Katrín.is
28.
feb

( 2005 )
hey eftir mjög svo þögulan dag fékk ég munnræpu!
kl. 23:22 | holla ( 0 )
pílateskennarinn var með svo mikla kameltá áðan að ég gat varla einbeitt mér..
kl. 23:21 | holla ( 0 )
VEIIIII ég leit á símann minn og sá það var komin ný dagatalsmynd sem þýðir nýr mánuður sem þýðir að mars.. mánuðurinn sem ég var búin að bíða svo lengi eftir er kominn.. ég er alla vega alltaf búnað segja "Ohhhh ég hlakka svo til þegar febrúar klárast þá hlýtur að farað hlýna..." plís herra veðurguð ekki svíkja mig.. djö sá ég við þér í dag helvítið þitt þegar ég fór í síðar "HAH ANSIGT!"
VELKOMINN MARS! ég kann vel að meta mars!

kl. 23:15 | holla ( 0 )
nei ég var nú bara að grínast EN:
ahahaha pant aldrei fara á námskeið hjá heimanam.is

kl. 22:54 | holla ( 0 )
óþarfi að hata mig þó kærastanum þínum finnist ég sætari en þú:Þ
kl. 22:41 | holla ( 0 )
27.
feb

( 2005 )
1.maí verður góður dagur..
- næsti þáttur í american dad verður sýndur
- fyrsti þátturinn í nýju family guy seríunni verður sýndur
- tómas frændi á afmæli;)

...annars er þetta betri mynd af honum

kl. 22:03 | holla ( 0 )
sunnudögum á mar að eyða í rúminu, horfandi á vídjó, étandi nammi og í að vera sjoppulegur og síðast en ekki síst vera fyndinn:
ég fín:)
ókei mér finnst alla vega fyndið að teikna á mig yfirvaraskegg sem sést bara í blakklæti!.. svo vorum við hans í candy megastore áðan og sáum hjartalagaðan kassa fullan af nammihjörtum og vorum að spá hvort ég ætti ekki að kaupa og senda elskunni minni.. en vorum ekki viss um að hann myndi fatta grínið og myndi kannski verða hræddur við mig, við viljum það ekki..

kl. 20:16 | holla ( 2 )
ég skellti mér í babbarapartí í gær og tók nokkrar myndir.. oooog setti þær inn núna, samt svekkjó það mættu soldið fáir af því ég er eilega aldrei með myndó með.. en rjóminn var þarna.. ég ha ha haaaaaaaa
kl. 19:40 | holla ( 0 )
ég hélt að randers væri norðar en köben sem er greinilega misskilningur því fólkið í liðinu sem ég keppti við í gær (ss randers badminton klub) var með svo rosalegt basetan að kallarnir.is hefðu orðið abbó
kl. 17:53 | holla ( 0 )
ég vaknaði við sólargeisla og hugsað víííj ég ætla að fara í ísbúðina á skt. hans tovr!!! leit útúm gluggann og veðrið leit yyyyyyndislega út, dró hansa memmér á o's í amerískar pönnsur og plönuðum að fara í ísbúðina á leiðinni heim.. eeeen svo fórum við út og það er einn mesti kuldi sem ég hef upplifað hérna í danmörku, xboxikrúsí segir feels like -10.. það er ómannúðlegt! þannig við fengum okkur bara pönnsur og erum búnað fresta ísnum fram á sumar.. útrúlegt hvað maður lætur gluggaveður plata sig í hvert einasta fokkíng skipti!
kl. 16:14 | holla ( 0 )
26.
feb

( 2005 )
ég vara keppa og liðið mitt tapaði 7-6 en ég vann einliða og tapaði tvíliða.. elska samtöl þegar mar er búnað tapa
ég: fannstér ekki dökkhærða stelpan alveg eins og kynskiptingur?
hin: jú hún er mjög ljót..... og heimsk!

kl. 19:11 | holla ( 0 )
25.
feb

( 2005 )
í american idol (sem bæ ðe vei er 2498342ð3984x skemmtilegra en íslenska, vá þorvaldur er einn leiðinlegur maður.. eina fyndna er þegar bubbi segir ekkva sem honum finnst fyndið og hallar sér aftur í stólinn og kyppir svona með báðum höndum í einu í jakkann sinn, svona eins og sigurjón gerði í einu fóstbræðraatriði þegar hann sagði "og þá sagði þjónustustúlkan brjóstahaldarinn er í skápnum vinstra megin" og sigurjón er svoooo fyndinn!!!) held ég með
- constantine
- mario
- travis
- nadiu
og miköluh af því hún á svo fyndið vandræðalegasta moment:
" I was at a party. I went to the bathroom. When I came out my friend said my skirt was stuck in my panties! Oh God!"

kl. 22:41 | holla ( 10 )
hiphop blogg með næs mynd af kærastanum mínum nas og viðtali við hann síðan 96 og annað hiphop blogg með eldgamalt vídjó af rza að rappa og odb að bítboxa í hæfileikakeppni..
kl. 21:36 | holla ( 0 )
ég og gsm fáránlega góð á því á skrifstofunni okkar
tzöff

kl. 21:04 | holla ( 1 )
Your Dominant Intelligence is Logical-Mathematical Intelligence
You are great at finding patterns and relationships between things. Always curious about how things work, you love to set up experiments. You need for the world to make sense - and are good at making sense of it. You have a head for numbers and math ... and you can solve almost any logic puzzle.

You would make a great scientist, engineer, computer programmer, researcher, accountant, or mathematician.


pff segið mér eitthvað sem ég veit ekki

kl. 16:06 | holla ( 1 )
zzzzzzzzzzzz

skiliggi hvernig fólk nennir að láta dv fara svona í taugarnar á sér.. álíka heimskulegt og að fara inná blogg og segja "ÖMURLEG SÍÐA".. uu enginn að skipa fólki að kaupaða..

svo er ég meirað segja ekki alveg hlutlaus í báðar áttir þar sem dv setti nú móðurbróður minn á forsíðuna en sáu sóma sinn í því að biðja hann afsökunar og draga það sem þeir skrifuðu til baka þannig þeir eru nú ekki alveg hjartalausir greyin..

mér finnst dv svoooooo skemmtilegasta blaðið á íslandi.. meina allir sem komast í það lesa það spjaldanna á milli (líka þeir sem þola það ekki, bara svona til að lesa það og pirra sig og verða reiðir hehe).. annað en td mogginn þar sem enginn les "í verinu" eða lesbókina..

kl. 15:14 | holla ( 1 )
ég vaknaði í svo fáránlega góðu skapi!!! byrjaði á því að snúza nokkrum sinnum og fór svo að skokka um hverfið.. æj elsku köben er svo æðisleg.. fyrir utan að það er hundaskítur útum allt!! svo kom ég heim og fór í geggjaða sturtu og gerði mig ýkt sæta (pff eins og það hafi þurfti mikið til) og borðaði karmellumúzzlí og vaskaði upp og setti í þvottavél og bjó mér til kaffi og borðaði bóndabrauð með smjöri og osti og smurði mér nesti fyrir skólann og fékk lánaða bók hjá hansa sem ég las svo í lestinni, hún er rosa fyndin og skemmtileg, so far alla vega, mætti svo í skólann og hitti gsm og bara allt æðislega gaman.. ég er rosa hress í dag:) og ef einhver ætlar að reynað skemma fyrir mér daginn þá getur sá hinn sami bara hoppað í rassgatið á sér, á leiðinni heim ætla ég að koma við hér og fá mér ótrúlega gott sjit og svo ætla ég heim að tjilla og jafnvel horfa á finding neverland (mhm í bíó sko, ég á ekkert ólöglegt efni).. og nýjasta þáttinn af joey hey og úrslitin úr idolinu.. í tjillinu í rúminu mínu með góðu sængina lalallaalala
kl. 14:04 | holla ( 0 )
díses.. það er enginn búnað skrifa í gestapó síðan 10. feb.. það eru MARGIR dagar síðan!!! bót í máli samt að þá er trausti efstur... solid.. enska þýðingin á trausti.. trausti er uppáhalds.... nafnið mitt!:)
kl. 13:52 | holla ( 0 )
awww það gleður mitt litla en jafnfram hlýja hjarta að tilveran skuli linka á mig sem "heitasti bloggari landsins".. ég vissiggi einu sinni að tilveran væri til.. skoða hvorki hana né batman ever.. nenniggja skoða linka á einhverjar hundleiðinlegar myndir af "strákar að kyssast" eða fullir krakkar á menntaskólaböllum.. zzzzz (alla vega síðast þegar ég var að skoða batman voru bara þannig linkar þar) en tilveran fær props fyrir þetta, ég er glöð, mjööööög glöð (fósssbræður) ég er annars líka bara mjög glöð í dag, það er góð lykt af hárinu mínu..

talandi um hár þá dreymdi mig að ég hefði farið til íslands og ætlað að fara í klippingu hjá daða á kompaníinu sem klippir mig alltaf (af því hann er bestur) nema hvað ég mætti og þá var hann hættur þar og ég gat ekki fundið út hvar hann var að klippa búúú ömurlegt.. eins gott hann verði þarna þegar ég kem heim, á sko pantað 14. mars hjá honum...

annað hræðilegt sem mig dreymdi var að ég var chillin át á einhverju engi og það alltíeinu fylltist af stórum fiðrildum með fallega vængi og þau voru öll ekkva að setjast á mig og ég var að fríka út og reyna að slá þau af mér... þið mynduð fatta hvað þessi draumur er hrikalegur ef þið vissuð hvað ég er ógeðslega hrædd við fiðrildi..

kl. 12:35 | holla ( 2 )
24.
feb

( 2005 )
ég er búin að eignast nýjan vin í kaupmannahöfn:) hann er svoooooooo sætur og svooooooo vel lyktandi og alltaf hlýr og góður.. og yndislegasta er að hann býr á nörrebrogade, rétt hjá mér... hann er með heimasíðu alveg eins og ég..
hann heitir tim

kl. 21:45 | holla ( 1 )
PFFFF ég lýsi frati á danmörk.net.. það er listi yfir bloggara í danmörku og ÉG ER EKKI ÞAR! bara einhver amatörablogg sko ef ÉG! bloggprinsessan er ekki á listanum yfir bloggara í danmörku, hver veit hvaða vigtige upplýsingar vantar í hina flokkana..
ÉG er FJÚRÍUS!

kl. 21:27 | holla ( 2 )
nýja hönkið í desperate housewifes.. sjit það er uppáhalds þátturinn minn:|

elska þegar fólk kaupir bleikt stöff handa mér, það þýðir að það er að fylgjast með.. pabbi kaupir td iðulega bleikan tannbursta handa mér og litli bróðir minn gaf mér eyrnalokka með bleikum steinum, mamma gaf mér bleikt bangsabókamerki, bleikan æfingabol og bleikan silkitrefil (svona til að nefna eitthvað)...

ég vara hengja upp fleiri myndir af vinum mínum á skápinn minn, það er alltaf næs að geta séð vini sína, þeir eru líka svo sætir og fínir..

það er ógeðslega kalt hérna, ég er strax farin að kvíða því að fara á æfingu.. það er samt næs við að fara á æfingu að ég tjilla í lest í rúman hálftíma, lestar eru ótrúlega þægilegur ferðamáti..

hansi á aldrei eftir að læra aftur, ég var að fá tiger woods leikinn f xbox.. ég keypti líka nýjan kontroller eþs annan.. hann er dökkgrænn, svona skrímslagrænn en líka glær.. í stíl við glæra xboxið sjáiði til.. ég elskaða..

ég var að kaupa mér karamellumorgunmat.. ég hlakka til að borðaða.. ég er líka að farað keppa um helgina.. það verður ábyggilega gaman, mér finnst skemmtilegra að keppa á heimavelli...

ég er búnað eignast nýjan írskan vin í skólanum, hann segir að ginnessinn hérna sé ömurlegur og hann getur fundið mun á ginness í belfast og döbblin.. því hann er búinn til í döbblin og er því bestur þar...

ég hlakka til þegar febrúar klárast, þá hlýtur að farað hlýna.. andskoti er búið að vera kalt hérna í febrúar.. reyndar fer ég til ottawa í mars og xboxið mitt sagði að hitinn þar feels like -15.. sem er kaaaaaalt!

ég hlakka svo til að hitta rassgatsyndið mitt!:*:*:*:* <3 <3 <3

kl. 16:07 | holla ( 2 )
23.
feb

( 2005 )
í gær átti elskulega kæfan mín og ástkona til margra ára afmæli.. og ég mundi eftir því (annað en í fyrra sko) ooooog ég sakna hennar ógurlega mikið og ætla að tjekka á æfingu með henni þegar ég fer heim eftir rúmar 2 vikur
hún fær koss í tilefni dagsins:*

kl. 18:37 | holla ( 0 )
ég á nýja glossa og ég er svo ánægð þeir eru meirað segja í ógeðslega flottum kassa víííííj (sko mig langar oft í dýra hluti en er samt alveg ótrúlega ánægð með ódýra hluti líka e hehehe heee (elska hvernig peter griffen hlær))
kl. 12:11 | holla ( 5 )
í morgun þegar ég vaknaði þá varð mér hugsað til tobba, ég sakna hans!
kl. 11:17 | holla ( 0 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox