
31.
okt
( 2004 )
við elduðum hangikjöt áðan.. þannig ég sit bara hérna með mítsvetts.. samt sko ég passaði mig því ég er svo illa brennd eftir 2. janúar þegar ég lét græðgina hlaupa með mig í gönur og horfði á hangikjötsdiskinn þegar ég var orðin södd og hugsagði "jæja ég borða eina sneið enn"... svo þegar kakan kom í eftirmat og ég búin að borða eina sneið (besta kaka í heimi) þá hugsaði ég "jæja ég borða eina sneið enn".. svo þurfti ég bara að liggja í rúminu mínu (sem ég sakna ógurlega) í nokkra klukkutíma til að jafna mig.. í alvöru ég ætla aldrei að gera það aftur, sjaldan liðið jafn illa... þess vegna borðaði ég engar kartöflur núna he he
kl. 21:31 | holla ( 0 )
ég lét ylfu plata mig í pump áðan.. sem er svona einhver massatími fyrir stelpur og nei maja þetter ekki eróbikk því það er engin ógeðis kóreógrafía í essu.. alla vega þá var þetta samt ógeðslega leiðinlegt enda svona vond tónlist og kennari sem segir WHOOP WHOOP.. fyrir utan að ég horfði í spegil og það var svona massalýsing á hægri hlutann á mér þannig það ýktist upp sinnum milljón hvað ég er miklu sterkari hægra megin og ég horfði á mig með tárin í augunum og ég sá mig nákvæmlega svona:

photoshop, halli hvað pff
en alla vega ég ætla ekki aftur..eyði frekar mínum tíma í að gera lyftingar á mínum hraða með mínar þyngdir og mínar æfingar.. ylfa er samt svo þreytt að hún gat varla sett sjampó í hárið á sér.. elska þegar mar er það þreyttur!
kl. 16:15 | holla ( 2 )
heyjjj í dag vaknaði ég kl korter yfir 1... nema hvað klukkan er ekki nema korter yfir 12!!! maður er alltaf að græða
húrraaaaa fyrir vetrartímanum
kl. 11:20 | holla ( 0 )
30.
okt
( 2004 )
ég var að spila manna við ylfu og gsm og þá fórum við að ræða spilatækni hjá foreldrum okkar þegar ég tók uppá því að þruma út spili.. sem er ss ekkva sem pabbi minn gerir þegar hann veit að hann á slag, svona hendir spilinu miklu fastar út.. þá rifjuðum við upp að jón gunnar apapabbi segir svona "durudussj" þegar hann setur út og pabbi hennar ylfu snýr svona hendinni í 2 hringi og hendir svo spilinu út... nema svo kom afi hans gsm og toppaði þetta alveg því hann lemur hendinni heví fast í borðið um leið og hann spilar út.. ókei hed tú bí ðer kannski en guð minn góður hvað mér finnst þetta fyndið
kl. 21:24 | holla ( 0 )
úff ég held að í dag líði mér eins og fólki líður þegar það er þunnt...
mætti halda að ég hafi verið að kyssa fæææn ofurölvi gaur í gær eða ekkva..
var sko halloween party.. set inn myndir þegar ég nennnnnni
kl. 17:18 | holla ( 0 )
29.
okt
( 2004 )
ég er nú ekki svalari en það að mér finnst gaman að koma heim og eiga svona skilaboð:
"Spooky thing, when you step out of the shower and think "Would Katrín think I was hot, right now?" uppossed to thinking "Will the girls where I'm going dig me?".."
á msn
kl. 19:26 | holla ( 2 )
28.
okt
( 2004 )
jiminn ég var að skoða einkamál.. tjekka hvort það væri ekkva varið í kjötið þarna.. hvort mar ætti að búa sér til prófíl (right) snilldin við einkamál er nebla að mar getur skoðað þó mar eigi ekki prófíl en ég fann manninn fyrir mig
það að hann skuli kalla sig -studmadur- var nottla það fyrsta sem heillaði mig en svo las ég líka textann hans:
"Ég er svaðilega fjörugur gaur... ég er djammari dauðans og fíla útilegur í botn.. ég spila á gítar og er hrókur alls fagnaðar :p hehe mig langar endilega að spjalla við hresst fólk"
mig langar að giftast honum en annars held ég samt að ég sé konan sem kjanalegur er að leita eftir:
"ég er að leita af stelpu sem er soldið artí, með góðan smekk og áhuga á myndlist, tónlist og hönnun."
hvað er ég að spá með að vera ekki með prófíl þarna?
kl. 23:11 | holla ( 4 )
stundum hugsa ég með rassgatinu.. gunnar steinn er búnað verað vinna að þessu svarboxi sínu í svona ár eða ekkva og alltaf að segja mér hvernig gengur og sýna mér og leyfa mér að prófa og svona.. nema hvað mér fannst svoldið skrítið að hann væri að gera ekkva megaþíng til að mar gæti haft samband við módernus í einhverjum svona spjallpakka (pældi alveg í því í hvert skipti sem hann sýndi mér þetta).. svo var þetta loksins tilbúið hjá honum og búið að setja á síðuna hjá tm og mér fannst heví skrítið að tm væri að setja ekkva dót á síðuna sína til að mar gæti haft samband við módernus.. fannst þetta svona soldið bara fyrir kerfisstjórana hjá þeim eða ekkva.. neinei kemur þá ekki bara í ljós í dag að þetter forrit til að spjalla við þjónustu fulltrúa hjá fyrirtækjunum um þjónustuna sem fyrirtækið sjálft býður uppá.. tja sem gerir þetta nú miklu merkilegra hjá honum
til hamingju með að vera búinn með svarboxið þitt elsku gunnar steinn:*
kl. 21:53 | holla ( 2 )
gsm: ég geri allskonar hluti með hægri sem venjulegt örvhent fólk gerir með vinstri
katrín: nú eins og hvað?
gsm: uhh..td..uhh... prjóna..
kl. 10:02 | holla ( 2 )
þessar 38 dönsku milljónir sem dtu skilaði í hagnað á síðasta ári hafa pottþétt verið sparaðar í klósettpappír og sápu.. hvað er málið með duftsápuna? ojjj og svo veðja ég að mar gæti farið meðennan klósettpappír hérna fyrir mannréttindadómstól
kl. 09:14 | holla ( 0 )
hver vill ekki að john erik spili í brúðkaupinu manns? já eða bara hanni heimasíðuna manns?
kl. 21:05 | holla ( 2 )
ég held ég drepist úr eigin fyndni
er búnað vera hlæjandi upphátt hérna af sjálfri mér.. var neblað tala við danska netvininn minn og spurði hvortann vildi heyra uppáhalds make out tónlistina mína og hann var nú aldeilis til í það þannig ég sendonum learning and living með gissuri.. hahahah sjit ég er svo fyndin.. nei ókei kannski ekki fyndið ef þið hafið ekki heyrt í gissuri.. mornínnjús. íveníngnjús.. njúspeiper
kl. 20:38 | holla ( 7 )
franskur strákur með myndavél um hálsinn, fulla poka af bókum sem hann var að kaupa og í bevar christiania bol gaf mér blóm í strætó
það er í fínum blómavasa hérna
kl. 18:44 | holla ( 1 )
úff ég er að fara á svo skemmtilega tónleika!
20.nóv fer ég á m.o.p. + special guest (dj premier átti að koma með en hætti við þannig það er verið að vinna að nýjum gestum)
29. nóv fer ég á roots og supportið þeirra eru gypsies
10.des fer ég á lord finesse og það er verið að tala um að O.C. komi kannski með honum!!!!! og dj krúið x-ecutioners sem inniheldur roc raida, total eclipse, boogie blind og precision
kl. 18:23 | holla ( 2 )
ég er búnað verað massa mismælin..
áðan:
gsm við hormjon: eigum við að fá okkur kebab?
katrín: já fáið ykkur magapeysu [magakveisu]
msn:
bió: hvað á ég að borða?
katrín: núðlur, kjúkling og rottur [sveppi]
svo hugsaði ég vitlaust ÉG MISHUGSAÐI MIG, hélt ekki það væri hægt
að spila við hansa og fífu
katrín hugsar: hmmm ætli þau séu pan í laufi... nei ég meina ren
kl. 16:01 | holla ( 0 )
ég veitiggi hvort ég sé búin að vera of lengi í skólanum í dag en mér finnst þetta óóógeðslega fyndið:
sharq | reykjavík! says:
gleði í rassi er gleði í hjarta
sharq | reykjavík! says:
einn rass í hendi er betri en tveir í sófa
kl. 15:07 | holla ( 3 )
ég hugsa í alvörunni um það á hverjum degi hvað hp-compaq ástin mín er óóóótrúlega góð.. ég sat áðan í tíma með gsm og traktorinn hans yfirgnæfði næstum kennarann meðan það heyrist ekki múkk í minni.. svo er skjárinn svoooo mikið æði ohh.. svo dugar batteríið í 5 tíma og er enga stund að fyllast aftur þegar mar setur í samband.. svo eru hún svo falleg og sæt og góð, mæli meðessari tölvu fyrir alla sem ætla að kaupa sér laptop
érað spá í að látana heita djónz.. auðvitað frá nasir jones..
kl. 10:57 | holla ( 2 )
þar sem ég fæ allt@katrin.is eða þúst skiptir ekki máli hvað stendur fyrir framan @ þá fæ ég stundum póst sem er ekki ætlaður mér, þegar fólk td skrifar fyrirtæki@katrin.is í staðinn fyrir katrin@fyrirtæki.is..
um daginn fékk ég td tilboð í einhverjar bónvélar (ég pantaði nottla 3 stykki þannig fyrirtækið hefur fengið nóg af bónvélum og himinháan reikning.. neiiii djók ég afþakkaði bara pent og spurði hvort hann væri ekki að senda á vitlaust meil).. einu sinni fékk ég ekkva heitmeil sem átti að fara á einhvern bankastarfsmann og merkilegast fannst mér samt þegar ég fékk launaupplýsingar heils fyrirtækis.. mar myndi nú halda að mar myndi vanda sig ef mar væri að senda svona viðkvæmar upplýsingar með tölvupósti..
kl. 09:27 | holla ( 2 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní