fyrir tæpum tveimur árum lá ég að paradísareyjunni Zanzibar og hugsaði “ef ég gifti mig einhvern tímann, þá ætla ég í brúðkaupsferð einhverstaðar þar sem er kalt”
hérna er smá brot úr dagbókinni minni frá 25. mars 2009
“Sko hitinn hérna er ótrúlegur, maður er alltaf með lekandi svita í andlitinu, alveg fáránlegt, maður er meira að segja hættur að finna fyrir því! Ég ég held ég fíli bara betur 10 stiga frost í Bláfjöllum og frostbitnar kinnar.”
maðurinn minn er auðvitað á sama máli, þannig á miðvikudaginn höldum við í síðbúna brúðkaupsferð til…. TADA:
WHISTLER!

(myndin er af manninum mínum þegar hann fór í vettfangsferð til Whistler í fyrra)
ég hlakka sjúkt til!
(btw ekki láta ykkur dreyma um að brjótast inn til mín, ég er löhöngu búin að buffa sekjúritasið mitt og er með awesome nágrannavörslu)