
30.
nóv
( 2004 )
ég sá roots í gær og þetter eitt besta show sem ég hef séð.. í fyrsta lagið spiluðu þeir í klukkutíma og 20mín áður en þeir tóku sér pásu (engar pásur á milli laga) létu þá klappa sig upp og spiluðu í 40 mín í viðbót. þeir tóku mestmegnið af nýju plötunni sinni og auðvitað helling af slögurum með.. auk þess að taka annarra manna slagara líka..
þvílíkir hljóðfæraleikarar, bassafanturinn gerði bara það ótrúlegasta sem ég hef séð mann gera með hljóðfæri, ekki hægt að lýsa því og gítarhetjan tók líka þetta rosalega væl mæ gítar djentlí víps sóló (rokkmolar í boði katrínar)
?uest love er mesta krútt sem ég hef séð, heví rólegur og yfirvegaður en trommar samt bara eins og moððerfokker (hafiði samt séð að hann er vaxinn eins og barbapabbi?) hann og bongó/rafmagnstrommu trommarinn tóku líka þetta ótrúlega trommudúó.. úff.. svo vel gert.. og nottla var hljómborðsleikarinn góður á því líka
black thought fær milljón extra stig fyrir on stage kynþokka.. vá.. það sem hann heldur líka út að rappa og syngja og vera töff, þvílíkur leikmaður.., þvílíkt úr sem hann var með
tónleikar sem ég er bara í heildina óóótrúlega ánægð með, maður fann alveg hvernig þeir gáfu sálina sína í þetta, voru ekki að spila bara til að fá monnsið.. sögðu ekki einu sinni neinum að kaupa plötuna sína (haha) skein bara í gegn spilagleðin, spiluðu augljóslega endalaust og impróvæsuðu og svona, tóku sól og fönk og allskonar..
sko vá 2 tímar af stanslausum roots.. 50* af 5 mögulegum
kl. 16:21 | holla ( 0 )
mín eigin fyndni kemur mér sífellt á óvart.. ég fékk dv í gær þar sem ég var álitsgjafi á plötuumslög.. þar kom fram að einn álitsgjafinn hafi nefnt nylon sem eitt af 5 flottustu... hahaha djöfull er ég fyndin, ég vona að þær hafi séð þetta og hugsað "vá einhver valdi okkar umslag, það er líka geggjað flott".. misskilningur lífs þeirra... út að hjóla með hjálmar..
kl. 12:51 | holla ( 0 )
28.
nóv
( 2004 )
orð fá ekki lýst hvað mér þykir vænt um hann tobba minn
kl. 23:12 | holla ( 2 )
ókei það er tvennt sem er alltaf fyndið.. annað þeirra er kameltá og hitt vita nú allir hvað er
kl. 18:40 | holla ( 5 )
mamma og pabbi æði bestu kíktu í heimsókn í apahreiðrið og leist ótrúlega vel á.. svo tóku þau okkur apamömmur út að borða á hereford.. gaddem hvað er góður matur þar (pabbi var líka næstum búnað drepa einhverja konu þarna þegar hann fleygði hnífnum sínum óvart aftur fyrir sig, sjit það var svo fyndið).. komu líka með m&m handa mér og áfengi handa ylfu.. við eigum því núna efni í gott partí.. viskí og grand maríner og vodka og kaftein (og singstar party).. ég drekk audda ekki og ylfa drekkur ekkert nema øl þannig þetta stendur bara hérna undir skemmdum.. svo fékk ég líka einn disk í friends safnið mitt.. nú vantar mig bara 10. seríu og safnið er fullkomnað.. æi ég sakna þeirra þau eru svo góð og skemmtileg og sæt
ótrúlegt samt með foreldra hvað þeir finna á sér ýmislegt.. gott dæmi um það var á hróarskeldu í sumar þegar ég var svooo komin með nóg af þessari helvítis rigningu og drullu og ógeði og var við það að farað grenja og fara heim.. þá hringir mamma í mig.. bara svona til að heyra í mér og reddaði deginum..
kl. 17:52 | holla ( 4 )
ég er svo heppin, ragna var hjá mér alla helgina, valur kom í heimsókn í gær og svo eru mamma og pabbi sætu að koma á eftir... þannig það er best ég taki til mhm
kl. 09:11 | holla ( 0 )
blessuð iðrin mín.. það dýrmætasta sem ég á
kl. 09:10 | holla ( 0 )
úff held að lungun mín hafi ekkert kunnað að meta það alltof vel að ég hafi keppt hálflasin í gær.. alla vega ískrar í litlu dúllunum mínum í dag..
en ég vann báða leikina mína og liðið tapaði 7-6.. sem þýðir að ég er búin að vinna alla leikina mína síðan í fyrsta leiknum.. finnst það bara nokkuð vel af sér vikið hjá mér.. húrra fyrir mér
kl. 08:45 | holla ( 0 )
27.
nóv
( 2004 )
guði sé lof fyrir útvarpið á netinu, ég heyrði jólalagið dúllnanna minnia og ég get nú ekki annað sagt en að ó helga nótt í lokbrár búningi er stórglæsilegt, það er ekki bara eins og tom jones heldur er það líka þór
takk ljúfarnir mínir:*
kl. 22:38 | holla ( 0 )
ahaha vissuði að ég horfði á ídol um daginn frá ísafirði og váááá.. þetter í alvörunni eins og að fara inn í annan heim.. fólkið þarna er svoooo skrítið! bæði í hegðun og útliti.. allir að vinna við beitingar og sjit..
og vissuði að michael jackson (sem er bæðe vei EKKI barnaperri) er í flottustu sokkum og vettlingum í we are the world vídjóinu.. gaddem míþríl sokkum og vettlingum
kl. 21:48 | holla ( 2 )
ahaha vissuði að það er hotspot á grundarfirði??
kl. 21:46 | holla ( 2 )
ég gleymdað segja að um daginn var ég heima fór ég á hverfisbarinn (ókei það er sagt maður sé með fordóma vegna fáfræði þannig ég varð að kíkja þarna inn og réttlæta þessa fordóma mína) ókeiiiiiiii þetter ógeðsstaður.. við erum að tala um að valur í bötterköpp var þarna inni.. og ekki bara það heldur líka maður sem var sláandi líkur kalla bjarna.. ÞÁ fór ég! enda klukkan orðin rúmlega 12
kl. 21:43 | holla ( 0 )
ertu búnað spá í því hvað þú átt að gefa mér í jólagjöf?
hér er lausnin
kl. 18:12 | holla ( 2 )
26.
nóv
( 2004 )
ég og veikleiki minn fyrir einmana nördum.. inverjakrúttið sem sendi mér meil um daginn á enga vini í dtu og verður líklega einn öll jólin.. elsku kallinn.. ég er búnað bjóða honum að hanga alltaf með mér og gunnari steini (án þess að spurja gsm) í skólanum..
og ylfa og hansi.. ég bauð honum í mat á sunnudaginn.. og hann er grænmetisæta þannig ég ætla bara að hafa hnetusteik og sojalatte.. og svo komu mamma og pabbi með þurrkuð birkilauf (mm birkilaufate..)
kl. 14:26 | holla ( 2 )
úff hvað ég skil sigurjón vel.. ég þoli ekki að vera kölluð kata.. skrítið samt að sko fólk virðist bara draga þá ályktun að ég sé líklegast kölluð kata því ókunnugir gera þetta aðallega..
ég heiti KATRÍN
kl. 14:13 | holla ( 4 )
hormjon: JÚ það stendur hérna svart á....(rýnir í skjáinn)..E5E5E5
nööööööööööööörd
kl. 13:56 | holla ( 0 )
svo virðist sem ylfa sé búnað breytast í mig og öfugt.. fyrst fékk hún ælupesti.. svo missti ég röddina.. ha dúbíus!
kl. 13:34 | holla ( 0 )
mér finnst ég fáránlega vinsæl að vera með 14 ósvöruð símtöl tehehehe
svo er hansi búnað lofa mér að redda deiti á viva la fête... annars veit ég alveg hvað ég vil.. sko.. jámm þúst.. eða sko.. já einmitt.. eða sko þúst það er bara ekki hér
kl. 13:02 | holla ( 0 )
25.
nóv
( 2004 )
jeeeessss ég er veik.. get ekki talað, varirnar hreyfast bara og er ábiddla með hita.. sleppti meirað segja skólanum (eins og það sé ekkva nýtt) en það sem er nýtt er að ég ætlað sleppa æfingu þó það sé leikur á laugardaginn.. skiliggi af hverju það er ekki hægt að tjekka á netinu hvort mar sé með hita.. hugmynd að mastersverkefni fyrir einhvern!
kl. 10:01 | holla ( 4 )
þetter alveg í annað skipti sem stelpa kjaftar frá ástarlífi mínu á netinu.. hvað er að? ekki það að þetta hafi verið leyndó en svona ef mar er sjálfur ekki að kjafta því þá vil ég ekkert að einhver ókunnug sé að gera það..
kl. 01:30 | holla ( 0 )
24.
nóv
( 2004 )
ég held með eini í ídolinu!!!!
langsætastur þarna.. og klárastur pottþétt af því hann er í HÍ og réttu megin við suðurgötuna.. (y)
kl. 22:45 | holla ( 5 )
ég fór á briddzjed djónz 2 um daginn og fannst hún frekar leim.. er reyndar enginn briddzjed fan enda bara búnað sjá fyrstu myndina einu sinni og svona.. en sko.. það var eitt fyndið atriði.. það var þegar hún var á skíðum og svo finnst mér hún svo óþolandi karakter að mér finnst svo ótrúlegt að þessir menn séu að berjast um hana.. óþolandi klömsí og segir alltaf allt vitlaust og á vitlausum tíma, búandi til vandræðaleg móment.. ój ég yrði alla vega seint skotin í þannig gaur.. svo finnst mér hún ekki einu sinni sæt..
drasl af 5 * mögulegum
kl. 16:34 | holla ( 0 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní