greinilega bara stönníng
vitiði hvað er glatað? að almennt í strákabúðum eru ekki stólar fyrir konur sem eru að gefast upp á öllu versleríinu í strákunum.. öfugt við að það finnast varla konubúðir þar sem ekki eru stólar fyrir þreytta stráka.. ýkt svindl, ég hef svoooo oft blótað þessu.. fokkíng kallabúðir
kl. 19:48 | holla ( 0 )
ohhh aldrei er td biddsfæd í hollinu hjá mér
[1|2]
reyndar yrði ég heví pirruð ef einhver sem ég þekkti kannski ekkert færi að svara fyrir mína hönd.. þetter of fyndið en á morgun ætla ég uppí skóla og fá einkunnirnar mínar og skokka svo heim.. ég er strax farin að hlakka til.. 12km.. þeas ef ég villist ekkert hehe
kl. 19:37 | holla ( 3 )
hey einu sinni var feministi í kastljósinu að ræða blogg og þar var birtur texti og skrifað "-katrin.is" undir.. en þetta var texti sem var tekin úr spjallþráðum hjá mér og ÉG skrifaði ekki heldur einhver gestur síðunnar..
um daginn voru feministar í kastljósinu og ísland í dag að eipa yfir komu snoop.. þar var birtur texti úr lagi með xzibit ft. snoop og dr. dre og birt ríma eftir xzibit en skrifað "-snoop dogg" undir...
er þetta eðlilegt maður spyr sig? þá af þeim að feika svona og þá af sjónvarpinu að taka þátt í þessu?
kl. 17:17 | holla ( 3 )
helena systir gunnars steins og kærastinn hennar eru í heimsókn hjá okkur og voru svo yndisleg að koma með lamb.. giggity giggity giggity (þúst eins og quagmire segir)
svo talaði ég við lín og ég þarf bara að skila inn einkunnunum mínum fyrir vorönn og þá fæ ég monns vúhú! næstum kominn ágúst og fer að styttast í að ég verði brók..
kl. 17:08 | holla ( 0 )
25.
júl
( 2005 )
ohh það gerðist ýkt leiðó..
svarti.. mjúkasta rottan okkar, var búin að vera lasin í 2 daga og ekki búnað borða neitt eða vilja hreyfa sig þannig ég fór með hann til dýralæknis þar sem hann dó þegar hann var að kíkja uppí hann.. aumingja svarti, aumingja ég, aumingja ylfa og auminga dýralæknirinn sem hefur ábyggilega hugsða "ómægaaaad ég drap rottuna hennar"...
en það er ekki gott að vera lasinn þannig núna hann er ábyggilega á rottuhimnum með ben
*snøftsnøft*
kl. 16:39 | holla ( 9 )
24.
júl
( 2005 )
það er svo mikið sápa í kringum fazmo bloggið að það er alveg fyndið að fylgjast með því.. grunar einhvern vegin að skotnar smástelpur séu í meirihluta kommentara því komment eins og:
"er ingvar á lausu"
"er hallli hættur með töru"
"er * með söru?" (* = hvaða fazmo meðlimur sem er)
"eru þessar stelpur ekki 16?"
eru algengust.. nema hvað þeir taka alveg þátt í þessu og fyrrverandi kærustur líka.. annars var ég svoldið í liði með þessari bryndísi, hún var alltaf svo brosandi og glöð á öllum myndum.. ég held þetta sé samt auglýsingabrella hjá þeim til að fá fleira fólk inná síðuna og festast í sápunni (sjáðu ég er alveg komin með skoðuna á fólki sem ég þekki ekki neitt bara af myndum að dæma, ég held td að gummi borgar segi ófyndna brandara.. hann er þannig týpa á myndunum)..
ég mæli með að sara verði minnislaus og einhver uppgötvi að mamma sín er ekki kynmóðir sín heldur siggi á verkstæðinu
hey annars hringdi bjarki.is í mig áðan, hann er einhverstaðar á labbi, hann er svo duglegur, sjit búinn að labba 900km
kl. 22:48 | holla ( 11 )
22.
júl
( 2005 )
hey veistu hvað!
í fyrra á innipúkanum þá var gaurinn sem er/var hristari í singapore sling í pollajakka.. mér og hans fannsta samt svo ótrúlegt þannig við ákváðum að snerta jakkann til að gá hvort þetta væri í alvurunni eyjadress.. hans snerti fyrst og þá leit gaurinn á okkur og við létum eins og ekkert væri og svo prufaði ég að koma við og sjeikerinn leit ýkt reiður við og sagði:
"ef þið gerið þetta einu sinni enn þá drep ég ykkur bæði"
nærridauðareynsla.. hefðum getað verið drepin með tamborínu
kl. 11:01 | holla ( 2 )
21.
júl
( 2005 )
ókei.. er í alvörunni enívonn átðer sem finnst lemon gras gott??
ojjjjjjjjjj það er svo vont! og allur matur er nowadeis skreyttur með þessum viðbjóð
kl. 16:45 | holla ( 6 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní