Katrín.is
28.
jún

( 2004 )
fórum áðan í drullusvað dauðans á hróa.. mig langaði að gráta yfir ógeðinu og það kom drulla á skóna mína (HATA drulluga skó) og tjölduðum, við hansi erum saman með tjald sem bróðir minn og frú lánuðu okkur og vorum ekkva að vandræðast með að tjalda því við hliðiná þráni... ekkert gekk, hvorki hjá okkur né þráni, himininn virtist bara ekki passa á, þrási orðinn heví pirraður og við hansi búnað gefast upp og bara sest niður þar sem það fylgdu nú heldur ekki hælar með tjaldinu og farin að fussa fjölskyldunni yfir að hafa sent mér ghettótjald.. þegar þráinn fattar að hann var með himininn okkar og við með hans hahahahah ógeðslega fyndið
kl. 20:14 | holla ( 4 )
nærridauðareynsla hjá sumum í gær..
fórum í lest svo föttuðum við hansi að þetta var vitlaus lest og fórum út rétt áður en hún fór af stað.. melkorka, einar, aldís og þráinn ætluðu á eftir okkur en þá skelltist hurðin bara á fésið á melkorku og ég og hansi dóum úr hlátri á perroninu yfir því að þau væru að fara til næsteved og við í góðu flippi að bíða eftir réttri lest þegar lestin byrjar að fara af stað og hurðin opnast! melkorka byrjar að stökkva út, svo einar, svo aldís.. en þráinn gleymist og lestin komin alveg á sæmilegan fart þegar hann lætur vaða og hurðin skellist á eftir honum um leið og hann stekkur og hann dettur alveg á perroninu og rúllar í hringi og týndi sígarettunni sinni sem leystist bara upp í eldglæðingum þegar hann hoppaði út..

kl. 20:10 | holla ( 0 )
26.
jún

( 2004 )
það er svoooo gaman að hafa an, við fórum á stengade með melnum, einari og mrT og vorum ýkt heppin og hittum parísarrassinn og sæta og ég þurfti að sofa með svefnpoka því sængin var týnd og ég haaata svefnpoka, ég tek sko sæng með mér á hróa
kl. 17:53 | holla ( 2 )
við an keyptum okkur geðveikustu dýnu sem sést hefur, mar getur blásið hana upp með rafmagni og það tekur bara 80 sek.. sjitt allir geðveikt abbó, það má enginn fullur, enginn skítugur og enginn leiðinlegur koma í tjaldið okkar.. eða bara enginn nema við og jeff
keyptum líka rosa flott tjald fyrir tinna og uppáhalds með því skilyrði að við fáum nokkra tjaldhæla frá þeim.. þeir vita samt ekki af því

kl. 17:37 | holla ( 0 )
25.
jún

( 2004 )
á eftir kemur hansi (sem er svo ansi góður í dansi að mér hitnar í hamsi) ég get ekki beðið

ég var að líta útum gluggann, tjekkút þessa úrhellisdembu sem er alltaf hérna.. og sé múslimakonu sem hefur ákveðið að vera pæja í dag og fara í hvíta múslimadressið sitt nema hvað það var svoooo blautt að það var algjörlega gegnsætt, eymingja kónan annars er fyndið ef mar er að tjilla í undirfatadeildinni í eidsj en em þá eru þessar konur oft þarna, rétt sést í andlitið á þeim með fullar hendur af gúmmíbrókum og leðurbrjóstahöldum (fóstbræður sko) eða bara með þongs og blúndunærföt.. frekar steikt

kl. 16:39 | holla ( 0 )
ég var svo pirruð eftir póstmongóið og á því hvað danir eru gamaldags hvað varðar bankamál að ég strunsaði í gegnum irmu og gleymdi að borga fyrir kirsuberin.. ég gæði mér því núna á illa fengnum kirsuberjum.. sama hvað dýrin í hálsaskógi segja þá finnst mér þetta bara góð ber og hana nú!
kl. 15:14 | holla ( 0 )
sá sem sagði að danir væru ligeglad hefur aldrei verið hérna lengur en í 1 dag.. það þarf að fara eftir öllum reglum, fór á pósthús til að fá flutningseyðublað handa mér og abemor en nei, þá mátti ég bara fá eitt.. það er víst svo dýrt að gera svona blöðog fólk er að misnota þau (hva nota sem venjulegan pappír?) ég spurði konuna heví pirruð eftir nokkrar rökræður og útskýringar um að ylfa væri farin heim "laver du sjov???" þá blandaði feita ógeðið á næsta kassa sér inní og ég var bara send burt.. með eitt blað

svo fór ég í banka (danir hafa greinilega aldrei heyrt um heimabanka því það er alltaf geðveik röð) en þar er ekki hægt að borga með útlenskum debetkortum.. Í BANKA!

svo er alltaf rigning hérna.. þvílík svik!

kl. 13:46 | holla ( 7 )
24.
jún

( 2004 )
áslaug og óskar eiga vin sem er kallaður hnulli.. ég dó úr hlátri fyrst þegar ég heyrði viggu segja það og svo las ég það aftur þarna núna og finnst það ennþá ógeðslega fyndið.. í mínum orðabókum þýðir hnulli kúkur og ekkert annað ahahahahah
kl. 19:42 | holla ( 0 )
það er nú eitthvað athugavert við spamsíuna á póstinum mínum..
staðan er svona síðan í morgun:
spam í innhólfi: 14
spam í spamsíu: 13
hmmmmmm ekki aðgera góða hluti

kl. 19:36 | holla ( 0 )
jeeee ef það er eitthvað sem ég kann vel að meta þá er það þessi mynd
kl. 18:17 | holla ( 2 )
nasistastrætókonan var að keyra áðan (sú sama og ég sagði við "jeg tror du döder du er så kedelig" uppá fína dönsku).. hún hreytti í mig þegar ég var búin að klippa kortið "DU SKAL IKKE HELT NED I KÖBENHAVN?" og mig langaði mest að segja "NEI EN ÞÚ NAZI???" en ég sagði bara lágt "nej.." og hypjaði mig aftast.. á leiðinni nasisaðist hún í öllum sem komu inn og var með tóm leiðindi við nokkra kínverska ferðamenn, rukkaði þá pottþétt alltof mikið
það á ekki að leyfa konum að keyra strætó

kl. 17:48 | holla ( 0 )
einstein: "þú getur ekki fengið katrin@gmail.com því það eru ekki 6 stafir í katrín"
kl. 15:52 | holla ( 3 )
tangódansandi óperusöngvarinn sem er að leigja okkur íbúðina sína segir alltaf "jarrrr" eins og sjóræningi.. geðveikt svalur
kl. 14:34 | holla ( 0 )
óli
kl. 13:21 | holla ( 2 )
ég var í munnlegu prófi áðan og hef aldrei verið stressaðari á ævinni.. ég stamaði, mundi engin orð á ensku (hjálpi mér ef þetta hefði verið á dönsku) og svo byrjaði ég barað svitna og varð geðveikt heitt og þurfti að afklæða mig í miðju prófið.. mennirnir hlógu bara að mér.. eeeen ég náði það er fyrir öllu ik?
bara kynning á verkefninu okkar og svo sumarfrí!

kl. 12:48 | holla ( 0 )
geðveikt gaman að alltaf þegar mar stígur fæti úr húsi þá rennblotna fötin manns
kl. 09:11 | holla ( 0 )
23.
jún

( 2004 )
búnað vera á þessari deitsíðu í næstum sólarhring og komin með skilaboð frá 49 mismunandi gaurum, bara 1 var yfir 30 og bara 1 undir 16.. ég segi bara við þá alla að ég noti ekki msn og vilji ekki gefa símanúmerið mitt.. ég kannetta ekki hehe.. deitsíðulúser
kl. 18:40 | holla ( 0 )
ókei strákar (og stelpur).. feik búbís [1|2|3|4|5|6] vs alvöru búbís [1|2|3]

fokk ðatt, ég nennti ekki að leita að brjóstum á netinu, rakst á feikin á einni síðu og leitaði svo slatta lengi að hinu og fann ekki meir.. eníveis hvað finnst ykkur? feik eða alvöru?

kl. 17:03 | holla ( 3 )
jessjessjol! það er að stytta upp eftir 2 vikur af stanslausri rigningu
kl. 13:58 | holla ( 3 )
elsku krúsíbollu apapabba hansinn minn kemur á föstudaginn vúhúúú ég hlakka fáránlega mikið til!
kl. 13:50 | holla ( 0 )
mér finnst brynja skemmtilegur bloggari
kl. 11:47 | holla ( 2 )
hvernig er týpan mín að sletta geðveikt mikið á dönsku?
töff?
ekki?

kl. 08:55 | holla ( 2 )
ooo sambýliskona mín, altså hún melkorka er svo heppin, ástmaður hennar, altså hann einar baldvin (sem á faktisk mjög flotta heimasíðu og mæli með því að fólk skoði verkin hans því þau eru mjög lækker..) kemur í kvöld, býst við því að það verði mikið larmað á studsgårdsgade hmmm
kl. 08:04 | holla ( 0 )
22.
jún

( 2004 )
ég er svo ómótstæðileg að ég er strax búin að fá 13 skilaboð á þessu deitingdæmi.. en eitt sló saklausu reynslulausu stúlkuna mig.. þessi sendi mér þessi skilaboð: "hejsa vil hører om du er frisk på at tjene 12.000kr på en fræk aften sammen???"
ég fékk sting í magann og tár í augun og fannst mér MJÖG misboðið.. vona að þetta sé einsdæmi.. ég sendi honum bara kurteis skilaboð að ég kærði mig ekki um svona tilboð og hananú!

kl. 22:27 | holla ( 2 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox