Katrín.is
31.
mar

( 2005 )
veiii komin heim til mín í apahreiðrið.. þessi tækjafýkn mín er nú búin að færa sig yfir í eldhúsið og núna á ég ótrúlega flottan steingráan kitchenaid blender (svei þeim sem bölva lín!) fór samferða kristbjörgu frænku minni sem ætlaði að gista eina nótt í köben hjá höllu frænku og færa sig svo til svíþjóðar til systur sinnar, lenu frænku (og fjölskyldu) og fara á skíði..

frænkur mínar eru ótrúlega klárar, halla er að taka master í viðskiptó og systurnar eru báðar læknar.. ó svo duglegar! ég ætla að taka mér þær til fyrirmyndar og vera duglegri að læra...

ég er algjör sveppaheili og gleymdi hleðslutækinu fyrir tölvuna mína en ég er svooo heppin að trausti er að koma á morgun og lofaði að kyppa því með... ég hlakka samt meira til að sjá hann en hleðslutækið.. mm:)

kl. 23:31 | holla ( 0 )
30.
mar

( 2005 )
ég er mikill gloss fan og juicy tubes frá lancome eru uppáhaldið mitt, sérstaklega lychee.. svo í fríhöfninni í gær sá ég það voru komnar nýjar juicy tubes týpur, í bleikum kössum! (og það getur nottla ekki verið neitt nema jákvætt) ég missti mig úr spenningi og keypti mér miss rose, djöfull erann flottur.. ohh elska gloss, túpan er líka miklu flottari með blómum og svona he he (ohh litlu hlutirnir í lífinu sem gleðja mann)
kl. 23:12 | holla ( 2 )
ég nenni meiriháttar mikið að pakka niður aftur.. ohh þoliggi ferðalög..
kl. 22:32 | holla ( 0 )
tja.. ef ég hefði ekki komist inn í iðnskólann, þá myndi ég svo sannarlega ekki auglýsa það í mogganum eins og þessi ljósmyndarastelpa
kl. 16:37 | holla ( 4 )
veitiggi en þetta er að kveikja í mér.. pant eiga gaurinn í bláu stullunum
kl. 14:36 | holla ( 6 )
úff ekki nóg með að sundurbitað lík hafi fundist í köben 3km frá mér, heldur birta þeir mynd af höfðinu því þá vantar að bera kennsl á líkið.. tja ég þekkjann alla vega ekki
kl. 08:51 | holla ( 5 )
mér finnst að allir ættu að tjekka á uppáhalds íslenska rapparanum mínum, (ásamt badda klass bjé) dóra dna, í köben á föstudaginn og fyrir þá sem hafa gaman af hiphoppi þá mæli ég með þessu á laugardaginn
kl. 08:48 | holla ( 0 )
maður rétt skreppur burt og sigurjón opnar nýju síðuna sína.. ég missti ss af opnunarpartýinu! en síðan er svoooooo flott. til hammara beibí:*
kl. 08:34 | holla ( 1 )
ég er komin heim og ég er farin að halda að það hafi verið amfetamín í kaffinu sem ég fékk.. er ekkert búin að sofa og get ekki sofnað núna.. hmm mjög undarlegt allt saman..
kl. 08:24 | holla ( 0 )
29.
mar

( 2005 )
hmm ég myndi segja það væri mun meira óspennadi að fylgjast með leik á textavarpinu en í seljaskóla. en engu að síður áfram ír!
er að farað leggjaf stað heim og til að gera ferðalagið enn leiðinlegra þá ætla ég að lesa data logic á leiðinni

kl. 20:11 | holla ( 0 )
27.
mar

( 2005 )
bara svona til að benda ykkur á hversu leim keflvíkingar eru þá hafa þeir verið að hringja í leikmenn ír næturnar fyrir leik og hóta þeim dauða ef þeir koma til keflavíkur og þannig.. sumir eru reyndar eðlilegir og finnst þetta skammarlegt meðan aðrir segja þetta bara vera til að kenna ír-ingum hvernig er að vera í úrslitakeppni.. segir ennþá meira um keflvíkinga.. nema odd, hann er góður á því, ég hlakka bara til að heyra úrslitin úr næsta leik, leiðó að komast ekki á leikinn. ví áfram ír!

og ég á nýja skó það er alltaf ótrúlega skemmtilegt, ekki satt? air force 1 alveg eins og the game (úff máttur product placement) fórum líka áðan í heimsókn til landsstjórans, þau hjónin voru samt ekki heima því þau þurfti að mæta í brúðkaup karls og kamillu.. og svo ævintýrapartýið í köben næstu helgi! dem mar næstu helgi er rjd2 að spila hérna, ég hefði verið geim í að mæta á það! ég mæti bara í ævintýrapartý í staðinn..

eníveis, ég ætla að setjast við 18 manna langborðið sem er hérna í þessu riiiiisahúsi.. ég kann að meta þetta hús!

kl. 01:18 | holla ( 2 )
26.
mar

( 2005 )
úff þessi tímamismunur fer alveg með mig

er að rembast við að halda mér vakandi framyfir miðnætti svo ég vakni ekki aftur kl 7 eins og síðustu 2 morgna, vaknaði 7:15 í gærmorgun og furðaði mig á því hvað krakkarnir gætu sofið.. sóley spurði mig svo miður sín hvort ég hefði eitthvað getað sofið, þá höfðu þau orgað í kór í 3 tíma beint fyrir utan hurðina mína.. ahhh það er of svít að sofa alltaf eins og dauð..

annars átti ég gott samtal við lil bro áðan þegar ég rak augun í að það stóð ronaldo aftan á man u bolnum hans
k: ronaldo.. bíddu spilar hann ekki á spáni eða ekkva?
a: það eru til fleiri ronaldoar sko..
k: er beckham ekki uppáhalds gaurinn þinn í mansjester?

þá horfði hann á mig eins og ég væri þroskaheft

kl. 04:58 | holla ( 2 )
25.
mar

( 2005 )
kanada er ææææði! og ég fékk sjúfflei-inn minn áðan og hann er sætastur, svo fékk ég líka vanillutannkrem í gær vííííí

ég var áðan að krúsa í framsætinu á lincoln.. mér leið eins og rappstjörnu (hehe einmitt) en ætlaði bara að láta ykkur vita að ég held með ír á morgun á móti keflavík.. keflvíkingar eru svo leiðinlegir að stelpurnar þar eru allar að hömpa gaura af beisinu..eignast svo barn með frænda sínum þegar kaninn er fluttur heim aftur.. nenenenen áfram ír

kl. 23:42 | holla ( 0 )
23.
mar

( 2005 )
kanada hjír á komm!!!
vonandi sé ég kífer söþerland.. it's jack!

kl. 13:36 | holla ( 0 )
22.
mar

( 2005 )
ég var í þungum þönkum í sturtu þegar ég hugsaði til þess þegar greased up deaf guy sagði "you're never gonna catch me" og fékk kreisí hláturskast og gat ekki hætt að hlæja.. sagði það svona upphátt fyrir sjálfa mig og hló meira..
kl. 22:40 | holla ( 1 )
ég hlakka svoooo til að fara til kanada á morgun! fæ shuffúlinn minn (vonandi, hann var sendur á skrifstofu frænda, kannski þarf ég að sækjann þangað) ooooog svo ætla ég að nýta tímann í að farað versla.. úha ég ætlað farað gera innkaupalista

kanada er geggjað.. en ég hefði samt alveg verið tíl í að frændinn væri frekar sendiherra í flórída.. eða kína..

kl. 14:31 | holla ( 0 )
kaldhæðni er uppáhalds tjáningarformið mitt.. aðallega af því heimskt fólk skilur það ekki og hvað er fyndnara en þegar fólk er ekki að ná kaldhæðni?
EKKERT!

kl. 01:02 | holla ( 7 )
21.
mar

( 2005 )
mm ég fór á serrano í dag og það er sko ekki að ástæðulausu að hann einar er netkærastinn minn.. það er svooooooooo góður matur þarna! stelpan sem afgreiddi mig var líka rosalega almennileg.. sótti nýjan kjúlla fyrir mig því henni fannst þessi sem var til staðar ekki nógu girnó..

svo keypti ég mér buxur í retro og gaurinn þar var líka fáránlega næs.. hvað er fullt tung? ég er samt orðinn svo mikill dani í mér, farin að segja bless við starfsfólk.. fattaði það ekki fyrr en litli bró minntist á það áðan þegar við fórum í ísbúð (mhm það er það sem mar gerir þegar liðið manns tapar, þá fer mar að grenja og fær sér ís) fer bráðum að bæta við "eigðu áframhaldandi góða helgi"

kl. 22:22 | holla ( 4 )
mikið djöfull var leikurinn leiðinlegur.. en ég gat þó alla vega huggað mig við að þegar ég nennti ekki að horfa á leikinn lengur (því hann var svo leiðinlegur sjáiði til) þá gat ég einbeitt mér að því að horfa á ír strákana.. sjiiiii hvað þeir eru sætir.. og ekki skemmdi fyrir í restina að setja alla strákana sem ég hef ekki séð á hlýrabol hingað til inná.. mm 85 er góður árgangur..

skásti gaurinn í keflavík er maggi.. en það er nú bara af því hann spilar með grímu og það sést næstum ekkert í smettið á honum

ég trúi á mína menn á laugardaginn!!!

kl. 21:38 | holla ( 2 )
jeah búnað fá fullt af bitrum kónum hingað inn sem skamma mig fyrir að finnast þær leim að kalla karla kaggla þar sem ég kunni ekki að stafsetja sjálf.. geri mér nú fullkomlega grein fyrir því að kaggl er hvorki stafsetningar- ná ásláttarvilla frekar en "ekkva" heldur gerði ég ráð fyrir því að það væri svona "barnamál" svipað með og að segja "míns vill svona" og þar liggur munurinn á minni stafsetningu og þeirra (taki þær til sín sem eiga).. ss ég skrifa eins og maður talar.. ég þekki allavega engan sem er pirraður og segir "er eitthvað að!" heldur segja flestir "erekkva aaaað!" en það er annað mál..

svona nokkrar ábendingar um barnamál sem þær geta þá tekið upp og bætt í orðaforðann sinn þá kallaði frænka mín mig iðulega kratínu og kallar bróður sinn dav.. sem heitir dagur.. og svo kallaði hún tölvuspilið sitt blýant sem mér finnst frekar skæs

EN mér finnst mest særandi þegar þær segja að þeim finnist ég ekkert skemmtilegur bloggari og nenni ekki að lesa mig.. mér líður bara eins og það hafi verið rekin 10 sverð í gegnum hjartað á mér.. fyrir utan líka allar sem segjast ekki vita hver ég er.. það er ömurlegt, ég hélt að allir á íslandi vissu hver ég er.. tja og jafnvel danmörku líka!

kl. 21:36 | holla ( 1 )
20.
mar

( 2005 )
og mér finnst ragnheiður gröndal leiðinleg!
kl. 19:54 | holla ( 11 )
ahahahah víiíííííj

ég er ekkert smá eftirminnileg! alveg minnst á tvennt sem ég hef skrifað fyrir löngu, eitt fyrir 3 árum en já... ég hef alltaf verið þekkt fyrir að vera bitur út í lífið.. há vell ðei nó mí svo segir ein að toothsmith sé betri en ég búhú.. best að nota tækifærið meðan þær eru að skoða og benda þeim á hvað ég bloggaði um toothsmith

heyrðu bíddu í leiðinni ætla ég líka að koma því á framfæri að mér finnst að það eigi að banna fólki með félagsleg vandamál að eignast börn sem það hefur ekki getu í að ala upp eða sjá fyrir

tehehehehe

kl. 19:44 | holla ( 8 )
þegar maður er með munnangur þá pirrar maður það endalaust með tungunni.. svona munnangur fyrir augun eru td þegar maður horfir á fólk sem manni finnst ógeðslega ljótt og asnalegt.. munnangur fyrir heilann er þegar maður les síður á netinu sem fara óstjórnlega í taugarnar á manni... sú síða sem ég nota í það er spjallið á barnalandi..

kónurnar sem nota þetta eru í alvörunni eitthvað algjört rusl sem án efa myndi búa í hjólhýsi ef við værum í bandaríkjunum.. hvaða fullorðna kona kallar karla "kaggla" það kemur ótrúlega oft þarna fyrir.. svo segja þér minns er að fara að gera þetta og hitt.. fyrir utan að nota barnalandsíður til að kvarta yfir hegðun mannanna sinna (fyrirgefðu kagglanna.. kagglinn míns var ótrúlega vangefinn í dag).. hvernig væri að ræða bara við manninn og reyna að komast að niðurstöðu þannig.. ekki væla í einhverjum öðrum jafnsorglegum pjullum sem segja "oj ömurlegur kaggl skildu við hann" og svo líka "stelpur viljiði gefa mér styrk mér líður svo illa" vá á fólk ENGA vini eða ENGAN sem hægt er að tala við? það er alveg ástæða fyrir því að fólk á ekki vini sko... svo þegar þær eru að setja myndir af krökkunum sínum "verð bara að monta mig" og þá langar mig alltaf að kommenta "mér finnst þessi krakki bara ekkert svo sætur.. hef oft séð sætari krakka".. drasl

en að öðru þá finnst mér selma vera alltof mikil kelling fyrir þetta lag.. vá hvað hún varð mikil kelling á stuttum tíma.. nema þetta vídjó sé bara ekki að gera mikið fyrir hana? pff ég hefði sent bestu nylon stelpuna í þetta.. þessa þarna litlu dökkhærðu krúttlegu.. skil ekki af hverju ég fæ ekki að ráða.. fyrir utan að það er frekar sad að fara tvisvar í júróvissjón.. (jájá djonní lógan, hann er fáránlega töff)

kl. 15:19 | holla ( 17 )
úff hvernig kemst apple búðin upp með að selja 1G shuffle á 18000... ég er að borga 9000 fyrir minn sem ég fæ á miðvikudaginn vúha.. annars er græjusíðan í tímariti morgunblaðsins tileinkuð mér.. ég á shuffle, og sportcase og nákvæmlega eins heyrnatól en reyndar aðeins aðra útgáfu af símanum.. (ég á e800 en d500 er í blaðinu.. e800 er flottari á litin en d500 er með blútúþ sem mig langar í)
kl. 13:12 | holla ( 3 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox