
31.
des
( 2005 )
jéeeahhh ég er ennþá að að hlæja að garðar cortes gríninu hans óskars beibí, hann sagði það á 2. í jólum.. óskar er bara svona fyndinn..
ég fór út í gær og hitti þráinn, sölva, perlu, saló, agga og arnar.. djö varða gaman.. hafði sko ekki hitt arnar svo oft áður en fokk hvað hann er fyndinn líka!
við fórum á einhverja tónleika á gauk á stöng sem voru tribute til einhvers gaurs (hvað veit ég??) og sáum 3 hljómsveitir spila.. þráinn var svo ánægður með þær að hann var alltaf að segja gaurunum það.. þá sagði ég þráni frá því þegar ég ákvað á árinu að segja alltaf við fólk ef ég var að hugsa eitthvað fallegt um það eða hverju það er í..
þegar við fórum á sirkus til að hitta hans og jón (og þórhildur var líka þar.. og hel beibí), þá masteraði ég þetta heiti mitt haha ég var samt engan vegin að halda rétt á spilunum þegar ég var bara að segja fallegt við samkynhneigða karlmenn og konur.. hitti líka helgu þóreyju sætilíus, hún er svo mikið yndi
hey já og jón a ólafsson sem við hittum fyrir utan, djö var hann ferskur og góður á því, kjútípæ!
annars var árið 2005 viðburðaríkasta ár í lífi mínu.. eða aðallega síðustu tveir mánuðir en þá náði ég að ljúka M.Sc. í Computer Systems Engineering, fá vinnu, hætta að spila með humlebæk, flytja heim, byrja að vinna og kaupa mér íbúð.. virkilega vel gert á stuttum tíma myndi ég segja..
ég er rosalega ánægð með vinnuna og hlakka ekkert smá til að fá íbúðina mína á mánudaginn, hún er á besta stað í bænum, á ránargötu og vááááá hvað ég er ánægð með að vera flutt til íslands, nema hvað hún ylfa mín verður í danmörku, veit ekki hvernig ég á eftir að vera án hennar
ég hlakka samt svo til að eiga eftir að búa í næstu götu við hann elsku þráinn minn, við ætlum að elda saman einu sinni í viku amk og það er alltaf svo gaman að vera í návist við hann.. svo ég tali nú ekki um að hafa hansa og fífu þarna á næsta leiti líka
hmm já 2006 verður besta ár ever, ég hef mikla trú á því.. samt hafa hin 25 árin mín verið góð
gleðilegt ár allir saman.. vinir mínir, takk fyrir að vera vinir mínir, allir sem þykja vænt um mig, takk fyrir það og allir sem lesa þetta takk fyrir að lesa og sérstaklega þið sem kommentið endrum og sinnum
kyssikyssi
kl. 12:43 | holla ( 6 )
30.
des
( 2005 )
ég fór í ikea áðan með mömmu og pabba og keypti bunch af dóti fyrir cribbið mitt.. gæinn sem var að aðstoða mig þar sagðist alltaf lesa síðuna mína og ég varð ýkt ánægð, ég kann svo vel að meta þegar fólk segir mér að það lesi
:*
kl. 22:36 | holla ( 0 )
29.
des
( 2005 )
hey og ég má vera í salatnefnd!
þetta verður eins og þegar fíbí var in charge of cups and ice haha
kl. 23:58 | holla ( 2 )
ég fór í bíó með mömmu og pabba... sáum little trip to heaven.. mér finnst hún bara næs.. mugison er svo góður! forrest er með skrítinn hreim.. en skemmtileg mynd..
gott líka að bróðir minn og félagar í ÍR unnu eitthvert sveitaliðið..
ég er glaður.. mjöööög glaður
kl. 23:56 | holla ( 0 )
28.
des
( 2005 )
ahh ég fæ bara sinaskeiðabólgu í hendina, nefnilega var að skrifa undir svo mörg plögg..
fæ cribbið mitt 2. janúar! jeij
kl. 20:05 | holla ( 2 )
27.
des
( 2005 )
sorrí stelpur einhver random gaur, nýi myspace vinur minn sagði að ég væri búin að vera svo lengi sætust á netinu..
ahh það þarf svo lítið til að gleðja mig, meid mæ dei! haha var nefnilega svoldið vonsvikin þegar ég frétti að afmælinu sem átti að vera á fimmtudaginn var frestað, ég var nefnilega orðin svo rosalega spennt fyrir deitinu okkar mumma.. sérstaklega eftir að hann sendi mér annað af tveimur jólakortum sem ég fékk (þúst skoraði stig þar) og þetta var flottasta jólakort sem ég hef séð á ævinni (skoraði hundrað stig9.. svo fílar hann líka elf (milljón stig)
fór svo á landsliðsæfingu og var svo léleg að þjálfarinn kom inná völlinn og faðmaði mig.. hann hefur vorkennt mér að vera svona mikill lúði.. það var samt gaman á æfingu, ég á bara eitthvað erfitt með að fókusa og er eitthvað frekar sloj eftir veikndin.. það eru svo margir krakkar byrjaðir að æfa með sem voru ekki áður en ég fór út.. td þessir snúðar, þau eru skemmtileg! trúi ekki að einar hafi ekki sent mér jólakort kræstur!
svo er ég líka búnað púzzla, það er gaman!
kl. 23:04 | holla ( 5 )
fór á grandrokk man, það var gaman.. fyrst var einhver stelpa sem ég nennti ekki að hlusta á, var nefnilega svo heppin að óskar og oddur voru þarna, ooooov það var svo gaman að hitta þá kjútípæs, óskar nýklipptur og sætur!
svo var jan mayen og ég elska sko jan mayen, rokkgellan sem ég er! það eru líka alltaf svo margir vinir mínir á staðnum þegar þeir eru að spila sem er næææææs.. svo voru jeff who (þúst who? ekki veit ég hvað það er..) en þá fór ég af því ég er svo kúl.. eða af því ég er með fasta vinnu.. meira en margir geta sagt..
annars voru einhverjir pungar trylltir í að fá mig á diskókvöld, skil það vel, það er ekkert diskókvöld án mín.. hefði mega viljað fara sko en ekki rétti tíminn..
kl. 01:33 | holla ( 2 )
26.
des
( 2005 )
ég er komin með nýtt gsm númer.. sendi sms á alla af netinu, veit ekki hvort allt komst til skila þannig nenniði að senda mér meil (katrin@katrin.is) ef þið viljið fá nýja númerið mitt, sætir strákar endilega líka (ha ha ha.. þúst samt ekkert að grínast, sendið mér bara meil)
kl. 19:31 | holla ( 7 )
ég veit ekki með þig en ég ætla á grandrokk á morgun..
kl. 04:40 | holla ( 4 )
ég fór í messu í dag í áskirkju..
amma mín, prestsekkjan, sagði alltaf að konur ættu ekki að vera prestar.. kvenprestar bara pössuðu ekki..
eftir þessa messu í dag er ég henni algjörlega sammála, það var sem sagt einhver kona að messa og tónaði svo hrikalega að ég hélt hún væri að grínast.. svo talaði hún líka við mann eins og maður væri þroskaheftur.. kann ekki að meta svona.. en kórinn var geggjaður..
kl. 02:21 | holla ( 4 )
25.
des
( 2005 )
gleðileg jól allir lesendur nær og fjær
gaman að ég muni hitta flest ykkar mun oftar á næsta ári en þessu sem er að líða (þeas ekki þau sem búa í dk..)
lotta lub til allra
kl. 01:39 | holla ( 0 )
23.
des
( 2005 )
mmm jólin eru svo frábær tími!
kíkti í bæinn með fjölskyldunni áðan og hitti næstum engan sem ég þekkti nema mæ spessjalest frend.. sem ég hef ekki hitt síðan ég var hérna í ágúst (þúst tilviljun eða hvað??).. ooooov hvað það er alltaf gott að hittann, best..
hitti líka þrása og innsiglaði áramótadílinn haha!
hlakka svo vangefið til að fara til mæ big bró og fjölskyldu á morgun í hádeginu.. æ jólin eru svo frábær.. svo kósíheit með bara mömmu, pabba, arnþóri og kannski theo um kvöldið og svo hitta systkini pabba og fjölskyldur eftir það.. hlakka ekkert smá til þess, við hittumst sko alltaf á sunnudögum þannig við þekkjumst svo vel að fjölskylduboð eru bara frábær en ekki kvöl og pína eins og hjá flestum
vantaði bara að hitta tobbsann minn besta fyrir jól og jólin væru fullkomin, það verður víst bara að bíða betri tíma
já og ég er ótrúlega stollt af því að eiga frábærasta netkærasta á íslandi.. 300.000 kr??? hann er snillingur þessi strákur!
kl. 23:18 | holla ( 0 )
22.
des
( 2005 )
hó hó hóóóóóó
ég er komin í mega jólaskap! kíkti aðeins í bæinn með hansa mínum og við fengum okkur að borða, svo horfði ég á fífu og nonna jólaskreyta heima hjá sér og það var svo gaman og jóló..
skemmtilegasta var samt áðan þegar ég var að skoða þetta vodafone live dæmi í símanum mínum og sá þar var eitthvað sem heitir "blogg" og þar inni eru 3 síður.. við erum að tala um kirsuberið ofan á rjómanum
össur skarphéðins
katrin.is
gummijoh.net
og ekkert annað hahahahahah langar samt að vita hvern andskotan þeir gera við síðuna mína til að gera hana læsilega í gsm síma.. langar líka að vita slóðina á það mix?
kl. 23:42 | holla ( 2 )
21.
des
( 2005 )
ég fór í mjóddina í dag til að kaupa jólatré af ír-ingunum með familíunni.. nema hvað að þar er heiða að árita diskinn sinn og eeeenginn nálægur henni.. hlýtur að vera hræðilegt reality check að vera að árita diskinn sinn fyrir jólin og enginn kemur
kl. 22:30 | holla ( 12 )
gðöööö ég hef ekkert að blogga um hahaha, svona er að vera vinnandi manneskja! fór samt með viðari á múlakaffi í gær.. það er nú meiri steikti staðurinn! við lækkuðum meðalaldurinn um 50 ár.. eða alla vega ég ha ha ha
kl. 21:57 | holla ( 0 )
20.
des
( 2005 )
þessi skarlatssótt fer nú að vera svoldið þreytandi, ég er eins og fáviti í framan!
kl. 18:15 | holla ( 3 )
19.
des
( 2005 )
fyrsti dagurinn í vinnunni var ekkert smá næs, mér líst rosalega vel á þetta allt saman, samstarfsfólkið er alveg mega indælt og ég held þetta verði bara gaman, hlakka til að mæta aftur á morgun..
ég fékk líka jólagjöf frá vinnunni þar sem mér var þakkað fyrir vel unnin störf.. já ég stóð mig frekar vel í dag þó ég segi sjálf frá he he he!
kl. 20:12 | holla ( 7 )
18.
des
( 2005 )
ísland er best þó það sé grátt og kalt og snjór..
fólkið sem tjekkaði inn við hliðiná mér þurfti að borga 27000 í yfirvigt.. ég skil ekki hvernig það er hægt.. ég hef aldrei borgað yfirvigt.. ég var samt í fyrsta skipti með tvær töskur áðan en fór nottla í röðina með sæta gæjanum og pleijaði hann smá og borgaði enga yfirvigt og fékk sæti í fyrstu röð hahahha (þúst.. fyrst útúr vélinni og hnéin ekki í sæti fyrir framan)
svo sat reyndar krakkaskratti fyrir aftan mig sem sparkaði í sætið mitt alla leiðina.. af því það er ekki nógu leiðinlegt að vera í 3 tíma í flugvél án þess að það sé einhver að sparka í sætið manns.. mér finnst það eigi að setja allt fólk með börn aftast.. og gera svo múrvegg á milli.. og láta mig sitja fremst alveg seif frá hor, hávaða og sætasparki..
kl. 18:20 | holla ( 2 )
kæra danmörk
thank you for a funky time
call me up whenever you want grind
kl. 08:06 | holla ( 2 )
17.
des
( 2005 )
var að spila síðasta leikinn fyrir humlebæk.. því miður tapaði ég báðum mínum búhú.. ég er ótrúlega vonsvikin með það, ég hafði bara enga krafta og var rosalega máttlaus og þreytt.. fokkíng veikindi, ég sem var búnað æfa eins og moððerfokker!
en ég fékk pakka og kort frá öllum í liðinu (fékk mega fínan biotherm pakka, geðveikt sko).. æ það var svo ótrúlega næs eitthvað.. líka mörg þeirra búin að koma til mín í vikunni og segja hvað það hafi verið gaman að hafa mig og þá ekki bara sem spilara, það þykir mér ótrúlega vænt um.. þetta er líka frábært lið!
ahh ég ætla að pakka niður sveitta íþróttadótinu og eyða kvöldinu í að glápa á vídjó.. mm bara einn dagur.. ég er rosalega reddí í að koma heim
kl. 19:38 | holla ( 0 )
15.
des
( 2005 )
===============BACHELOR SPOILER!!!===================
mikið rosalega er fólk misjafnt...
mér persónulega finnst jenný mest óspennandi karakter í sögu sjónvarps (reyndar deilir hún fyrsta sætinu með ryan) en piparsveinninn vill að hún sé konan sín
jenný segir að flestar ungar stúlkur fari í sleik við aðrar stelpur og finnst þess vegna eðlilegt að gera það meðan maður er í sambandi við strák (???) ég persónulega hef aldrei farið í sleik við stelpu og get ekki hugsað mér að gera það og aldrei meðan ég væri í sambandi..
jenný þarf að læra að segja "ÉG hlakka til" og ungt fólk þarf að læra að segja "ég VIL"
þessi silja er með issjús.. hverjum er ekki sama hvort þessi berglind sé lessa eða ekki og hvaða óskaplega máli skiptir það eiginlega?
þessi kona sem stjórnar þessu (maríanna??) er óóótrúlega leiðinleg!
og já þessir krakkar eiga eftir að vera fólkið sem fór í bachelor alla ævi.. hver hugsar ekki "haha tantragaurinn" þegar hann sér gustavo blanco? og það eru mööörg ár síðan
ég átti annars mega kósí dag.. fór niðrí bæ og keypti síðustu jólagjafirnar, settist svo á marokkóska testofu og fékk mér chai.. kíkti svo í jólatívolí.. sem bæ ðe vei tók smárabíó í rassgatið með því að vera ekki bara með leisersjó.. heldur leisersjó á gosbrunnum he he.. jólatívolí er annars rosalega huggulegt
er svo búin að tjilla heima með fajitas og bassjelor
kl. 22:06 | holla ( 7 )
hmm ég var að eiga mjög svo undarlegt móment.. fór í litun og plokkun á næstu múslimasnyrtistofu.. svona mjöööög lítil stofa þar sem múslimakonur láta fjarlægja á sér yfirskeggið og þannig..
nema hvað konan sem plokkar mig er ekki með slæðu en 2 vinkonur hennar eru þarna líka en þær eru með slæðu.. þegar hún er búnað plokka mig og setja litinn á mig dregur hún alltí einu fram slæðu sem hún setur pent á sig, teppi sem hún setur á gólfið beint við hliðiná stólnum mínum og stærri slæðu sem hún sveipar um sig alla (og yfir hausinn líka en hún sér samt alveg út sko.. ekki eins og draugur..)
svo byrjar frúin bara að fara með einhverjar bænarútínur.. tekur bakföll og fer á hnéin og leggst alveg fram og preises ðe lord eins og hún hafi aldrei gert annað.. hún hvíslaði samt bara textann en þetta var samt alveg vangefið.. mér leið geðveikt eins og ég væri fyrir, hún lét samt bara alveg eins og ég væri ekki þarna..
þegar hún er búinn tekur önnur vinkonan við nema hún fer með textann upphátt og er með miklu meiri læti.. á meðan er konan að þrífa á mér augabrúnirnar.. ég átti svo í mega erfiðleikum við að komast úr stólnum án þess að stíga á teppið og vera geðveikt fyrir.. sjit hvað þetta var óþægilegt, ég var svooo fegin að komast út
kl. 14:54 | holla ( 10 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní