Katrín.is
27.
apr

( 2007 )
hhhmmnnn.. ég er búin að vera að velta því fyrir mér hvað ég á að kjósa og finnst einhvern vegin allir bara vera að spá í :

- barnafólki..
- skólafólki..
- fátæku fólki..
- gömlu fólki..
- öryrkjum..
- fólki útá landi

nú er ég ekkert af þessu...

ég er:

- ung
- vel menntuð
- vel stæð
- búin að kaupa mína fyrstu íbúð
- barnlaus
- heilsuhraust
- reykvíkingur

hvað á maður þá að kjósa eiginlega?

kl. 15:48
Sjálfstæðisflokkinn, hiklaust! Stendur fyrir öllu sama og þú stendur fyrir :)
Rúnki
27. apr kl. 15:59
hahahahahhahahahahahaha
hans
27. apr kl. 16:17
fólk verður að geta gefið mér sanngjarnt álit..

það er bannað að segja bara sinn flokk ef hann hentar ekki mér!
td ef einhver væri haldandi með öryrkjum og eldriborgurum, þá má hann ekkert bara segja mér að kjósa þá því það henti mér!

reynið að vera dáldið hlutlaus og rökstyðjið!
katrín
27. apr kl. 16:21
Ef þér finnst enginn flokkur henta þér, þá er náttárulega alltaf hægt að mæta og skila auðu og láta þar með óánægju sína í ljós með alla flokkana :P
Denni
27. apr kl. 18:09
ég myndi ráðleggja þér að kjósa d af því að sjálfstæðisflokkurinn er massa góður við okkur sem eiga peninga.
en það sem er steikt á íslandi er að auð og ógild atkvæði eru talin saman? wazup with that? að skila auðum seðli er klárlega ekki það sama og að skrifa eitthvað eins og ,,kúkum á kerfið" á seðilinn sinn. það ætti auðvitað telja auða seðla sér og sýna þeim sem eru í framboði hverju sinni að það voru svo og svo mörg prósent landsmanna sem höfðu nákvæmlega núll áhuga á því sem í boði var að kjósa.
jane doe
27. apr kl. 18:31
Ef ég væri þú mundi ég kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Á þeim forsendum að hann hefur aukið kaupmátt heimiliana (og þ.a.l. þér) um heil 60% prósent. Þeir standa einnig fyrir því að lækka skatta en frekar. Hvað er sanngjarnt við að þú greiðir um 38% launa þinna og 10% af arðgreiðslum og söluhagnaði hlutabréfanna þinna í skatta. Það sem vinstri flokkarnir standa fyrir er aukið velferðarkerfi og eina sem það kostar eru meira af laununum okkar og þú færð minna um það ráðir hvernig þú eigir að ráðstafa peningunum - þínum. Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem vill leggja niður einkasölu ríkisins á áfengi. Hversu ömurlegt er að þurfa fara í einhverjar 5 verslanir á höfuðborgarsvæðinu til þess að kaupa áfengi og að þú getir ekki skotist út í búð og keypt eina rauðvínsflösku á sama tíma og þú kaupir kjötið sem þú ætlar að bjóða vinum þínum í kvöldmatinn. Sjálfstæðisflokkurinn vil stuðla að frekari einkavæðingu fyrirtækjanna það er alveg ljóst mál að Landsbankinn sem dæmi er mun betur rekið fyrirtæki í dag heldur en það var þegar talið var að almenningur væri ekki fær um að reka bankana sama má segja um Símann. Það er ljóst mál að fyrirtæki sem fá peninga inn í fyrirtækið óháð því hvernig gengur eins og ríkisrekin fyrirtæki gera eru ekki til þess fallinn að kunna á lögmál framboðs og eftirspurnar.

Þetta að mínu mati er nægilega góð ástæða fyrir ungan og vel stæðan einstakling til þess að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í staðinn fyrir vinstri öflin.
Steinar
27. apr kl. 19:26
Svo er náttúrulega spurning að hugsa ekki bara um sjálfan sig 24/7 365 daga ársins. Þó að þú hefur það mjög gott þá hafa margir aðrir það helvíti skítt. Annars get ég ekki kosið Sjálfstæðisflokkinn því mér finnst það næstum því jafngilda því að x-a við Framsókn.
snorri
27. apr kl. 22:32
Ég myndi ráðleggja þér að kjósa Samfylkinguna. Afhverju?

Jú, Samfylkingin ætlar ekki að gera illa við þá sem eiga peninga, eins og margir Sjálfstæðismenn vilja halda fram. Hún ætlar þvert á móti að gera vel við þá sem eru búnir að fá nóg af þeim ofurvöxtum sem eru að koma sérlega illa við þá sem hafa nýlega keypt sína eigin íbúð. Gerirðu þér grein fyrir því hvað þú borgar mikið í vexti á ári? Þessir ofurvextir eru beint framhald af þeirri þenslu sem núverandi ríkisstjórn ætlar að viðhalda. Háir vextir koma sér án efa mjög vel fyrir þá sem eiga góðan sparisjóð og geta nýtt sér innlánsvexti að einhverju ráði, en ekki fyrir ungt fólk sem er að koma sér af stað út í lífið.

Og hvað kaupmáttinn varðar, þá getur maður ekki annað en blásið á það þegar kaupmátturinn er víst að hækka um einver 60%, þegar raunin er sú að kaupmátturinn á Íslandi fáránlega lítill m.v. það sem gengur og gerist hjá öðrum þjóðum. T.d. er kaupmátturinn mun meiri á Indlandi en á Íslandi.

Áfengi? Samfylkingin hefur aldrei sett sig upp á móti lausasölu áfengis. Byrjum á bjór og léttvíni og sjáum svo til.

Skattamál? Samfylkingin vill lækka skattbyrði á einstaklinga (sem hefur hækkað margfalt á síðustu árum). Skattbyrði hér á landi er mun meiri gagnvart einstaklingum en í jafnaðarmannaþjóðum Norðurlanda. Sjálfstæðisflokkurinn hefur EKKI lækkað skatta á einstaklinga.

Ég gæti haldið áfram - menntamál (ömurlegt menntakerfi!), umhverfismál (stóriðjustopp!), utanríkismál (ætlarðu að styðja fólkið sem enn hefur ekki beðist afsökunar á Íraksklúðrinu?) og auðvitað velferðarmálin í heild sinni.

Samfylkingin er frjálslyndur jafnaðarmannaflokkur sem hefur ekki vanið sig á að lofa öllu fögru án þess að hafa lausnir og áætlanir til þess að styðja sínar yfirlýsingar. Kíktu inn á xs.is og kynntu þér málin. Svo má alltaf spyrja frambjóðendur og fá svör, ef það er eitthvað sérstakt!

En um að gera að mæta á kjörstað - það skiptir öllu máli!
Dagga
28. apr kl. 02:54
Skemmtilegt blogg Katrín.
Halli
28. apr kl. 11:00
Þú ættir e.t.v. að velta þér fyrir þér af hverju þú ert vel stæð, vinnur í fyrirtæki sem fyrir örfáum árum var staðnað ríkisfyrirtæki, og af hverju þú hafðir kost á því að kaupa íbúð þrátt fyrir ungan aldur. Það er ekkert sjálfsagt við að slíkt sé mögulegt undir stjórn hvaða flokka sem er.
Geir
28. apr kl. 11:29
Sama hvort ég nái loksins að ákveða hvað ég kjósi - eða skila auðu, for that matter - þá er eitt víst:

Ég ætla að mæta í "Vote for Pedro" bolnum á kjörstað.
Óskar P. Einarsson
28. apr kl. 12:32
takk halli.
katrín
28. apr kl. 13:24
Ég vill bara benda þér á að það er ekki seinna vænna fyrir þig að fara spá í barneignum. - Því að öll verðum við jú gömul fyrr enn seinna.

Annars máttu láta mig vita hvað þú ætlar að kjósa, þegar að þú ert búin að ákveða þig. Því að þá get ég útilokað þann kost, eins gamall og fátækur landsbyggðarpabbi og ég er.

...og takk fyrir myndirnar!
Sindri
28. apr kl. 17:07
hmnmnn sindri,, það vilja ekki allir eignast börn og svo geta það ekki einu sinni allir.. en pælingin mín var að það er ekki á planinu hjá mér á næstunni þannig ég get bara spáð í því eftir 4 ár.. þegar kosið er aftur..

svo skaltu ekki reyna að halda fram að þú sért andstæðan við mig þó þú eigir barn;) og ég held að akranes falli ekki inn í þessa landsbyggðastefnu sem flokkarnir eru að spá í.. þannig þú ert mun nær því að vera í mínum hóp en hinum..

en hey ef þú vilt vera alveg seif um að vera andstæðan við mig, þá skaltu kjósa frjálslynda.. þeir eru nefnilega eini flokkurinn sem ég gæti aldrei hugsað mér að kjósa
katrín
28. apr kl. 18:26
mér finnst ekki neitt rætt um fólkið sem ber þjóðfélagið á herðum sínum.. þeir sem eru bara fokkin duglegir og mæta í vinnuna og leggja sig fram... við fáum enga sjensa eða skattbreik eða hitt eða þetta.. venjulega fólkið á bara að sjá um sig sjálft.. sem það auðvitað gerir en já ég held að sjallarnir séu klárlega það sem kemst næst því sem þú stillir upp þarna.. go nutz og x-d

nafn
28. apr kl. 19:16
Ég er mikið búinn að vera að pæla í þessu. Ég er þannig innrættur að ég myndi helst kjósa samfylkingu eða sjálfstæðisflokk. Samfylkinguna út af því að ég er bara þannig alinn upp, krati að eðlisfari. Sjálfstæðisflokkinn út af því að þeir eru búnir að vera við völd ýkt lengi, og það er ekki allt farið í rassagat ennþá.
Hinsvegar hefur þetta langa XD góðæri gert það að verkum að mín kynslóð og kynslóðin fyrir neðan hefur enga raunverulega pólitíska sannfæringu, okkur grunar að hlutirnir væru á einhvern hátt verri ef aðrir flokkar en XD og XB væru við völd, en við höfum engar sannannir fyrir því, út af því að við höfum engar sannanir fyrir því.
Þessvegna er ég búinn að vera pæla í því hvort að það væri ekki málið að kjósa VG. Þeir eru klárlega alveg nöts, vilja koma á internetlöggu og banna allt, og ef það er eitthvað að marka sjálfstæðis- og samfylkingarvini mína þá myndi allt fara til andskotans í smá tíma ef þau kæmust til valda. Við höfum það öll víst svo ótrúlega gott að við þurfum ekkert meira, við erum kjósendurnir sem erfitt er að finna gjöf handa út af því að við eigum allt. Nema pólitíska sannfæringu. Fjögur ár af samsteypustjórn frjálslyndra og vinstri grænna myndu veita okkur það.
Sveinbjörn Pálsson
29. apr kl. 12:16
Góðan daginn, gott fólk og velkomin í Silfur Katrínar.
Óskar P. Einarsson
29. apr kl. 12:24
Flest af þessu sem á við um þig á ágætlega við um mig. Ég veit það að ég á eftir að eiga nóg handa sjálfum mér það sem eftir er. Ég hugsa samt ekki bara um sjálfan mig og þess vegna ætla ég að kjósa til vinstri.
Hjalti
29. apr kl. 12:30
Hjalti, af hverju geturu ekki bara hjálpað þeim sem þú vilt hjálpa, í stað þess að kjósa yfir þig stjórnvöld sem neyða alla til að hjálpa þeim sem þú vilt hjálpa? Er til meiri hroki en að vilja að allir geri það sama og maður sjálfur segist vilja gera (en gerir e.t.v. ekki)?
Geir
29. apr kl. 23:21
Geir, vegna þess að ég vil að peningarnir sem ég borga í skatt verði notaðir öðruvísi en núna? Þú ert s.s. að leggja til að ég kjósi sjálfstæðisflokkinn og haldi áfram að borga hátt í 200þús í skatt og noti svo allan afganginn minn í að sponsora þá sem eiga minni pening?
Hjalti
30. apr kl. 09:31
Nei, heldur að þú farir í hina áttina, kjósir þá sem eru líklegir til að draga mjög úr fjárþorsta hins opinbera, og skilji meira eftir í þínu eigin launaumslagi. Sem sagt að "skatturinn" verði að "launum" sem þú notar að vild.
Geir
30. apr kl. 18:27
mér finnst að baráttusamtökin hefðu átt að hafa mig í 1sta sæti. þá hefðu pottþétt allir kosið þau. svo finnst mér vanta hemma gunn og ragga bjarna á listann hjá ómari. og spaugstofuna...þá fyrst væri eitthvað vit í að kjósa þennan flokk.
höjkur
30. apr kl. 19:33
Kjóstu Samfylkinguna!

Ég er í svipaðri stöðu og þú. Því kýs ég ekki flokk, sem hugsar vel um rassgatið á mér, heldur flokk sem er líklegur til að sinna vel því fólki, sem þarf á aðstoð að halda. Þess vegna kýs ég jafnaðarmenn.
Einar Örn
30. apr kl. 20:22
hmm nenni ekki að lesa hvað fólk hefur svarað þér, enn.. helduru að þú verðir svona að eylífu? Þ+u átt eftir að verða gömul, þú átt eftir að verða móðir, jafnvel einstæð, menntunin þín gæti orðið úrellt eða orðið offramboð af fólki með þína menntun, þú gætir misst íbúðinna af utanaðkomandi aðstæðum og endað með að þurfa að flytja út á land.... hvað þá?? já kjósa kapitalisman því hann henntar þér í augnabikinu. kannski ef þú ert heppin þá stoppar tíminn í lífinu þínu og það reynir ekkért á þetta hjá þér..
Gunnar
1. maí kl. 13:45
Ég vil bara benda þér á það að við verðum öll gömul einhvern tíma og þá viljum við að það sé velmenntað fólk í þjóðfélaginu sem getur sinnt okkar þörfum. Hverjir eru að undirbúa þessa einstaklinga núna. Jú, barnafólkið og skólarnir. Við viljum því sennilega öll styðja að það sé gert með þeim hætti að þessir einstaklingar verði ábyrgir og taka þátt í að stuðla að því. Svo held ég líka að viljum ekki að fátæka fólkið sé bara eins og hráviði út um allt eða ekki viljum við að alið verði á reiði tiltekinna þjóðfélagshópa sem fara svo að kveikja í bílunum okkar. Það er skyndamlegast að hugsa um það hvernig þjóðfélgi við viljum búa í til frambúðar og hvað við viljum geta sótt til þess.
Ónefnd
1. maí kl. 15:08
Skilaðu auðu ef þú ert á móti öllum en slepptu því að fara á kjörstað ef þér er sama hverjir eru við völd.
Keli
1. maí kl. 17:49
ónefnd og gunnar: takk kærlega fyrir að benda mér á að ég verði einhvern tíman gömul, ég bara vera ekki búin að gera mér grein fyrir því ennþá!

en það tala allir eins og ég vilji kjósa einhvern sem pælir bara í mínum þörfum.. eins og ég benti á þá eru ALLIR að pæla í hinu, þannig ef ég kýs einhvern þá er ég að kjósa það.. var bara að velta því fyrir mér hvort einhver væri LÍKA að pæla í mér..
katrín
1. maí kl. 18:33
Ég sé bjarta tíma með XD!
Gaui
2. maí kl. 01:34


mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox