
31.
maí
( 2004 )
hehe af því ég er töff þá á ég þetta
gestabókin er snilld
kl. 23:38 | holla ( 6 )
mig langar í svona í afmælisgjöf 15. september
-www.tuxracer.com-
erum sko að gera þennan leik í lokaverkefninu í virtual reality.. eða svona nýja útgáfu
kl. 11:34 | holla ( 2 )
í gær lét ég keppnisskapið hlaupa með mig í gönur (sem er bæ ðe vei fáránlegt orðatiltæki) þegar ég, apamamma, mr-t og skúli spiluðum fatapóker á wallstreet.. annað hvort hafa verið brögð í tafli eða þá ég mjög léleg í póker (hallast að því fyrra þar sem ég er nottla með b.sc. og gæti ekki verið léleg í að spila) því ég endaði á brulluhaldaranum einum klæða..
en hey ég fæ öll rokkstig í heiminum
kl. 10:40 | holla ( 4 )
litli frændinn heitir Dagur og er sætastur.. óóó hvað hann er sætur! ég hlakka svo geðveikt til að sjá hann eftir mánuð og eina viku:D
kl. 10:33 | holla ( 2 )
30.
maí
( 2004 )
ég og ylfa erum að leita okkur að íbúð til að leigja og tjekkuðum á einni slíkri áðan.. maður kom til dyra og byrjaði á að segja "lít ég út fyrir að hafa grenjað?" og ég hugsaði "óóómæææ gooood þetter einhver ógeðisperri sem ætlar að drepa okkur" og ylfa svaraði honum "nei?" og hann ekkva "þekkiði þáttinn oprah!" og þá hugsaði ég "ókei hjúkk hann er bara samkynhneigður" og andaði léttar.. þá varann víst að horfa á þátt um börn í sómalíu og hágrét svona líka yfir þessu.. alveg steikt sitúeisjon!
svo fórum við í bíó á einu myndina sem var verið að sýna akkúrat þegar vorum þarna,.. hún er norsk og heitir böddí.. þegar við komum inní salinn 10 mín of seint þá var hann tómur og ekkert að gerast á skjánum.. þannig við þurftum að fara fram og láta starta myndinni fyrir okkur.. góð mynd samt sko
kl. 16:10 | holla ( 0 )
29.
maí
( 2004 )
ég fékk nýja strigaskó í dag..
fátt gleður kvenmannshjartað jafnmikið og nýir skór..
kann ég honum besta pabba mínum þakkir fyrir þá jeij:D
ég tými samt ekki að fara í þeim út.. þeir eru svo hvítir og fallegir.. og smá bleikir og fallegir!
kl. 20:28 | holla ( 4 )
ég og fri erum geðveikt gott par.. við rífumst og nöldrum aldrei svona eins og pör eru alltaf að gera.. kann að meta unnusta minn
kl. 10:34 | holla ( 0 )
28.
maí
( 2004 )
ég var að spá akkuru stelpur eru alltaf svona sjúkar í söngvara hljómsveita.. ég myndi persónulega halda að trommarinn eða bassaleikarinn væru betra val.. trommarinn útaf taktinum og bassinn út af puttunum... úff svo ég tali nú ekki um dj-a....;Þ
grrrr
kl. 21:21 | holla ( 10 )
aftur á móti þoli ég ekki stórslysamyndir eins og þarna twister og day after tomorrow og þannig.. náttúruhamfarir og sjitt.. glatað.. og myndir með stórum dýrum.. þarna myndin um daginn með riiiiisa kóngulónum.. man ekki hvað hún heitir en hún hefur pottþétt verið vond
kl. 13:09 | holla ( 4 )
ég hef ógeðslega gaman af bandarískum unglingamyndum.. horfði td á dude where´s my car um daginn og fannstún geðveik og svo á american pie (nottla ekki í fyrsta skipti) og hún er brjáááluð.. hún er svoo fyndin! horfði samt líka á my boss' daughter (ashton kutcher þema he he) og hún er versta mynd sem ég hef séð, oj hvað hún er vond
kl. 13:05 | holla ( 7 )
ég er búin að gera smá vettvangsrannsókn og hef komist að því að danskir strákar eru mun þunnhærðari en íslenskir..
kl. 11:33 | holla ( 0 )
aaaaahahahahahahahah þaru dvergar að keppa í bandí í sjónvarpinu!!!
kl. 18:29 | holla ( 2 )
ég prufaði þettta... setti mynd af rassinum á mér og komst að því að rassinn á mér er eins og charlize theron, jodie foster og ella fitzgerald ef hann væri stelpa (sem hann er) en christopher reeve, mark dacascos og takeshi kaneshiro efann væri strákur..
meiriháttar tjekk
kl. 16:33 | holla ( 7 )
mjeg og gunnar steinn gerðum undirskriftalista þar sem mar heimtar að fóstbræður komi út á dvd.. vil endilega að sem flestir skrái sig og láti það ganga til allra vina sinna og linka á síðunum sínum og þannig.. en listinn er hér: www.katrin.is/fostbraedur
KOMA SVO ALLIR SKRÁ SIG!
kl. 12:18 | holla ( 2 )
26.
maí
( 2004 )
jæja.. nú.. eða jæja nú..
könnunin kemur til af því að við ylfa og melkorka vorum að horfá fóstbræður, ég tók nottla spólurnar með mér út.. og mar er búnað horfa svo mikið á þetta að spólurnar eru í fokki, enda er vhs drasl.. vá hvað ég væri til í að fá fóstbræður á dvd.. og fá fleiri en fyrstu þrjár seríurnar.. elska viðessa þætti að þeir verða fyndnari og fyndnari eftir því sem mar horfir oftar á þá.. mar sér bara alltaf ekkva nýtt fyndið..
eriggi fleiri sem væru til í að eiga þetta allt saman?
kl. 21:16 | holla ( 4 )
jón setti heimsmet í að byrja blogg á "jæja" eða "nú" eða "jæja nú"
kl. 14:40 | holla ( 2 )
þegar apamamma er búnað meikaða sem leikkona í hollívúdd finnst mér að hún eigi að taka upp leikaranafnið ylfester stallone með dönskum framburði á y-inu..
kl. 14:10 | holla ( 1 )
ég er svo mikill gangsta..
í gær svindlaði ég mér í lest, var ekki með monns á mér, annars borga ég nú yfirleitt..passaði mig heví vel að tjekka hvort ég sæi nokkuð lestarverði í lestinni áður en ég fór inn.. fór svo inn að aftan þegar ég sá að það var enginn vörður.. var svo ekkva í góðum fíling að basla við að festa hjólið mitt þegar það koma 2 konur útum herbiggið aftast.. geðveikt svindl.. þannig það endaði með því að ég var sú fyrsta sem var spurð um miða..
ég nottla sagðist ekki tala dönsku, sagðist ekki búa hérna, ekki vera með nein skilríki og laug svo um nafn, kennitölu og heimilisfang á íslandi.. ég ætlaði sko ekki að borga neinn helvítis 500kall fyrir að svindla mér í eitt skipti.. en þá gerðist soldið sem ég bjóst ekki við, þær hringdu ekkva létu fletta upp nafninu og kennitölunni..
meðan hún var að bíða eftir svari þá missti ég algjörlega kúlið inní mér og fór næstum að grenja og var að spá í að öskra "Nejjj det var löööögn jeg bor i danmark og jeg hedder katrín..." (hélt því samt að utan) svo kom svarið: "der findnes ingen med det navn og cpr nummer paa island" sjiii ég var svoo hrædd um að þær myndu hringja á da fæv ó og láta henda mér í djeilið (og þar sem ég vinn á sumrin þarf að skila sakavottorði og þannig.. sá bara líf mitt í rústum).. og þær byrjuðu að pískra "hun kommer ikke fra island"... og nottla var búið að meikast heví sín og allir að glápa á mig og hugsa hvað ég væri mikill fáviti greinilega að ljúga og þannig..
en svo gerðist kraftaverkið.. þær gáfu mér bara illt auga og sektarmiða stílaðann á hitt nafnið og sögðu mér að borgann í miðasölu.. þannig ég varð aftur töff að innan oglangaði segja "HAH ANSIGT" en sat á mér...
en hey ég er hvossem er búnað eyða átján þúsund milljón dönskum í dsb þannig ég átti eilega inni að fá að svindla einu sinni...
kl. 13:58 | holla ( 2 )
fyrir þá sem ekki vissu þá er hægt að bæta síðunni minni í svona rss lesara.. slóðin á bloggið er: www.katrin.is/?t=rss og fyrir holla ef einhver vill fylgjast með nýjustu hollunum: www.katrin.is/?t=rss-comment
fyrir áhugasama er hægt að sækja sér lesara fyrir öll stýrikerfi hér
kl. 13:42 | holla ( 7 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní