
30.
nóv
( 2005 )
oooooooo gaurinn fyrir ofan mig er nr1 á dauðalistanum mínum.. hann er að búa til einhverja vonlausa tónlist (dude you suck!) og notar svo mikinn bassa að allt í íbúðinni minni hristist???
kl. 14:47 | holla ( 12 )
ég var að kaupa mér íbúð á efstu hæð á besta stað í one 0 one baby!
ég var svo rosalega heppin að pabbi minn, bróðir og síðast en ekki síst svili bróður míns nenntu að standa í þessu fyrir mig.. en þessi íbúð er algjör næsari..
mm og ég er að farað lifa á vatni og núðlum næstu árin
kl. 13:24 | holla ( 5 )
vonbrigði lífs míns:
fyrir 2,5 árum var einhver grein í DV/fókus þar sem nefndir voru nokkrir íslendingar á lausu.. ég var ein af þeim..
og ég hösslaði ekkert útá það!
kl. 02:29 | holla ( 2 )
ég hitti eirík sem ætlar að leigja með ylfu þegar ég fer, þúst.. ég er strax orðin pínu abbó.. hann fær að vera apapabbi og hún kemur færandi hendi með gullnærbuxur handa HONUM og nammi handa HONUM og ég bara gleymist ábyggilega bara.. *snøftsnøft*
svo eiga þau eftir að sitja og horfa á despó og family guy eða máta öll fötin í skápunum þeirra og elda fahítas og vaska upp á brjóstunum..
alla vega ég hitti hann og hann er ýkt mikill krúsilíus og skemmtilegur og eiríkur er frábært nafn og ég er ánægð að ylfa fann sér hann til að búa með.. í alvuru ég erða.. samt smá abbó he he he...
kl. 02:04 | holla ( 0 )
ég vil óska vini mínum honum árna innilega til hamingju með vefverðlaunin, gaman að einhver úr vinahópnum fái þetta og sérstaklega átti hann árni þetta skilið eftir að hafa verið tilnefndur 100ár í röð..
ég hefði klárlega átt að vinna þetta samt 2003 þegar ég var tilnefnd!
kl. 01:40 | holla ( 0 )
29.
nóv
( 2005 )
ég á 2 sófa og 6 borðstofustóla..
nú á ég bara eftir að kaupa örfáar jólagjafir og pakka niður..
kl. 17:37 | holla ( 4 )
dansa hvað er betren að dansa?
með hansa gleðst ég sérhverja stund
kl. 12:36 | holla ( 1 )
það er mega hressandi að hlaupa í svona kulda.. fyrst ýkt kalt en svo verður maður bara rennsveittur... var samt að pæla áðan þegar ég hljóp kringum søerne í buxum, 2 peysum, legghlífum og með húfu, hvað það er stutt síðan ég hljóp þarna á hlýrabol og stullum í glampandi sól.. hmmm tíminn líður hratt!
það er gaur í blokkinni minni sem heitir stinus.. það er fyndnasta nafn sem ég veit um!
er að farað lyfta á eftir.. óli bob þú kemur með! haha
kl. 11:04 | holla ( 3 )
28.
nóv
( 2005 )
litlu hlutirnir í lífinu..
um daginn á íslandi þegar þurfti að skafa bílinn og ég naut þess svo innilega að gera það með skólaIDinu mínu..
áðan þegar konan í folkeregisteret spurði hvenær ég flytti aftur til danmerkur og ég sagði ALDRIG!
mmmmm já ég hlakka til að flytja heim.. mikið..
kl. 23:12 | holla ( 0 )
ég var að spá í að kaupa einhverja þætti í veftíví vísis.. nema svo rakst ég á þetta:
"Þessi þjónusta hefur verið prófuð með Windows Media Player 7.1 og Internet Explorer 5.5 á Mac OS 9."
af hverju í andskotanum prufuðu þeir þetta á mac os 9??
"Hvað þarf ég að hafa til að geta notað þessa þjónustu?
Einkatölvu eða Makka sem er öflugri en 300 MHz, með Windows 95 eða nýrri útgáfu."
enda er makkinn minn bara leigutölva.. ekki einkatölvan mín.. setti líka upp windows NT á honum HAHHAHAHAH
það sem stoppaði mig nú samt helst í að kaupa þetta er að netið mitt er ekki hægt það er HÆGT
kl. 22:21 | holla ( 0 )
haha ég var að fatta að ég hef gert grín að herra íslandi áður.. ég er fyndnari en mig grunaði!! einhver vinur hans benti honum á þetta og sagði hann vera kominn með aðdáanda.. elska kaldhæðni fyrir það að það sjá hana ekki allir.. en reyndar eru þessir gaurar keflvíkingar og allir sem lesa þessa síðu vita hvaða álit ég hef á þessu rassgati íslensks mannlífs
best líka að hann er að tala um að þetta sé svo stór titill.. man einhver eftir einhverjum öðrum herra ísland heldur en þór jóseps?? vill einhver taka þátt í keppni sem gefur manni sama titil og þór jóseps hefur borið???
þessi keppni sannaði nottla líka bara að það er ekki mark takandi á henni þegar stálið tók þátt og VANN EKKI???
kl. 22:14 | holla ( 0 )
oj! þetta hótel er akkúrat 700m frá mér.. ógeðslega óhugnalegt að svona skuli gerast svona nálægt manni..
hmm já þess vegna stóðu svona margar löggur þarna á vakt áðan..
kl. 15:08 | holla ( 0 )
það sem ég hef lært af því að búa í framleiguhúsnæði
- ég ætla aldrei að eiga glerborð
- ég ætla aldrei að eiga neitt antík
- ég ætla aldrei að eiga neitt úr basti
- ég ætla aldrei að mála herbergið mitt eins og marmara
- ég ætla ekki að eiga neitt úr marmara
- ég ætla ekki að mála nein herbergi kokteilsósulituð
- ég ætla ekki að eiga rándýra innréttingu sem verður aldrei sett upp
- ég ætla aldrei að eiga neitt í rómantískum sveitastíl
takk fyrir
kl. 22:39 | holla ( 4 )
stewie: i am sooooo bored, hey dog when you take a break from reapplying your lip stick, how about takin me to the park?
brian: my lip stick? hohohoho.. oooh.. oh right.. right..right because of my penis.. yeah.. that's.. that's.. that's fantastic

aaaa ég gæti horft á þetta 100 sinnum
ég fór út að hlaupa áðan og það er búið að hengja jólaskreytingar yfir nørrebrogade og það verður kveikt á jólatrénu hérna fyrir utan hjá mér kl 3.. ég táraðist alveg.. jiminn ég er svo sentimental þessa dagana.. það er eitthvað svo mikið framundan.. pakka niður öllu draslinu mínu, flytja heim.. byrja að vinna, hætta að búa með ylfu.. svo verð ég líka ein hérna úti síðustu vikuna.. ylfa fer heim viku á undan mér! jammjammjamm ég massa þetta..
kl. 13:28 | holla ( 2 )
26.
nóv
( 2005 )
aaaaa af hverju eru nýju family guy þættirnir svona fyndnir!!!
kl. 20:35 | holla ( 6 )
ég sá mugison í gær, það var ekkert smá gaman.. mugison er snillingur, hvernig hann tekur upp og notar svo seinna í lögunum er bara endalaust svalt.. he he líka þegar hann tók dúettinn og söng konuröddina í falsettu..
dýrka hvað gaurinn er eitthvað ótrúlega eðlilegur og svalur.. sagði fyrir giggið að þetta yrði gott gigg því það væri alltaf gaman þegar hann fengi niðurgang fyrir gigg og hann hefði eytt síðasta hálftímanum á klóstinu..
fyrir utan hvað dude er rómó he he.. varpaði grillinu á konunni sinni á gítarinn hnoooo...
eitt samt pirrandi.. það var fáránlega mikill kliður allan tímann.. mætti halda að allir þessir íslendingar sem voru þarna hafi haldið þeir væru á þorrablóti.. já eða tónleikum með sálinni því það nennir hvort eð er enginn að hlusta á sálina því hún er ekki leiðinleg hún er LEIÐINLEG!
kl. 14:16 | holla ( 9 )
en hvernig hafið þið það annars? gaman í vinnunni? ertu að læra fyrir próf? hvernig leggjast jólin í þig?
kl. 11:54 | holla ( 4 )
ojjjj hvað það er allt grátt útí og kalt og drungalegt... mig langar bara að tjilla heima með te og kerti og lesa.. vill einhver koma með mér að lyfta?? það er ekki mjög gaman að fara alltaf ein..
mugison er samt í kvöld.. hann kætir nú alltaf!
kl. 11:20 | holla ( 5 )
24.
nóv
( 2005 )
==========*** BASSJELOR SPOJLER***==========
aaaa eruði að grínast með bassjelorinn?? hvað íris edda er töff??? fokksjittfokk! það að hún hafi sagt fyrir afhendinguna "ég held ég fái rós.. ég ætla bara að vera hreinskilin með það" var fáránlega svalt.. keppnisandinn maður, unnur birna ætti að læra af henni! fokk og segja svo nei!! hahahaha veðja hún hafi bara verið að komast svona langt á keppnishörku he he hafi ekkert verið að fíla mr man boobs!
og þessi jenný er að setja ný met í að vera fýlupúki, frekja og leiðinleg.. sjit þegar hún lét gaurinn segja við sig einhverja ömurlega pikköpplínu sem hún fann sjálf upp.. despó eða hvað?? sjit fokk! alltaf fúl og vælandi.. djö held ég það sé gaman að vera í sambandi með henni he he he
ég samt öskraði, snéri mér undan og fékk gæsahúð þegar steini og gunnsa voru í sleik.. ojjj tungurnar útúr munninum og útum allt he he..
kl. 21:02 | holla ( 8 )
eins og hún ungfrú unnur birna ísland er sæt og adorable þá er hún óóóóóóþolandi metnaðarlaus!!! ég er búnað verað skoða bloggið hennar og þar segir hún bara blákalt að hún geti ekki unnið???? HA??? hún er að keppa í heimsmeistaramóti og búin að ákveða að hún tapar og segir bara frá því opinberlega..
sjit pælið ef handboltalandsliðið væri að keppa á HM og myndu bara lýsa því yfir á íþróttasíðunum að þeir gætu ekki unnið.. sjit..og ef þetta er einhver uppgerðar hógværð þá er það ennþá fáránlegra!!
hún á barað verað skrifa um hvað hún er langsætust þarna og að hin og þessi séu bara með hips eða útstæð eyru!
kl. 19:15 | holla ( 7 )
ég var að rökræða við vin minn hvor væru betri fæðubótaefnin frá AST eða EAS...
sko.. íþróttahunks eins og t.d. hrökkbrauðin nota AST (já og ég he he) meðan konur með megrunablogg nota EAS..
haaa dæmi nú hver fyrir sig!
kl. 13:51 | holla ( 4 )
23.
nóv
( 2005 )
ok.. getur einhver ímyndað sér óþægilegri þátt en bachelor með gömlu fólki?
kl. 21:36 | holla ( 6 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní